Evrópusambandið

Johnson varaður við að hunsa lög um útgönguna úr ESB
Fráfarandi þingforseti segir að þingið ætti að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin brjóti lög, jafnvel þó að það þurfi að brjóta eigin reglur og þingsköp.

Vill að Suður-Ítalía fái sérstöðu
Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, ætlar að biðja Evrópusambandið um að suðurhluti landsins fái sérstöðu hvað varðar styrki og fleira.

Svört skýrsla um áhrif Brexit án samnings ekki lengur leyndarmál
Fari svo að Bretar gangi út Evrópusambandinu án samnings eins og stefnir í þann 31. október næstkomandi gæti matarverð hækkað, eldsneyti orðið dýrara og skortur á lyfjum gæti orðið viðvarandi um tíma.

Verðandi forseti framkvæmdastjórnar ESB sakaður um að taka upp málflutning öfgahægris
Nýr innflytjenda- og öryggisstjóri framkvæmdastjórnar ESB á að gæta evrópskra lífshátta.

Bretar breyta reglum um alþjóðlega stúdenta
Bretar hafa ákveðið að breyta reglum hvað varðar alþjóðlega stúdenta í Bretlandi og framtíð þeirra eftir Brexit.

Stefnir í jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn ESB
Samþykki Evrópurþingið tillögurnar mun hin nýja forystusveit slá met í sögu sambandsins yfir jafnan hlut kynjanna en á listanum eru þrettán konur og fjórtán karlar.

Felldu tillögu um þingkosningar
Breska þinginu var frestað í nótt undir miklum mótmælum frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar.

Boris reynir aftur að fá þingheim til að samþykkja kosningar
Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, ætlar að reyna aftur í dag að fá þingheim til að samþykkja kosningar í landinu en til þess þarf hann aukinn meirihluta í þinginu.

Segir Frakka ekki tilbúna að fresta útgöngu Breta að svo stöddu
Að óbreyttu mun Bretland yfirgefa Evrópusambandið þann 31. október næstkomandi, hvort sem nýtt samkomulag næst eður ei.

Breskur ráðherra hættir í ríkisstjórninni og Íhaldsflokknum
Ástæðuna segir hún vera að dyggir hófsamir íhaldsmenn hafi verið reknir úr flokknum.

Herkænska eða hrunadans Johnsons
Bresk stjórnmál eru í uppnámi og almenningur getur lítið gert annað en að fylgjast agndofa með. Líkt og í House of Cards er ráðabrugg að tjaldabaki og Boris Johnson horfir marga leiki fram í tímann.

Johnson segist frekar vilja „liggja dauður í skurði“ en sækja um frest til Brussel
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að reyna aftur að boða til kosninga. Þingstyrkur stjórnar hans heldur áfram að minnka og óljóst er hvort stjórnarandstaðan styðji tillögu um nýjar kosningar.

Frestun Brexit samþykkt með ákvæði um útgöngusamning May
Boris Johnson forsætisráðherra beið annan ósigur á breska þinginu í kvöld.

Frestun þingfunda í Bretlandi dæmd lögleg
Skoskur dómstóll segir þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fresta þingfundum í september og þar til skömmu áður en Bretland gengur úr Evrópusambandinu (Brexit) í lok október, vera lögmæta.

Kom á óvart að ríkisstjórn Boris Johnson skyldi missa meirihluta sinn
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir það hafa komið á óvart að ríkisstjórn Íhaldsflokksins undir forystu Boris Johnson skyldi missa eins manns meirihluta sinn á þinginu í dag er Phillip Lee gekk til liðs við Frjálslynda demókrata.

Boris Johnson biðlar til þingmanna að valda ekki „tilgangslausri töf“ á útgöngu Breta
Heimildir BBC herma að forsætisráðherran muni boða til þingkosninga sem fram færu þann 14. október, ef fulltrúadeild þingsins tekst að koma í veg fyrir að Bretar fari út án samnings.

