Sjálfstæðisflokkurinn

Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætir fyrstur manna í Samtalið hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 og sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:10.

Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að vísa til skóla- og frístundaráðs tillögu Sjálfstæðisflokks þess efnis borgin færi þess á leit við menntamálaráðherra að samræmd próf yrðu tekin upp að nýju í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla. Skólayfirvöld í borginni vinna með menntamálaráðuneytinu að námsmati sem ætlað er að leysa samræmd próf af hólmi.

Ekki séð ástæðu til að leggjast gegn framgangi samgöngusáttmálans
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni, hefði ekki greitt atkvæði gegn afgreiðslu samgöngusáttmálans ef hún hefði verið viðstödd borgarstjórnarfund í gær.

„Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“
Diljá Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, notaði tækifærið á alþjóðlega jafnlaunadeginum, sem er í dag, til að fara hinum háðulegustu orðum um hina séríslensku jafnlaunavottun. Hún sagði jafnlaunavottunina kostnaðarsama og vitagagnslausa.

Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna
Borgarstjóri segir að uppfærður samgöngusáttmáli muni með tíð og tíma leiða til þess að auðveldara verður fyrir borgarbúa að komast leiðar sinnar. Sáttmálinn var samþykktur í gær en Sjálfstæðisflokkurinn var þríklofinn í afstöðu sinni. Borgarfulltrúi flokksins sem sat hjá við afgreiðslu segir að þau hafi viljað leyfa sér að standa með eigin sannfæringu.

Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, segir kostnaðinn af háum vöxtum og verðbólgu á Íslandi ekki leggjast jafnt á alla á Íslandi, heimili eða fyrirtæki. Úrræði yfirvalda eigi þó ekki eingöngu að miðast við lágtekjufólk.

Þeir borga sem nota!
Fá orð fá jafnoft að hljóma í jarmi sjálfstæðismanna um hinn digra tekjustofn sem ökutækjaeigendur geta verið.

Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála
Sjálfstæðisflokkurinn þríklofnaði í atkvæðagreiðslu um uppfærðan samgöngusáttmála í borgarstjórn í dag. Einn borgarfulltrúi greiddi atkvæði með uppfærslu sáttmálans, fjórir gegn henni og einn sat hjá.

Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann
Hann þolir ekki óheiðarleika en segir þó flesta vera ágæta. Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Brynjars Níelssonar og kynntist mýkri hliðinni hjá alþingismanninum fyrrverandi.

Ákvörðunin um brottflutning Yazan stendur
Dómsmálaráðherra segir að ákvörðun um brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans standi, þrátt fyrir að henni hafi verið frestað að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Það er ekki auðvelt að leggja mig í einelti“
Diljá Mist Einarsdóttir, lögfræðingur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa lært að eiga við eineltisseggi í grunnskóla og það hjálpi henni þegar ákveðinn hópur að fólki ræðst að henni í opinberri umræðu.

Hart tekist á og saka hvort annað um skattahækkanir
Formaður Samfylkingarinnar sakar stjórnvöld um að hækka skatta á ungt fólk og fjölskyldur og að reka ósjálfbæra atvinnustefnu í landinu. Forsætisráðherra segir Samfylkinguna á móti ekki boða neitt annað en skattahækkanir og aukin ríkisútgjöld.

Ótrúlegt ef Sjálfstæðismenn ætli að hoppa á Miðflokksvagninn
Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins finnst ótrúlegt að fólk ætli að hoppa á vagn Miðflokksins sé það ekki ánægt með stefnu Sjálfstæðisflokksins eða vinnu flokksins síðasta kjörtímabilið.

Að loknum flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins
Nýafstaðinn flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins var afar vel heppnaður. Með metþátttöku 370 fulltrúa varð fundurinn sá fjölmennasta frá upphafi. Kraftmikill og uppbyggilegur, þar sem fundarmenn fengu tækifæri til að ræða forgangsmál Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórninni, auk þess sem horft var til komandi kosninga.

Ráðherra og nýr nefndarformaður ósammála: „Almenningur á betra skilið“
Fjármálaráðherra og verðandi formaður fjárlaganefndar eru ósammála um hvort endurnýja skuli almenna heimild til að nýta séreignasparnað inn á húsnæðislán. Þingmaður Pírata segir stjórnarmeirihlutann með þessu senda misvísandi skilaboð til almennings sem lofi ekki góðu fyrir komandi þingvetur. Almenningur eigi betra skilið.

Telur Guðrúnu vilja halda hlífiskildi yfir ráðuneytinu
Almar M. Möller lögmaður gagnrýnir þau sjónarmið sem fram komu í grein Róberts Spanó frá í gær að ákvörðun Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um að Helgi Magnús Gunnarsson haldi stöðu sinni sem vararíkissaksóknari stangist á við lög. Hann telur dómsmálaráðherra skilgreina málið of þröngt að gefnum forsendum og í raun megi rekja allt tal um lögleysu til ríkissaksóknara sjálfs.

