
Landbúnaður

Áfram verði „stórt gat“ í rekstri fjölmargra bænda
Samtök ungra bænda segja aðgerðir ráðherra til að mæta efnahagsvanda bænda ekki nægjanlegar. Í yfirlýsingu fagna samtökin aðgerðunum en segja að þótt þeim væri öllum hrint í framkvæmd sé ljóst að „áfram verði stórt gat í rekstri fjölmargra bænda“. Bændasamtökin taka undir þetta.

Tæplega þúsund bændur fá 1,6 milljarð í styrk
Áætlað er að stuðningur sem nemur alls 1.600 milljónum króna verði geiddur til 982 bænda, sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna núverandi efnahagsástands, fyrir árslok 2023.

Áfengi úr íslenskri mjólk á Sauðárkróki
Íslenskri mjólk er nú breytt að hluta til í áfengi hjá Íslensku mysuafurðum á Sauðárkróki, sem er að framleiða etanól úr mjólkursykrinum. Ekki stendur þó til að fara að framleiða áfengi til sölu að svo stöddu en sá tímapunktur gæti þó komið fyrr en varir.

Forystuærin Flugfreyja í uppáhaldi hjá Guðna
Forystuærin Flugfreyja er í miklu uppáhaldi hjá Guðna Ágústssyni, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, sem á hana. Flugfreyja á þrjú lömb, sem bera öll nöfn bresku konungsfjölskyldunnar eða Karl, Camilla og Díana. Fréttamaður hitti Guðna og forystuféð hans í fjárhúsi í Flóanum.

Formaður Bændasamtaka Íslands áhyggjufullur
Formaður Bændasamtakanna hefur áhyggjur af því að einkafyrirtæki í landbúnaði nái hæfu og vel menntuðu starfsfólki landbúnaðarins yfir til sín því þau geti borgað hærri laun en opinberi geirinn.

Hrútaskráin lesin í eldhúsinu, rúminu og á salerninu
Bændur landsins, ekki síst sauðfjárbændur brosa breitt þessa dagana því uppáhalds ritið þeirra, Hrútaskráin er komin út en þar er yfirlit yfir bestu hrúta landsins, sem verða á sauðfjársæðingarstöðvum nú þegar fengitíminn fer að byrja. Hrúturinn Hreinn verður eflaust vinsælastur en hann er fyrsti arfhreini hrúturinn gegn riðu á sæðingarstöð.

Ljósin eru að slökkna
Ég er nú vanur að berja mér á brjóst og sigra heiminn sama hvað á gengur. En nú er fokið í flest skjól. Konungur fuglanna, örninn hefur verið mitt tákn og drifkraftur í gegnum lífið sem bóndi og hefur það dugað þar til núna, því búið er að klippa af mér flugfjaðrirnar og klærnar.

„Í orðsins fyllstu merkingu dýraníð“
Þýsk og svissnesk dýraverndarsamtök segja fylfullar hryssur undir miklu álagi og enn sæta ofbeldi þegar tekið er úr þeim blóð. Inga Sæland hefur lagt fram bann við blómerahaldi í fjórða sinn, en segist vonast til þess að ný reglugerð ESB verði til þess að það verði í síðasta sinn.

Sakar þingmenn um að drífa „fordómafulla og óvægna umræðu“
Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka ehf., hefur ítrekað afstöðu fyrirtækisins gegn frumvarpi um bann við blóðmerahaldi og segist vona að það verði ekki að „árlegri hefð“ að endurflytja það.

Nálgun MAST svo varfærin að hún gangi í raun gegn markmiðum um dýravelferð
Matvælastofnun hefur ekki tekist nægilega vel að byggja upp það traust sem nauðsynlegt er hverri eftirlitsstofnun. Þá hefur MAST sýnt langlundargeð í einstaka málum þar sem velferð dýra er ábótavant.

Gamla fjárréttin í Ólafsvík hefur verið endurhlaðin
Guðrún Tryggvadóttir í Ólafsvík lætur ekki deigan síga þegar kemur að endurhleðslu fjárréttanna á staðnum því hún hefur stýrt þar átaksverkefni við að gera réttina upp með því að endurhlaða hana úr grjóti. Guðrún hvetur bæjarbúa að taka að sér einn og einn dilk í réttinni til að sjá um þannig að sómi verði af.

Kúabóndi á Suðurlandi sviptur mjólkursöluleyfi
Matvælastofnun hefur svipt kúabónda á Suðurlandi leyfi til framleiðslu og dreifingar á mjólk.

Það er raunhæft að útrýma riðu á Íslandi
Yfirdýralæknir segir það vel raunhæfan möguleika að Ísland verði riðulaust land, ekki síst vegna ræktunar á verndandi arfgerðum gegn riðu í sauðfé. Lagt er til í nýrri skýrslu til matvælaráðherra að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland.

Bændur eru meira og minna í sjálfboðavinnu alla daga
„Bændur eru meira og minna í sjálfboðavinnu alla daga við að framleiða matvæli ofan í íslenska þjóð“, segir formaður Bændasamtakanna, sem vandar alþingismönnum og ráðherrum ekki kveðjur sínar.

