Grindavík
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 73 ›
Grindvíkingar verða áfram í Smáranum Dagurinn byrjar mjög vel fyrir Grindvíkinga því þeir hafa fundið sér heimili í körfuboltanum næsta árið. Körfubolti 29.5.2024 09:11
Sjáðu lokasóknina ótrúlegu og senuþjófinn Kane í viðtali Óla Óla Ólafur Ólafsson og félagar í Grindavík tryggðu sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta með dramatískum sigri á Valsmönnum í gærkvöldi. Körfubolti 27.5.2024 09:01
Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur telja líklegt að öll virkni undir Sundhnúksgígaröðinni muni stöðvast í lok júlí á þessu ári. Þetta kemur fram á bloggi Haraldar en þar fer hann yfir þróun kvikugangsins frá því í nóvember 2023 þegar fyrsta eldgosið hófst. Innlent 25.5.2024 08:10
Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarðar í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu. Innlent 24.5.2024 08:40
Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi Í dag fer fram rýnifundur ríkislögreglustjóra á aðgerðum almannavarnadeildar og annarra viðbragðsaðila á aðgerðum síðustu sex mánaða á Reykjanesi. Dómsmálaráðherra ávarpaði fundinn í morgun. Um 70 manns sitja fundinn í heild sinni. Fundarstjóri er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Innlent 23.5.2024 12:48
„Ef ekkert breytist þá erum við að fara á hausinn“ „Ef ekkert breytist þá erum við að fara á hausinn. Við erum með rosalega sterka einingu. Við skuldum lítið miðað við eignirnar, en við munum ekki lifa til desember,“ segir Dagmar Valsdóttir, Grindvíkingur og eigandi Grindavík Guesthouse. Innlent 23.5.2024 08:57
„Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Prófessor í jarðeðlisfræði segir aukinn þrýsting í borholum HS veitna á Svartsengi í morgun bera þess merki um að jarðskorpan sé mjög nálægt því að bresta. Hann segir þá sem dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn á fimmtán mínútum. Grindavík sé ekki staður fyrir partýstand né börn. Innlent 21.5.2024 15:30
Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Kjartan Sigurðsson athafnamaður frá Grindavík skipuleggur nú, ásamt öðrum, hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna þeirra skilyrða sem sett hafa verið við uppkaup fasteigna í Grindavík. Samkvæmt skilmálum Þórkötlu fasteignafélags er einstaklingum sem eiga íbúðarhúsnæði gefinn kostur á að selja félaginu fasteign sína. Innlent 21.5.2024 14:40
Kane aðeins fjórum stigum frá mögnuðu meti Rondey Robinson Grindvíkingurinn Deandre Kane hefur skorað 72 stig í fyrstu tveimur leikjunum í úrslitaeinvígi Vals og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta. Körfubolti 21.5.2024 14:01
Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Kvikusöfnun undir Svartsengi helst áfram stöðug og hafa um sautján milljón rúmmetra af kviku hafa bæst við kvikuhólfið frá 16. mars. Innlent 21.5.2024 12:36
Breytingar í borholum á Reykjanesi Starfsfólk HS orku í Svartsengi var í morgun sent heim vegna breytinga í borholum. Innlent 21.5.2024 10:47
„Fólk er bara að bíða“ Skjálftavirkni hefur aukist örlítið við Sundhnúksgígaröðina á Reykjanesskaga og ekkert lát er á landrisi. Eldfjallafræðingur segir að innstreymi í kvikuhólfið sé að hægjast sem gæti þýtt að lengri tími sé í næsta gos. Grindvíkingar sem gista í bænum bíða átekta. Innlent 19.5.2024 14:16
Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Heildarumfang útgjalda sem ríkissjóður hefur efnt til vegna náttúruhamfara við Grindavík stefnir í hundrað milljarða. Forsætisráðherra segir skyldur gagnvart heimilum vega þyngra en gagnvart atvinnustarfsemi. Innlent 17.5.2024 20:30
Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra, Guðný Sverrisdóttir fyrrverandi sveitarstjóri og Gunnar Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar. Innlent 17.5.2024 16:19
Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Ríkisstjórnin leggur til stuðningslán til grindvískra heimila og fyrirækja í Grindavík að viðbættum viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta. Innlent 17.5.2024 15:29
Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44
Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir að leiguverð sem fasteignafélagið Þórkatla hafi sett á seldar eignir í bænum alltof hátt - og alls ekki til þess fallið að fá fólk til að snúa aftur í bæinn. Hann reiknar ekki með að margir nýti sér úrræðið en fyrri eigendum húsanna býðst að leigja þau á 625 krónur fermetrann. Innlent 16.5.2024 11:42
Kvikusöfnunin áfram stöðug Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur áfram haldist stöðug og eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á næstu dögum. Líklegast er að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni og er fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Innlent 16.5.2024 11:23
Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Starfsmenn fasteignafélagsins Þórkötlu hafa yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík og undirritað 471 kaupsamning. Félaginu hefur borist samtals 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 16.5.2024 06:44
Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Veðurstofa Íslands hefur mælt sjö smáskjálfta við austanvert Sýlingarfell, þar sem kvikuhlaup hafa orðið, í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir vel fylgst með stöðunni en viðbragð hafi ekki verið aukið, enn sem komið er. Innlent 15.5.2024 20:28
Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp innviðaráðherra um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar. Framkvæmdanefndin tekur formlega til starfa 1. júní næstkomandi þegar lögin taka gildi. Undirbúningur að starfi nefndarinnar er þegar hafinn og skipan hennar verður kynnt innan skamms. Innlent 14.5.2024 18:19
Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Nýjar gossprungur gætu opnast með litlum sem engum fyrirvara og land heldur áfram að rísa í Svartsengi. Nokkuð hefur verið um smáskjálfta á svæðinu í dag. Innlent 13.5.2024 21:30
Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Land rís í Svartsengi með sama hraða og áður. Frá 16. mars, þegar síðasta eldgos hófst, hefur land risið um tæplega tuttugu sentimetra. Kvikusöfnun heldur því áfram og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi. Gossprungur gætu opnast með mjög litlum fyrirvara, jafnvel engum. Innlent 13.5.2024 11:54
Stöðugt landris og hugað að rýmingu Víðir Reynisson sviðstjóri Almannavarna segir viðbragðsaðila undirbúa rýmingu í Grindavík. Stöðugt landris hefur verið á svæðinu og kvikumagnið slíkt að miklar líkur eru taldar á gosi á allra næstu dögum. Innlent 9.5.2024 21:29
Eldvörp líkleg næst Eldfjallafræðingur telur líklegt að næsta gos á Reykjanesi verði í Eldvörpum. Það sé langbesti staðurinn til að fá nýtt eldgos því á svæðinu sé mikið flatlendi og langt í mikilvæga innviði. Nýtt eldgos geti hafist hvenær sem er Innlent 9.5.2024 11:35
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15
Margt bendi til þess að gosinu sé lokið Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Innlent 8.5.2024 20:23
Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar. Innlent 8.5.2024 16:37
„Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Yfirvofandi eldgoss í námunda við Grindavík hefur áhrif á þá starfsemi sem hafin var í bænum að sögn formanns bæjarráðs. Ákvörðun um hópuppsagnir bæjarstarfsmanna hafi verið erfið en fyrirsjáanleg. Innlent 8.5.2024 14:07
Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú afgreitt meirihluta þeirra 766 umsóknir sem hafa borist um kaup. Allar umsóknir sem bárust í mars og þarfnast ekki nánari skoðunar hafa verið afgreiddar, eða alls 528 umsóknir. Eigendum 415 eigna í Grindavík hefur verið boðin kaupsamningur til undirritunar. Viðskipti innlent 8.5.2024 11:41