Hvers vegna borðar fólkið ekki bara kökur?
Spurningin hér að ofan er höfð eftir Marie Antoinette Frakkadrottningu. Hún missti þetta út úr sér, þegar soltinn lýðurinn heimtaði brauð til að seðja hungur sitt í aðdraganda frönsku byltingarinnar árið 1789.

Bjarkey undir árvökulu auga þungavigtar Sjálfstæðisflokks
Athyglisverðar mannabreytingar eru í nefndum Alþingis. Vart verður hjá því komist telja Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sérstaklega útsetta fyrir því að fá þungavigtaraðhald frá sínu eigin fólki í stjórnarliðinu.

Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél
Kristófer Már Maronsson, hagfræðingur og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir galla í reiknivél TR hafa valdið því að útreikningar hans á ráðstöfunartekjum einstæðrar móður á örorkubótum voru kolrangir. Hann hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum með greininni.

Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað í kvöld. Áætlað er að útsending hefjist klukkan 19:40.

Gögn sem ekki er hægt að TReysta
Í gær birti ég hér grein undir nafninu “Þið mótmælið… afleiðingum eigin gjörða”. Greinin var svargrein við hluta af grein formanns VR og þingmanns Flokks fólksins þar sem þau boðuðu fólk með sér til mótmæla á Austurvelli. Í upphafi greinar tók ég dæmi þeirra af einstæðri móður í erfiðri stöðu og reyndi að átta mig á forsendunum. Til þess notaði ég m.a. reiknivél sem var að finna á vef TR (Tryggingastofnunar Ríkisins), opinberrar stofnunar, til þess að reyna að áætla hvaða ráðstöfunartekjur einstæða móðirin hefði. Það voru mistök, enda komst ég að því eftir á að reiknivélin var gölluð.

Finnst hann ekki vera að sparka í liggjandi mann
Rithöfundurinn og athafnastjórinn Bragi Páll Sigurðarson hefur fengið sér nýtt húðflúr á hægri rasskinnina. Þar er Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í gervi Bjarnabófa úr myndasögunum um Andrés Önd og félaga. Bragi segist ekki upplifa sem svo að hann sé að sparka í liggjandi mann með húðflúrinu.

Hrókera í nefndum Alþingis
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mun taka við formennsku í fjárlaganefnd þingsins og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, í utanríkismálanefnd. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður nýr formaður efnahags og viðskiptanefndar.

Segir þrásetu ríkisstjórnarinnar stórskaðlega
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sér fátt eitt jákvætt í nýju fjárlagafrumvarpi. Þráseta ríkisstjórnarinnar sé þegar farna að valda verulegum skaða í efnahagsmálum.

„Hvað ef Katrín Jakobsdóttir hefði lent í sama máli?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra segir vandamálabransann orðið sérstakt vandamál á Íslandi. Það sé bransi sem gangi út á að finna sífellt nýtt bakslag til þess að geta beðið um meiri pening frá hinu opinbera. Þetta segir Sigmundur í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann segir stjórnmálamenn upp til hópa ekki standa í lappirnar gagnvart þessu og fleiri málum sem snúi að umbúðum og ímyndarmennsku.

Efast um núverandi forystusveit Sjálfstæðisflokksins
Tveir fyrrverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem var hafnað í prófkjöri fyrir þremur árum eru sammála um að núverandi forystu flokksins geti reynst erfitt að sannfæra fólk um að hún sé fær um að snúa genginu við. Flokkurinn er í sögulegum lægðum í skoðanakönnum og kosningum.

DD-listi gæti haft góð og slæm áhrif á Sjálfstæðisflokkinn
Stjórnmálafræðingur segir fólk geta túlkað það sem veikleikamerki leyfi Sjálfstæðisflokkurinn framboð DD-lista. Örfá fordæmi eru fyrir viðbótarlistum í íslenskri stjórnmálasögu.

Er skeið Sjálfstæðisflokksins liðið?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur náttúrulega ekkert erindi í íslenskri pólitík annað en að standa vörð um hagsmuni ríkasta 10% þjóðarinnar. Hann hefur aldrei haft annað erindi og allt frá stofnun hans hefur hann verið helsta hindrun framfara í landinu

Málið sem þolir ekki ljósið
Fyrir einu og hálfu ári var reynt að keyra lagafrumvarp um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum gagnvart innlendri lagasetningu í gegnum Alþingi undir forystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Vonazt var til þess að málið vekti sem minnsta athygli. Það mistókst. Til stendur nú að reyna það aftur.

Bolli baðst afsökunar eftir orrahríð dagsins
Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um stúlkur í Sjálfstæðisflokknum. Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna segir ummælan dæma sig sjálf en tekur afsökunarbeiðninni og býður Bolla aftur velkominn í flokkinn.