Styttur og útilistaverk
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Spyr hvort atlot séra Friðriks hafi verið eins og atlot ættingja Formaður Miðflokksins segist hafa miklar áhyggjur af framgöngu almennings við séra Friðrik Friðriksson heitinn, en til stendur að taka niður styttu af honum sem stendur við Lækjargötu. Hann veltir fyrir sér hvort atlot séra Friðriks, við unga drengi, hafi verið sama eðlis og atlot ættingja við börn sem þeim þykir vænt um. Innlent 28.11.2023 09:04
Fríska upp á Landnám og slíta sjóði Þórs Til stendur að endurgera minnisvarða um landnám Íslands sem stendur á grassvæði nærri Austurveri við Háaleitisbraut í Reykjavík og hefur mikið látið á sjá á síðustu árum. Fjármagn úr minnisvarðasjóði Þórs Sandholt verður nýtt til verksins og sjóðum í kjölfarið slitið. Innlent 28.11.2023 07:01
„Gott að geta leyst flókin og erfið mál í góðri sátt“ Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að fjarlægja styttu af séra Friðriki Friðrikssyni af Lækjargötu og koma henni fyrir í listaverkageymslum Listasafns Reykjavíkur. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir ánægjulegt að leysa málið í góðri sátt. Innlent 23.11.2023 21:12
Styttan af séra Friðriki tekin niður Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að styttan af séra Friðriki Friðrikssyni í Lækjargötu verði tekin niður og nú flutt og fundinn staður í listaverkageymslum Listasafns Reykjavíkur. Innlent 23.11.2023 13:44
Hótanir og áreiti vegna vegglistaverks: „Ef ég gæti tekið þig niður og barið þig þá myndi ég gera það“ Listakonan Julia Mai Linnéa Maria hefur unnið að listaverki við Vegamótastíg með skilaboðunum „Frjáls Palestína“ og „Vopnahlé strax“. Hún heldur ótrauð áfram þrátt fyrir áreiti og skemmdir á verkinu. Innlent 19.11.2023 22:41
Helgi segir „woke-æði“ ráða því að séra Friðriki er steypt af stalli Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við því að styttan af séra Friðriki Friðrikssyni verði fjarlægð. Innlent 10.11.2023 14:06
Samstaða í borgarráði um örlög styttunnar Borgarráð samþykkti í morgun tillögu um að leitað verði umsagna KFUM og KFUK og Listasafns Reykjavíkur um hvort fjarlægja eigi styttuna af séra Friðriki sem stendur á horni Amtmannsstígs og Lækjargötu. Innlent 9.11.2023 12:01
Minnisvarði um Fiskidaginn mikla verði afhjúpaður á næsta ári Sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar vill láta reisa minnisvarða um bæjarhátíðina Fiskidaginn mikla sem afhjúpaður yrði á næsta ári. Greint var frá því um síðustu helgi að ákveðið hefði verið að hátíðin hefði nú verið haldin í síðasta sinn. Innlent 9.11.2023 08:37
Séra Friðrik situr sem fastast og fylgist með í Lækjargötu Borgarráð hefur verið upptekin við að ræða fjárhagsáætlun og kom því ekki við að ræða „Stóra styttumálið“ á fundi ráðsins í gær. Umræða um tillögu þess að styttan verði fjarlægð frestast því um viku. Innlent 3.11.2023 15:06
Edda sómir sér vel í Eyjafirði þó bændur séu ekki allir sáttir við júgrið Kýrin Edda, stærsta kýr landsins sómir sér vel á stalli í Eyjafirði en um er að ræða risa listaverk eftir norska listakonu, sem býr í Kristnesi. Eitt komma tvö tonn af járni fóru í smíði Eddu. Innlent 1.11.2023 19:17
Séra Friðrik hulinn svörtu klæði Vegfarandi í miðbæ Reykjavíkur síðdegis á laugardag varð þess var að umtöluð stytta af séra Friðrik Friðikssyni hafði verið hulin með svörtu klæði. Til umræðu er að fjarlægja styttuna af horni Lækjargötu og Amtmannsstígs. Innlent 30.10.2023 11:48
„Eitt mest krípí shit sem ég hef heyrt lengi“ Tréstytta af nöktum dreng, sem kallast Drumbur, var í miklu uppáhaldi hjá séra Friðrik Friðrikssyni, stofnanda KFUM og K. Í síðasta viðtalinu sem tekið var við Friðrik sagði hann Drumb „mjög óþekkan“ og að hann „fengist ekki til að fara í að fara í nokkra spjör.“ Jón Gnarr gagnrýnir að styttan hafi fengið að standa í svokallaðri Friðriksstofu hjá KFUM. Innlent 28.10.2023 09:24
Ótrúlega algengt að styttur séu færðar Ekki er útilokað að styttan af séra Friðriki og drengnum verði færð úr Lækjargötu, en fleiri hafa bæst í hóp þeirra sem vilja styttuna burt eftir að greint var frá því að hann hafi leitað á drengi. Sagnfræðingur segir alþekkt að styttur á Íslandi séu færðar. Innlent 27.10.2023 20:56