Vilja samkomulag um olíusölu sem fyrst
Yfirvöld Íran munu segja skilið við kjarnorkusamkomulagið svokallaða verði nýtt samkomulag ekki gert fyrir lok þessarar viku.

Blair segir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu vera einu leiðina
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, segir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu vera eina leiðina til að bæta ástandið þar í landi. Þá dró hann lögmæti úrgöngu Bretlands, án samnings, í efa.

Taldi ekki ástæðu til að stöðva tímabundið áform Johnson
Skoskur dómari hefur hafnað beiðni um að stöðva tímabundið áform Boris Johnson að fresta breska þinginu. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í dómsal í morgun.

Boris Johnson sagður haga sér eins og hann sé einræðisherra
Andstæðingar breska forsætisráðherrans eru æfir vegna ákvörðunar hans um að fresta þingfundum. Þýðir að þingið hefur minni tíma, jafnvel of lítinn, til að koma í gegn löggjöf sem bannar samningslausa útgöngu. Þingforseti segir ákvörðunina vera aðför gegn stjórnarskrá.

Þingmenn þvert á flokka búa sig undir átök við Boris Johnson
Bæði þingmenn Íhaldsflokksins sem og þingmenn úr stjórnarandstöðu ræddu sín á milli í kvöld hvernig koma má í veg fyrir að Bretar gangi úr ESB án samnings.

„Algjör upplausn í breskum stjórnmálum“
Elísabet Englandsdrottning hefur fallist á beiðni Boris Johnson, forsætisráðherra, um frestun þingfunda.

Ákvörðun Boris Johnson um að fresta þingfundum líkt við valdarán
Sú ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og formanns Íhaldsflokksins, um fresta þingfundum hefur verið sætt mikilli gagnrýni í dag og er óhætt að segja að stjórnarandstaðan á breska þinginu sé bálreið vegna málsins.

Bretadrottning samþykkti beiðni Boris
Elísabet Bretlandsdrottning hefur samþykkt beiðni Boris Johnson forsætisráðherra um að fresta þingfundum aðeins nokkrum dögum eftir að það kemur saman og örfáum vikum áður en Bretland gengur úr Evrópusambandinu.

Satt og logið um þriðja orkupakkann
Það er gífurlegt magn af rangfærslum og falsfréttum sem hefur birst í tengslum við þriðja orkupakkann.

Veitti Bretum ráð vegna Brexit í beinni á Sky
Sigmundur Davið Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hvatti Breta í viðtali á Sky News í morgun til að sækja um tímabundna aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eftir að þeir ganga úr Evrópusambandinu.

EES samstarfið megi ekki verða verkfæri „samþjöppunarsinna í Evrópu“ til að ráðskast með innanlandsmál og auka miðstýringu
Sigmundur Davíð talaði í viðtalinu um Evrópusambandið með afar gagnrýnum hætti. Hann varaði við því að ESB myndi nýta EES-samninginn til að auka yfirþjóðlegt vald yfir Íslandi.

Ekki orðinn úrkula vonar um að Sjálfstæðisflokkurinn hafni þriðja orkupakkanum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, horfir sérstaklega til þeirrar óánægju sem hefur gætt í baklandi Sjálfstæðisflokksins um þriðja orkupakkann þegar segist ekki vera búinn að missa alla von um að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins muni hafna innleiðingu þriðja orkupakkans á svokölluðum "þingstubbi“ um mánaðamótin þegar orkupakkinn verður til umfjöllunar.

Ekki fræðilegur möguleiki að Rússum verði boðið í hópinn á ný
Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir að á síðustu árum hefðu Rússar sýnt að þeir séu ekki lengur í hópi þeirra landa sem hafa mannréttindi, lög og reglur og frjálslynt lýðræði í hávegum.

Trump lofar Bretum „stærsta fríverslunarsamningi“ í sögu ríkjanna
Donald Trump og Boris Jonson áttu morgunverðarfund í Frakklandi í dag.