Akureyri
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 56 ›
Undirskriftalistinn endi sennilega í ruslatunnu ráðherra Formaður Skólafélags MA segist óttast að tæplega fimm þúsund undirskriftir, sem safnað var gegn fyrirhugaðri sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri, endi í ruslinu eftir að hafa verið afhentar ráðherra í dag. Nemendur finna fyrir miklum stuðningi við málstað sinn. Innlent 16.9.2023 13:11
Skólameistari MA leggst alfarið gegn vinnu í átt að sameiningu Skólameistari Menntaskólans á Akureyri leggst nú alfarið gegn því að hefja vinnu um aukið samstarf skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri. Á meðan markmið menntamálaráðherra með sameiningunni sé að spara og hagræða sjái hann sér ekki fært að hald málinu áfram. Innlent 15.9.2023 20:13
Samflokkskona ráðherra skorar á hann Þingflokksformaður Framsóknar og oddviti í Norðausturkjördæmi skorar á menntamálaráðherra og samflokksmann sinn að endurskoða vinnu og markmið með sameiningu MA og VMA með það að leiðarljósi að efla nám framhaldsskólanna í breiðu samráði. Hún segir eina af forsendum þess að breyta áherslum sé sú að fá aukið fjármagn í málaflokkinn. Innlent 14.9.2023 07:45
Útgerðarfélag Akureyringa rennur inn í dótturfélag Samherja Ákveðið hefur verið að Útgerðarfélag Akureyringa ehf. sameinist Samherja Íslandi ehf., sem fyrir rekur fiskvinnslu á Dalvík og gerir út þrjú ísfiskskip, frystitogara og tvö uppsjávarskip. Móðurfélag þessara tveggja félaga er Samherji hf.. Viðskipti innlent 13.9.2023 16:01
Þorsteinn Már verður heiðursgestur KA á Laugardalsvelli Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, verður heiðursgestur KA á Laugardalsvelli á laugardaginn næstkomandi þegar að liðið mætir Víkingi Reykjavík í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta. Íslenski boltinn 13.9.2023 14:29
Límband mikilvægt sönnunargagn í frelsissviptingarmáli á Akureyri Lögreglu er heimilt að taka strokusýni úr munni manns sem er grunaður um líkamsárás, frelsissviptingu og fjárkúgunarbrot á heimili sínu á Akureyri í mars á þessu ári. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis. Innlent 13.9.2023 13:57
Þingmenn töluvert loðnari í svörum um sameiningu en atvinnulífið Meirihluti þingmanna í Norðausturkjördæmi sem lýst hefur afstöðu sinni til fyrirhugaðrar sameiningar menntaskólanna MA og VMA er andsnúinn fyrirhugaðri sameiningu skólanna. Tveir þingmenn eru hvorki með né á móti. Alls segjast 25 fyrirtæki á Akureyri vera andsnúin sameiningunni, í tilkynningu. Innlent 13.9.2023 11:01
Undir skólans menntamerki Við þúsundir sem höfum numið undir skólans menntamerki getum ekki annað en mótmælt af einurð og festu þeim vanhugsuðu breytingum stungið hefur verið upp á að gera á sterkasta menntaskóla landsins. Þar hafa gegnum yfir 140 ár vinir mæst og mætast enn í dag. Skoðun 12.9.2023 12:31
Allir nema einn útskrifaðir eftir rútuslysið Allir nema einn af þeim aðilum sem voru fluttir á Landspítala eftir rútuslys við Blönduós síðastliðinn föstudag hafa verið útskrifaðir. Þetta staðfestir Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði Akureyrarbæjar, en þeir sem voru í rútunni voru starfsmenn bæjarins. Innlent 12.9.2023 11:13
Af vannýttu húsnæði framhaldsskóla Við lestur nýbirtrar skýrslu Mennta- og barnamálaráðuneytisins þar sem lagt er til að Verkmenntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn á Akureyri verði sameinaðir er margt sem kemur upp í hugann—og fátt gott. Í stað þess að setja á of langt mál langar mig að beina sjónum að einu atriði, nefnilega forsendum skýrsluhöfunda. Skoðun 12.9.2023 07:01
Mikil sorg fyrir norðan eftir að ekið var á sex kýr Kýr drápust í tveimur umferðarslysum á Norðurlandi um helgina, annars vegar í Hörgárdal við Jónasarlund á þjóðveginum og hins vegar í Eyjafjarðarsveit. Ein kú drapst í Hörgárdal en fjórar í Eyjafjarðarsveit og lýsir bóndi þar mikilli sorg vegna málsins. Innlent 11.9.2023 14:45
Allir íbúar komust út eftir að kviknaði í fjölbýlishúsi Slökkviliðinu á Akureyri barst tilkynning um talsverðan svartan reyk í fjölbýlishúsi í Snægili í morgunsárið. Vel gekk að ráða niðurlögum elds sem reyndist inni í húsinu og unnið er að reykræstingu. Innlent 11.9.2023 08:31
Menntun má kosta! Sameiningarhugmyndir framhaldsskólanna MA og VMA sem mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, áformar eru fráleitar að okkar mati, þó er hvorug okkar stúdent frá öðrum hvorum skólanum. Fyrir utan hróplegar þversagnir í skýrslu PwC, sem mörg hafa fjallað um og litlu er við að bæta, er skoðun okkar faglegs eðlis og byggir á þörfum fjölbreytts nemendahóps og ólíkra ungmenna á landsbyggðinni. Skoðun 11.9.2023 08:01
Lýsa eftir manni sem keyrði á kú og stakk af Lögreglan á Akureyri lýsir eftir ökumanni sem keyrði á kú í Hörgárdal við Jónasarlund á Þjóðvegi 1 rétt eftir klukkan hálf fjögur í dag. Bíll ökumannsins var hvítur en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir. Innlent 10.9.2023 22:03
