Grindavík
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 74 ›
Sigdalurinn seig í nótt og strangara eftirlit Sigdalur undir Grindavík seig í nótt og verða viðbragðsaðilar með strangara eftirlit við aðgerðir vegna björgun nauðsynja í bænum í dag. Gæslustjóri segir vel hafa gengið það sem af er degi. Innlent 14.11.2023 11:50
Íbúarnir sem komust ekki í gær fá fimm mínútur í dag Íbúar í Grindavík sem ekki komust til síns heima í gær að sækja verðmæti fá til þess fimm mínútur í dag. Opið verður til Grindavíkur fyrir viðkomandi íbúa frá tólf á hádegi í fjórar klukkustundir. Innlent 14.11.2023 11:11
Gjafir og gjörningar fyrir Grindvíkinga á óvissutímum 1200 heimili í Grindavík eru mannlaus og í kringum 3800 Grindvíkingar gista hjá fjölskyldu og vinum, í hjólhýsum, í sumarbústöðum eða fjöldahjálpastöðvum. Fólk og fyrirtæki hafa fjölmörg boðið fram aðstoð sína á þessum óvissutímum. Innlent 14.11.2023 10:57
Grindvíkingar þurfa ekki að tilkynna tjón strax: „Það þarf ekki að bæta álagi á þau“ Vegna þeirra jarðhræringa sem nú eiga sér stað í Grindavík bendir Náttúruhamfaratrygging Íslands íbúum á að stofnunin gerir ekki kröfu um að tilkynningar séu sendar inn fyrr en eftir að neyðarstigi hefur verið aflétt. Innlent 14.11.2023 10:47
Vernd mannlegra innviða á Reykjanesi Íbúar Grindavíkur eru þessa dagana að ganga í gegnum mikið sálrænt áfall. Það er búið að kippa undan þeim þeirra grunnöryggi. Jörðin hefur bókstaflega rofnað fyrir framan þau. Heimilin þeirra eru að slitna í sundur og sökkva ofan í jörðina. Skoðun 14.11.2023 10:31
Um þrjátíu vörubílar notaðir til að sækja efni úr Stapafelli Rúmlega þrjátíu vörubílar voru notaðir við að flytja efni úr Stapafelli við Grindavíkurveg í gær og aftur í morgun að svæðinu þar sem til stendur að reisa varnargarða til verndar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu. Um fimmtán flutningabílar voru notaðir við flutningana í nótt. Innlent 14.11.2023 09:26
Spyr hvers vegna HS Orka og Bláa lónið séu stikkfrí Guðjón Friðriksson sagnfræðingur orðar þar sem margir hugsa þegar hann spyr hvers vegna einkafyrirtækin HS Orka og Bláa lónið sleppi frá því að leggja í púkkið við byggingu varnargarða? Innlent 14.11.2023 08:54
Vaktin: Grindavík eins og skriðjökull Þeir Grindvíkingar sem ekki komust heim til sín í gær fengu að skjótast eftir eignum í dag. Þeim var þó gert að yfirgefa Grindavík í flýti. Skjálftavirkni hefur verið á svipuðu róli í tvo sólarhringa. Vísir fylgist með gangi mála vegna skjálftanna og mögulegs eldgoss. 1200 heimili í Grindavík eru mannlaus. Innlent 14.11.2023 05:40
Samþykkja frumvarp um vernd innviða Alþingi samþykkti skömmu fyrir miðnætti frumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Greiddu 57 þingmenn atkvæði með frumvarpinu. Innlent 14.11.2023 00:26
Miklar skemmdir á fjölskylduheimili í Grindavík: „Ónýtt frá grunni og upp“ Fjögurra manna fjölskylda komst að því í dag að heimili þeirra í Grindavík hefði orðið fyrir miklum skemmdum. Innlent 13.11.2023 22:29
„Þetta mun örugglega marka djúp spor í sálarlífinu“ Búið er að koma upp starfstöðvum fyrir 20 starfsmenn Grindavíkurbæjar í ráðhúsi Reykjavíkur. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir húsnæðis- og skólamál í forgrunni hjá bænum. Ljóst sé að atburðir síðustu daga muni marka djúp spor í sálarlíf Grindvíkinga. Innlent 13.11.2023 19:00
Óljóst hvort umfangsmiklar aðgerðir skili árangri „Staðan er þannig núna að við verðum bara að gera hvað við getum til að tryggja þessa mikilvægu innviði,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um viðbrögð stjórnvalda við mögulegu gosi á Reykjanesskaga, í viðtali við Reykjavík Síðdegis í dag. Innlent 13.11.2023 18:17
Seldi húsið í Grindavík á föstudag en rændur í Reykjavík Marcel Marik lenti í þeirri hörmulegu lífsreynslu að vegabréfi hans og verðmætum var stolið úr bíl hans. En nokkrum klukkustundum fyrr seldi hann húsið sitt í Grindavík. Hann vonast til að geta búið áfram í Grindavík. Innlent 13.11.2023 17:08
Nýjar myndir staðfesta sig upp á allt að einn metra Út frá greiningu á gervitunglagögnum sem Veðurstofan vann 12. nóvember kemur í ljós að nokkurs konar sigdalur hefur myndast sem liggur í gegnum hluta Grindavíkurbæjar. Gögnin sýna að í tengslum við myndun kvikugangsins hefur land í vesturhluta byggðarinnar sigið um allt að einn metra. Innlent 13.11.2023 16:47
