Norðurþing

Smástirni sprakk norður af Íslandi
Smástirni sprakk með krafti um þrjú þúsund tonna af dínamíti norðan Íslands í gærkvöldi.

Nafn piltsins sem lést á Laugum
Ungi maðurinn sem lést af slysförum við Framhaldsskólann á Laugum hét Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson.

Heimamenn fylla skarðið sem risinn skildi eftir
Heimamenn á Húsavík láta ekki deigan síga þótt búið sé að loka einu byggingarvöruverslun bæjarins. Verktakar á svæðinu hafa tekið höndum saman og munu þeir opna nýja byggingarvöruverslun í bænum í næsta mánuði.

Kristján Þór hættir sem sveitarstjóri
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, ætlar ekki að sækjast eftir stöðunni eftir næstu kosningar eða bjóða sig fram til setu í sveitarstjórn.

Ice Fish Farm kaupir allt hlutafé í Löxum
Meirihlutaeigendur ICE Fish Farm og Laxa skrifuðu undir samkomulag um mögulega sameiningu félaganna eftir lokun markaða í dag. ICE Fish Farm mun kaupa öll hlutabréf í Löxum og borga fyrir með hlutabréfum í ICE Fish Farm í kjölfar samþykkis aðalfunda félaganna.

Launamunurinn geti vel skýrst af hálaunastörfum
Formaður BSRB harmar gagnrýni innan úr röðum Starfsgreinasambandsins og segir ekki hægt að þá staðreynd í efa að opinberir starfsmenn séu lægra launaðir að meðaltali. Hún útilokar þó ekki að þetta eigi aðallega við hálaunastörf en þau þurfi þá að hækka hjá hinu opinbera.

BSRB fari fram með áróður sem skaði láglaunafólk
Stjórnarmaður í Starfsgreinasambandinu segir BSRB fara með rangfærslur um launamun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. Hann óttast að yfirlýsingarnar geti skaðað lægst launaðu umbjóðendur sína.

Kristján Þór og Gunna Dís hætt saman
Kristján Þór Magnússon og Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem fjölmiðlakonan Gunna Dís, eru sögð vera að skilja. Kristján Þór er sveitarstjóri í Norðurþingi en Gunna Dís er á leið til Reykjavíkur aftur.

Hvalaskoðunarrisi þarf að greiða Norðurþingi fimm milljónir
Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants, sem starfrækt er frá Húsavík, hefur verið dæmt til að greiða Hafnasjóði Norðurþings fimm milljónir króna vegna vangreiddra farþegagjalda.

Húsasmiðjunni lokað á Dalvík og Húsavík
Verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík verður lokað um næstu áramót. Starfsmönnum fyrirtækisins í bæjunum verður boðið að vinna í nýrri verslun á Akureyri sem opna á á Freyjunesi á næsta ári.

Fjölgar í einangrun en fækkar í sóttkví á Akureyri
116 manns eru í einangrun á Akureyri vegna Covid-19. Þeir sem eru í sóttkví fækkar hins vegar verulega á milli daga. Langflestir af þeim eru í sóttkví í bænum eru nemendur eða starfsfólk grunnskóla.

Ískirkja fyrir utan Hraunhafnartanga
„Þvílíkt útsýni í dag: Ískirkjan“

Enginn skóli á morgun: Stofnanir á Húsavík lokaðar vegna smita
Skólahald í Borgarhólsskóla á Húsavík fellur niður á morgun og þriðjudag vegna kórónuveirusmita meðal nemenda og starfsfólks. Þá verður Stjórnsýsluhúsið í bænum einnig lokað á morgun vegna smits.

Hrútar og gimbrar í aðalhlutverki á Raufarhöfn í dag
Íslenska sauðkindin verður í aðalhlutverki á Raufarhöfn í dag því þar fer fram hrútadagur með tilheyrandi hrútasýningu. Einnig verður fegurðarsamkeppni gimbra.

Stór og mikill borgarísjaki undan ströndum Melrakkasléttu
Stærðarinnar borgarísjaki lónar nú skammt undan ströndum Melrakkasléttu, við Hraunhafnartanga. Sennilegt er að hann hafi brotnað úr Grænlandsjökli.

Bein útsending: Grænir iðngarðar á Íslandi
Niðurstöður vinnu og næstu skref þegar kemur að uppsetningu grænna iðngarða á Íslandi verða kynnt á fundi sem streymt verður úr Hörpu klukkan 13 í dag.