Nýr framhaldsskóli á grunni MA og VMA Í stað þess að sameina Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri væri upplagt að leggja skólana niður og stofna nýjan framhaldsskóla á grunni þeirra beggja. Skoðun 10.9.2023 08:00
„Ömurlegur endir á góðu ferðalagi“ Enginn slasaðist alvarlega þegar rúta með rúmlega tuttugu starfsmönnum Akureyrarbæjar valt snemma í morgun skammt frá Blönduósi. Þjónustustjóri segir þetta mikið áfall fyrir fólkið en flestir voru sofandi þegar atvikið átti sér stað. Innlent 8.9.2023 22:01
Lýst eftir Alfreð Erling Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir Alfreð Erling Þórðarsyni, 45 ára gömlum karlmanni. Alfreð er skolhærður með sítt að aftan og um 176 sentimetrar á hæð. Innlent 8.9.2023 20:30
Bílarnir gjöreyðilagðir eftir íkveikjuna Ótti greip um sig meðal íbúa fjölbýlishúss í Naustahverfi á Akureyri þar sem grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílum í nótt. Bílarnir gjöreyðilögðust eins og sést af meðfylgjandi myndskeiðum frá vettvangi. Innlent 8.9.2023 19:56
Kennarafélag MA alfarið á móti sameiningu Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri er alfarið á móti sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri. Félagið segir skýrslu starfshóps um málið fulla af þversögnum. Hún hafi verið unnin án samráðs við starfsfólk og nemendur. Skorað er á ráðherra að falla frá áformunum. Innlent 8.9.2023 18:35
Örlög skólans menntamerkis Ég er svo aldeilis forviða. Í ljósi frétta um sameiningu MA og VMA get ég ekki annað en lýst yfir andstöðu minni við áformin. Viðbrögð hafa ekki látið á sér standa og það er ástæða fyrir því. Skoðun 8.9.2023 14:00
Fimm handteknir grunaðir um íkveikjur á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur handtekið fimm einstaklinga sem eru grunaðir um íkveikjur á Akureyri. Lögreglan fékk tilkynningar um tvo eldsvoða, annars vegar í nótt og hins vegar í morgun. Báðir eldsvoðarnir voru í Naustahverfi. Innlent 8.9.2023 13:13
Umboðsmaður sendir Ásmundi bréf vegna sameiningar Umboðsmaður barna hefur sent Ásmundi Einari Daðasyni, mennta-og barnamálaráðherra bréf vegna sameiningar Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna og hvort nemendur hafi fengið að koma sjónarmiðum á framfæri. Innlent 8.9.2023 13:01
Forna dáð er fremd að rækja Nýlega hefur starfshópur sérfræðinga að sunnan skilað Ásmundi Einari þeirri tillögu sinni að sameina skuli Verkmenntaskólann og Menntaskólann á Akureyri. Hugmyndin er vond og sett fram í miklu skeytingarleysi gagnvart vilja MA-inga, sögu þeirra og gildum, enda hafa ámóta neikvæð viðbrögð varla sést Norðanlands frá afhöfðun Jóns biskups. Skoðun 8.9.2023 10:30
Akureyringar á leið heim eftir Evrópuferð í rútunni sem valt Rúta sem valt skammt sunnan við Blönduós á sjötta tímanum í morgun var að ferja 23 Akureyringa til síns heima frá Keflavíkurflugvelli. Sjö voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík. Aðrir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri. Enginn lést í slysinu og ekki vitað til þess að nokkur sé í lífshættu. Innlent 8.9.2023 10:12
Illa ígrunduð áform Ásmundar Tillaga Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri er vanhugsuð aðför að mennta- og samfélagsmálum á landsbyggðinni. Einsleitara skólaumhverfi er engum til hagsbóta, sækjum frekar fram og fögnum fjölbreytileikanum. Skoðun 8.9.2023 07:00
„Efling“ framhaldsskóla Laust fyrir hádegið þann 5. september síðastliðinn fengu kennarar, nemendur og allt starfslið við MA og VMA tilkynningu í pósti um að skólahald við skólana yrði fellt niður frá kl. 14:00 og boð um fund kl. hálf þrjú um framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Akureyri. Skoðun 7.9.2023 17:00
Vanhugsuð sameiningaráform Umræðan um mögulega sameiningu MA og VMA fer hátt þessa dagana sem von er. Sitt sýnist hverjum og sem betur fer halda flest sig við málefnaleg rök en ekki ómerkileg skot á milli skólanna tveggja eða samanburð sem á sér fáar röksemdir. Það er þó alls ekki einhlítt (því miður) og ég legg áherslu á að mér finnast skólarnir tveir merkilegar og mikilvægar stofnanir. Skoðun 7.9.2023 13:30
Mótmæli nemenda snúist fyrst og fremst um skólamenningu Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mótmæli nemenda við mögulegri sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri fyrst og fremst byggð á skólamenningu. Sameining skólanna myndi auka gæði bóknáms á Akureyri og efla þá. Innlent 7.9.2023 12:01
„Gat ekki ímyndað mér að ég gæti orðið leikari“ Leikarinn og myndlistarmaðurinn Kolbeinn Arnbjörnsson hefur mundað pensilinn frá unga aldri. Á sama tíma dreymdi hann um að verða leikari. Menning 7.9.2023 07:00
Mótmæltu sameiningu MA og VMA: „Ásmundur segðu af þér!“ Fjöldi nemenda Menntaskólans á Akureyri mótmæltu í dag fyrirhugaðri sameiningu skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Innlent 6.9.2023 20:23