Edda sómir sér vel í Eyjafirði þó bændur séu ekki allir sáttir við júgrið
Kýrin Edda, stærsta kýr landsins sómir sér vel á stalli í Eyjafirði en um er að ræða risa listaverk eftir norska listakonu, sem býr í Kristnesi. Eitt komma tvö tonn af járni fóru í smíði Eddu.

12 milljarðar = fæðuöryggi tryggt
Undirritaður sat afar kröftugan og upplýsandi baráttufund Samtaka ungra bænda sem haldinn var í Salnum í Kópavogi þann 26. október sl. Ég vil byrja á að hrósa ungum bændum fyrir framkvæmd fundarins á allan hátt og hve framsögur þeirra sem fram komu voru vandaðar og málefnalega sett fram. Framtíðin er björt með þetta frambærilega fólk í stafni íslensk landbúnaðar og íslensk samfélags.

Í sveita síns andlits
Bændur og samtök þeirra hafa að undanförnu dregið upp skýra mynd af óviðunandi afkomu stéttarinnar og erfiðleikum sem að steðja. Ástæðurnar eru nokkrar en einna helst er vikið að háu vaxtastigi og verðhækkunum á aðföngum.

Riða greindist í kind í Húnaþingi vestra
Kind frá bænum Stórhóli í Húnaþingi vestra greindist með riðu í nýlegri sýnatöku. Matvælastofnun er byrjuð að undirbúa aðgerðir þar sem faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og áhersla lögð á að rekja hvert kindur af bænum hafa verið fluttar.

Mjólkurframleiðendum hefur fækkað um 25 prósent
Íslenskum sauðfjárbændum hefur fækkað um 20 prósent á síðustu 10 árum, nautgripabændum um 15 prósent og mjólkurframleiðendum um 25 prósent. Matvælaráðherra segist hlusta á bændur og taka málefnum þeirra alvarlega.

Líf eða dauði ungra bænda
Í gær var haldinn baráttufundur Samtaka ungra bænda í Salnum í Kópavogi. Því miður var tilefnið ærið og erindið var við ráðamenn þjóðarinnar.

„Það er engin framtíð í þessu“
Það stefnir í fjöldagjaldþrot hjá bændum ef starfsumhverfi þeirra verður ekki bætt. Þetta segir ungur bóndi sem er á barmi þess að hætta búskap þar sem launagreiðslur séu nánast engar vegna hækkandi vaxta og álagna.

Leiður, vonlítill og þreyttur bóndi
Þórólfur Ómar Óskarsson, ungur kúabóndi í Grænuhlíð í Eyjafirði, fór ófögrum orðum um núverandi rekstrarumhverfi bændastéttarinnar í ræðu sem hann flutti á baráttufundi Samtaka ungra bænda í Kópavogi í dag.

Framleiðsla á dilkakjöti á Íslandi að hverfa
Árið 2022 var heildarframleiðsla á dilkakjöti um 7.408 tonn. Gert er ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í framleiðslu á þessu ári 2023 og að framleiðslan fari niður í 7.205 tonn.

Bein útsending: Baráttufundur ungra bænda
Samtök ungra bænda efna til baráttufundar í Salnum í Kópavogi í dag. Þar munu átta ungir bændur taka til máls og þrír gestafyrirlesarar auk þess sem málin verða rædd í pallborði með þáttöku gesta í sal. Von er á ráðherrum og þingmönnum.

Ákveðinn ómöguleiki í nýliðun í landbúnaði
Formaður ungra bænda segir nýliðun í landbúnaði nánast ómögulega við núverandi aðstæður. Þung staða sé í greininni og hafa ungir bændur því boðað til baráttufundar til að berjast fyrir lífi sínu.

Íslenskir sauðfjárbændur launalausir – Hvers vegna?
Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að bændur hafa á undanförnum árum upplifað miklar þrengingar í afkomu sinni. Bændur þurfa á því að halda að á þá sé hlustað og stöðu þeirra sýndur skilningur.

Við þurfum öfluga bændur!
Eftir á annan tug stýrivaxtahækkana er farið að reyna verulega á fjárhaginn hjá mörgum íbúum og rekstraraðilum á Íslandi. Bændur landsins virðast vera „Kanarífuglinn í kolanámunni“ og eru margir þeirra orðnir algjörlega uppgefnir á stöðunni og farnir að tala um að hætta rekstri.

Fæðuöryggi á krossgötum
Íslenskur landbúnaður, matarkista þjóðarinnar stendur um margt á krossgötum. Hann hefur gengið í gegnum miklar breytingar á undanförnum áratugum. Tæknibylting hefur gjörbreytt framleiðslu aðstæðum, ekki síst vegna aukinna krafna um aðbúnað dýra og eins kröfu markaðarins um lægra verð á matvælum.

Bregðast þurfi við fjárhagsvanda bænda svo þeir séu ekki „þrælar á eigin búi“
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði. Grípa þurfi til aðgerða hratt og örugglega til að koma til móts við skuldavanda bænda og leggur hann til dæmis til hlutdeildarlán fyrir unga bændur.

Álftir búnar að éta upp átta hektara af korni hjá Björgvini bónda
Kornbóndi á Suðurlandi hefur orðið fyrir milljóna tjóni í haust vegna álfta, sem hafa étið upp sex til átta hektara af korni hjá honum. Bóndinn segir fuglana sitja um akrana en ekki má fækka þeim þar sem álftin er friðuð. „Alveg glatað“ segir bóndinn.