Tengdasonur ársins kemur til bjargar Íbúar Grindavíkur voru í óða önn nú síðdegis við að forða sínu helsta á þeim skamma tíma sem gafst til að huga að verðmætum og persónulegum eignum. Fréttamaður Vísis greip Ásmund Guðnason glóðvolgan þar sem hann var að hlaða bíl sinn. Innlent 13.11.2023 16:05
„Það er alveg glatað að þurfa að yfirgefa bæinn sinn“ Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður í Grindavík, segir að ekkert kalt vatn sé í Grindavík í dag. Þar er heitt vatn og rafmagn en ekkert kalt vatn. Hann segir mikilvægt fyrir fólk að komast í veraldlega hluti á heimilum sínum, þó það róist ekki endilega við það. Innlent 13.11.2023 15:29
Segja eign sína nú verðlausa með öllu Ómar Alaham og Amanda Jo Wood búa við stærstu sprungur sem myndast hafa í Grindavík. Fréttastofa rakst á þau þar sem þau voru að huga að aðstæðum en yfirvöld gáfu íbúum færi á því í dag. Íbúar hafa til klukkan 16:00 til að fara að sækja það allra nauðsynlegasta. Þá verður lokað aftur. Innlent 13.11.2023 15:24
Sig og sprungur við íþróttahúsið: „Þetta er það versta sem við höfum séð í dag“ Miklar skemmdir hafa orðið við íþróttahúsið í Grindavík. Þar hafa stórar sprungur opnast og jörð sigið töluvert. Björgunarsveitarfólk kannaði aðstæður á svæðinu í dag. Innlent 13.11.2023 14:46
Myndir úr Grindavík: Miklar skemmdir í bænum Grindvíkingum hefur verið hleypt inn í bæinn í morgun og í dag til að sækja eigur sínar. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fór einnig til Grindavíkur. Innlent 13.11.2023 14:16
Á leiðinni til Grindavíkur eftir að hafa misst móður sína á fimmtudaginn Ragna Kristín Ragnarsdóttir, íbúi í Grindavík, er ein þeirra fjölmörgu Grindvíkinga sem bíða þess nú að komast inn í bæinn. Hún er á leið með föður sínum heim til hans að sækja persónulega muni. Mestu skipta munir móður hennar sem lést á fimmtudaginn. Innlent 13.11.2023 13:56
Hleypa öllum inn í bæinn: Hámark tveir í hverjum bíl Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa öllum íbúum Grindavíkur inn í bæinn núna. Innlent 13.11.2023 13:45
Inn á tíu mínútum og út aftur Hjálmar Hallgrímsson vettvangsstjóri segir ganga ágætlega að hleypa fleira fólki inn í Grindavík. Skipulagsbreytingar hafi verið gerðar sem geri ráð fyrir að hraðar gangi að hleypa fleirum inná svæðið en áður var. Innlent 13.11.2023 13:43
Fá að sækja dýrin sem verða eftir í skammdeginu Fulltrúar dýraverndarfélaga hafa gengið grænt ljós til að sækja þau dýr sem verða eftir í Grindavík í dag þegar fer að dimma. Þetta segir Anna Margrét Áslaugardóttir formaður Dýrfinnu í samtali við Vísi. Innlent 13.11.2023 13:13
Nesvegur mikið skemmdur og ófær Nesvegur vestan Grindavíkur til móts við golfvöllinn er í sundur og er alveg ófær. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið að störfum á staðnum í dag. Innlent 13.11.2023 13:06
Grindvíkingar búi sig undir gríðarlegt tjón „Ljóst er að gríðarlegt tjón er á bænum okkar og gott að fólk undirbúi sig undir það.“ Innlent 13.11.2023 12:44
Svo til óbreytt ástand en minni líkur á gosi ef eitthvað er Litlar breytingar eru á stöðunni í Grindavík þó að verulega hafi dregið úr stærri skjálftum síðustu sólarhinga. Jarðeðlisfræðingur segir svipaðar líkur á gosi og áður. Innlent 13.11.2023 12:23
Búa í hesthúsi meðan ósköpin ganga yfir Þau Rúrik Hreinsson og Paricia Hobi flúðu bæinn eins og aðrir Grindvíkingar og fundu athvarf í hesthúsi í Fjárborgum, rétt fyrir ofan borgina. Innlent 13.11.2023 12:18
Virknin í og við Grindavík nánast óbreytt Mat Veðurstofunnar er að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta kvikugangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um tveggja til fimm kílómetra dýpi. Innlent 13.11.2023 11:49
Vonar að ekki þurfi að dreifa grindvískum börnum milli skóla Skólastjóri grunnskóla Grindavíkur segir enn unnið að útfærslu skólastarfs barna í Grindavík. Best væri að finna aðstöðu svo börnin geti haldið hópinn, frekar en að dreifa þeim á milli skóla. Innlent 13.11.2023 11:04
Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans. Innlent 13.11.2023 10:43