
Sælgæti

Sigurjón og Birna María til Nóa Siríus
Sigurjón Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Nóa Síríus hf. og þá hefur Birna María Másdóttir verið ráðin markaðsstjóri fyrirtækisins.

Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom
Góa hefur keypt allan tækjabúnað Omnom og mun hefja framleiðslu á Omnom súkkulaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.

Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti
Sigurjón Ernir Sturluson ofurhlaupari og afreksíþróttamaður segir samfélagið á kolrangri leið þegar kemur að heilsu fólks. Sigurjón, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir hinar raunverulegu öfgar í heilsu vera hreyfingarleysi, að borða gjörunnin matvæli og sykur. Fjöldi fólks sé að rífa sig niður fyrir eitthvað sem í grunninn sé ekki þeim að kenna:

Er Dúbaí-súkkulaðið virkilega svona gott?
Nammigrísir landsins eru óðir í nýtt súkkulaðistykki sem selst upp í verslunum á örfáum klukkustundum. En er þetta súkkulaði virkilega svona gott?

Dúbaí-súkkulaðið umtalaða: „Þetta er galin sala“
Líkt og oft áður taka ákveðin trend yfir samfélagsmiðlana TikTok og Instagram. Nýjasta æðið er svokallað Dúbaí-súkkulaði sem á rætur sínar að rekja til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. En hvað er svona sérstakt við þetta súkkulaði?

Nammið rýkur áfram upp í verði
Kúlusúkk og þristar hafa hækkað um ríflega fjórðung í verði í lágvöruverðsverslunum á einu ári. Kílóverðið er þó enn lægra en á vinsælasta súkkulaði stærri framleiðanda sem einnig hækkar og hækkar í verði.

Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana
Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Freyju og Góu blöskrar ummæli frá Nóa Siríus
Framkvæmdastjóri hjá sælgætisframleiðandanum Freyju skilur ekkert í ummælum framkvæmdastjóra samkeppnisaðilans Nóa Siríus þess efnis að síðarnefnda fyrirtækið sé það eina sem framleiði íslenskt konfekt á meðan samkeppnisaðilar þeirra flytji það inn.

Verðhækkunin nemi ekki því sem Nói Síríus fái á sig
„Þetta eru fordæmalausir tímar sem við erum að upplifa, og við þurfum að bregðast við með einhverjum hætti,“ segir Hinrik Hinriksson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Nóa Siríus.

Anna Fríða snýr sér að sælgætinu
Anna Fríða Gísladóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra markaðssviðs hjá sælgætisframleiðandanum Nóa Siríus. Hún greinir frá vistaskiptunum á Instagram.

Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann
Fyrirtæki í eigu Helga Vilhjálmssonar, Helga í Góu, styrktu forsetaframboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, um fjögur hundruð þúsund krónur. Framboðið kostaði um 774 þúsund krónur.

Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala
Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega.

Efna til þjóðaratkvæðis um besta nammið
Krambúðin efnir til þjóðaratkvæðis um besta nammið. Leikurinn felur í sér kosningu á besta namminu í fjórum algengum aðstæðum í íslenskri nammi-menningu. Það eru sakbitna sælan, sumarbústaðurinn, stefnumótið og bragðarefurinn.

Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna
Eigandi hunds sem veiktist alvarlega, eftir að hafa étið sendingu frá tryggingafélagi sem kom inn um bréfalúguna, bendir á að fólk viti aldrei hver sé hinu megin við dyrnar, hvort sem það er gæludýr eða barn með bráðaofnæmi. Því sé ekki ráðlegt að senda fólki mat í pósti.

Blár Opal seldist á fimmtán þúsund
Í gær varð uppi fótur og fit á Feisbúkksíðunni Braskogbrall.is, þegar auglýstur var til sölu pakki af Bláum Opal frá árinu 2002. Auglýst verð var fimmtán þúsund krónur.

Nýi Draumurinn slær í gegn
Nýr og einstaklega bragðgóður Draumur kom í verslanir í upphafi vikunnar en um er að ræða Fylltan lakkrís Draum. Þar með eru í boði þrjár tegundir af Drauma súkkulaði, upprunalegi Lakkrís Draumurinn, Sterkur Draumur og sá nýjasti.

Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust
Páskaegg frá súkkulaðiframleiðandanum Nóa Síríus eru í uppáhaldi flestra landsmanna samkvæmt nýrri könnun Prósent. Næst á eftir koma páskaegg frá Freyju og síðan Góu.

Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar
Verð á súkkulaði hefur víða hækkað miðað við janúarmánuð, samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Verð á súkkulaði frá Nóa Síríus hefur hækkað mest, en vörur frá Freyju hafa hækkað minnst í verði. Sumar þeirra hafa raunar lækkað í verði á tímabilinu.

Fjandinn laus þegar málshættina vantar
Framkvæmdastjóri hjá Nóa Síríus segir páskaeggjavertíðinni senn lokið hjá fyrirtækinu, og að síðustu egg fari brátt úr húsi á lager fyrirtækisins. Að mörgu þurfi að huga við gerð eggjanna, en mikilvægastir séu málshættirnir. Fjarvera þeirra í eggjum landsmanna geti jafnvel eyðilagt hátíðarnar fyrir einhverjum.

Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni
Elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi, Freyja, var stofnuð árið 1918. Á sögulegum og krefjandi tíma ákváðu nokkrir félagar að nú væri frábær tími til að setja á laggirnar sælgætisgerð. Á þessum tíma var Ísland að öðlast fullveldi frá Danmörku, spænska veikin gekk yfir Reykjavík, fyrri heimsstyrjöldinni var að ljúka og ofan á allt gaus ein stærsta eldstöð landsins, Katla.

„Nammið í rútunni vont“
Lítið fer fyrir þingmönnum í ræðupúlti Alþingishússins því nú fer í hönd kjördæmavika. Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður, fær ekki að fara með Sjálfstæðisflokknum hringferð um landið.

Páskaegg fyrir sanna bragðarefi
Tíminn líður sannarlega hratt þegar við höfum eitthvað að hlakka til og það þýðir að fyrir bragðarefi landsins eru páskarnir rétt handan við hornið, þó enn sé rúmur mánuður til stefnu.

Nammigrísir í áfalli yfir verðinu
Verð á hinu vinsæla sælgæti Nóa kroppi er tæplega þrjú þúsund krónur fyrir kílóið í verslunum Nettó. Allt ætlaði um koll að keyra í umræðuhópi þegar einn neytandinn taldi ranglega að verðið væri komið yfir fimm þúsund krónur kílóið.

Spennandi snúningur á ljúffengri klassík
Það er fátt klassískara en Síríus rjómasúkkulaðið sem lifað hefur góðu lífi meðal þjóðarinnar í yfir 90 ár.

Bragðveisla fyrir sanna sælkera
Nói Síríus byrjar nýja árið með hvelli og sannir sælkerar gleðjast yfir hverri nýjunginni á fætur annarri. Sú nýjasta í röðinni er Síríus Pralín, dökkt Barón súkkulaði, með ómótstæðilegri bananafyllingu.

Kalla inn Nóa Kropp vegna hnetusmits
Ákveðið hefur verið að kalla inn 200 gramma pakkningar af Nóa Kroppi. Ástæðan er blöndun sem átti sér stað við pökkun sælgætisins, sem veldur því að heslihnetur komust í kroppið.

Áramótasprengjur sem vekja upp sanna nostalgíu
Fyrir um áratug síðan buðu Banana- og Jarðarberjasprengjurnar frá Nóa Síríus bragðlaukum landsmanna upp í dans og slógu svo sannarlega í gegn.

Á leiðinni til útlanda í boði Nóa Konfekts
Í október blés Nóa Konfekt í lúðra og kynnti til sögunnar ferðaleik þar sem í vinning voru þrjú 400.000 kr. gjafabréf frá Icelandair.

Nota súran brjóstsykur til að koma í veg fyrir kvíðakast
Nýlega fór myndband á mikið flug á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem kona talar um hvernig hún kemur í veg fyrir að hún fái kvíðakast. Ef henni líður eins og hún sé að fá kvíðakast fær hún sér súran brjóstsykur.

Veldu uppáhaldsmolana í konfektkassann þinn
Jólin eru tími hefða og hátíðleika og Nóa konfekt er fyrir löngu orðið ómissandi hluti af jólahefðum stórs hluta þjóðarinnar.