Sex fulltrúar V-lista í Norðurþingi óskuðu lausnar undan störfum
Sex fulltrúar á V-lista Vinstri grænna og óháðra óskuðu lausnar frá störfum á fundi sveitarstjórnar Norðurþings hinn 24. ágúst síðastliðinn. Aldey Traustadóttir er nýr forseti sveitarstjórnar en hún var 9. manneskja á lista framboðsins þegar gengið var til kosninga 2018.

Sigurborg Ósk á von á barni
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, á von á barni. Hún greinir frá þessu á Twitter og segir að „lítill laumufarþegi“ hafi fengið að fylgja með til Húsavíkur, þar sem hún býr nú, í vor.

Vilja draga línu þvert yfir mynni Skjálfanda til að stoppa stærri strákana í að hreinsa upp miðin
Smábátaeigendur á Húsavík vilja að byggaráð sveitarfélagsins beiti sér fyrir því að dregin verði lína þvert yfir mynni Skjálfandaflóa, svo takmarka megi dragnótaveiðar nærri landi. Þeir telja að veiðislóðin þoli ekki ágengnina sem fylgi slíkum veiðarfærum og óttast þeir að fiskistofnar þurrkist upp verði ekkert að gert.

Minnast litháísks knattspyrnumanns sem lést á Húsavík
Minningarstund var haldin í Húsavíkurkirkju í síðustu viku um litháíska knattspyrnumanninn Dziugas Petrauskas. Knattspyrnumaðurinn fannst látinn í grennd við Húsavík aðfaranótt mánudagsins 9. ágúst.

Segir vindmyllur eiga eftir að tæta sundur samfélagið
Byggðaráð Norðurþings hefur frestað breytingu aðalskipulags sem hefði greitt götu vindorkuvers á Melrakkasléttu eftir að mótmæli bárust frá íbúum við Öxarfjörð. Andstæðingar segja vindmylluskóg spilla víðerni Sléttunnar.

Stórfelld uppbygging seiðaeldis við Kópasker
Einhver mesta uppbygging í sögu Öxarfjarðar fer nú fram við Kópasker. Þar er risin 2.400 fermetra bygging sem fullyrt er að sé stærsta hús í sögu héraðsins.

Engar skýringar á skriðuhruni í Hágöngum
Skriður féllu í Hágöngum, yst í Kinnarfjöllum, í Skjálfanda í gærkvöldi. Sjónarvottar sem staddir voru í Flatey segja að skriðurnar hafi fallið klukkustundum saman og að miklar drunur hafi fylgt þeim. Veðurfræðingur hjá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands, segist engar skýringar hafa fyrir skriðunum.

Efna til íbúakosningar um umdeilda framkvæmd
Byggðarráð Norðurþings mun efna til íbúakönnunar um afstöðu til uppbyggingar vindorkuvers á Melrakkasléttu. Þetta var samþykkt á fundi byggðarráðs síðasta fimmtudag.

Kraftaverk að Ásgeir hafi lifað af skelfilegt bílslys í æsku
Tónlistarmaðurinn ástsæli Ásgeir var að senda frá sér nýtt lag en þar syngur hann um bílslys sem hann lenti í þegar hann var aðeins sjö ára gamall.

Ferðaþjónustan að lifna við: „Það eru allir eins og beljur á vorin“
Ferðaþjónustan á Íslandi er að lifna við þó enn séu tiltölulega fáir ferðamenn á ferð og flugi um landið. Pétur Gauti Valgeirsson, fyrrverandi formaður Leiðsagnar stéttarfélags leiðsögumanna, segir umsvifin aukast mun hraðar en hann hafi talið.

Braust inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu og réðst á kærastann hennar
Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás, brot gegn nálgunarbanni, húsbrot og hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. Karlmaðurinn var tekinn þrisvar fyrir of hraðan akstur sama kvöldið í mars í fyrra.

Guðmundur Ingi undirritar samning um rekstur Rifs
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Norðurþing og Náttúrustofa Norðausturlands hafa gert með sér samning um rekstur Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn.

Lögregla stoppaði vegfarendur og bauð þeim far í bólusetningu
Mikið kapp var lagt í að koma út öllum bóluefnaskömmtum sem heilsugæslan á Húsavík hafði til umráða í gær eftir heldur dræma mætingu í bólusetningu. Lögreglan á Húsavík lagði þar hönd á plóg, fór á rúntinn, fann óbólusett fólk og kippti því með sér á bólusetningarstöðina.

Rafmagni aftur komið á á Norðausturlandi
Rafmagnslaust var á stórum hluta Norðurlands í gærkvöldi og í nótt eða í Kelduhverfi, Öxarfirði, á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þistilfirði, Þórshöfn og Bakkafirði.