Borgarstjóri útilokar ekki að styttan verði færð Borgarstjóri útilokar ekki að styttan af séra Friðriki og drengnum verði færð úr Lækjargötu. Upplýsingum verði safnað um málið og líklega tekið fyrir á næsta fundi borgarráðs. Innlent 27.10.2023 12:07
Fjölbreyttar hugmyndir hlutu kosningu: „Breiðholt er náttúrlega eitt af flottustu svæðum heims“ Sextíu og tvær hugmyndir hlutu kosningu í verkefninu Hverfið mitt, sem lauk í síðustu viku. Innlent 2.10.2023 23:14
Ein vinsælasta veggmynd miðborgarinnar horfin Verslunarstjóri við Skólavörðustíg harmar mjög að málað hafi verið yfir eina vinsælustu veggmynd miðborgarinnar, að því er virðist í óleyfi. Vinsældir myndarinnar voru slíkar að oft myndaðist löng biðröð ferðamanna fyrir framan hana. Innlent 19.9.2023 20:00
Latur í Þorlákshöfn mun bjóða bæjarbúa og gesti velkomna Bæjaryfirvöld í Ölfus hafa samþykkt að sögulegur steinn í Þorlákshöfn, sem kallaður er Latur og var lengi einn af siglingarmerkjum í bænum, verði fundinn nýr staður við innkomuna í bæinn og steininum þannig gert hærra undir höfði. Innlent 15.9.2023 12:59
Snöruðu Héðni upp á gamla stallinn við Hringbraut Búið er að koma Héðni Valdimarssyni aftur fyrir við Hringbraut þar sem hann hafði staðið keikur í áratugi. Styttan var tekin niður fyrir fimm árum síðan, svo athygli vakti. Innlent 5.9.2023 10:59
Ísfirðingar útvega lóð undir lendingarstað fyrir geimverur Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tillögu nefndar um stofnun lóðar undir listaverkið Lendingarstað fyrir geimskip á Seljalandsdal fyrir ofan bæinn. Innlent 3.9.2023 08:00
Lóa boratoríum glæðir gamlar styttur lífi Lóa Hjálmtýsdóttir, listakona og söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast er margt til lista lagt. Á morgun opnar hún listasýningu þar sem hún glæðir lífi í gamlar styttur. Lífið 9.8.2023 15:24
Magnaður ævintýragarður á Akureyri þar sem er ókeypis inn Það er mikið ævintýri að skoða Ævintýragarðinn við Oddeyrargötu á Akureyri því þar hefur eigandinn smíðað ýmsar skemmtilegar persónur úr þekktum ævintýrum og dreift um garðinn. Gamlir tannburstar eigandans eru í aðalhlutverki á einu verkanna. Sjón er sögu ríkari. Innlent 8.8.2023 20:07
Geirfuglinn kominn á sinn stað Listaverkið Geirfugl eftir Ólöfu Nordal er aftur komið á sinn stall eftir að hafa fallið niður við högg í mikilli ísingu í vetur. Menning 6.7.2023 23:15
Lengsta regnbogagata landsins á Akranesi Lengsta regnbogagata landsins var máluð í miðbæ Akraness í gær. Forseti hinsegin Vesturlands segir mikilvægt sem aldrei fyrr að fagna fjölbreytileikanum. Innlent 4.7.2023 21:01
Regnboginn fer hvergi og verður lagður með slitsterku efni Regnbogi verður áfram á Skólavörðustíg í Reykjavík og stendur til leggja hann með slitsterku efni í sumar. Innlent 7.6.2023 14:33
Freyja gerð ódauðleg með styttu í Osló Reist hefur verið stytta af vandræðarostungnum Freyju í Osló, höfuðborg Noregs. Freyja var aflífuð í ágúst á síðasta ári vegna ágengni almennings og ferðamanna þar sem hún dvaldi á smábátabryggju nærri Osló. Erlent 30.4.2023 07:46
Brjóstgóð stytta fer fyrir brjóstið á Ítölum Stytta af hafmeyju í héraðinu Puglia, sunnarlega á Ítalíu, hefur vakið mikla athygli og segja einhverjir hana vera of ögrandi. Styttan var gerð af listnemum í skóla í nágrenninu. Erlent 29.4.2023 08:15
Hneykslaðir foreldrar hröktu skólastjóra burt vegna Davíðsstyttunnar Skólastjóri grunnskóla í Flórída í Bandaríkjunum sá sér þann kost vænstan að segja af sér vegna kvartana foreldra undan því að börnum þeirra hafi verið sýnt klám þegar þau sáu myndir af Davíðsstyttunni við kennslu í listasögu. Erlent 25.3.2023 08:55
Metverð fékkst fyrir skúlptúr Einars Jónssonar á uppboði Metverð fékkst fyrir bronsskúlptúrinn Þróun eftir Einar Jónsson á uppboði hjá uppboðshúsi Gallerí Foldar sem lauk í gær. Menning 22.3.2023 07:38
„Planið er að yfirtaka Ísland“ Vinsælum verkum listamannsins Juan fjölgar sífellt hér á landi en skreytingar hans á veggjum, grindverkum og húsum hafa vakið mikla athygli. Verk hans er að finna víða á landinu og leitar hann stöðugt að lausu plássi. Markmiðið er að eiga verk alls staðar og halda áfram að stækka. Lífið 7.3.2023 08:00
Rússneski fáninn málaður á Litlu hafmeyjuna Enn og aftur hafa skemmdarverk verið unnin á einu helsta kennileiti dönsku höfuðborgarinnar. Rússneski fáninn var í nótt málaður á steininn þar sem Litla hafmeyjan situr við Löngulínu. Erlent 2.3.2023 08:42