Fótbolti „
99 100 101 102 103 104 105 106 107 … 334 ›
„Hefðum kannski átt að gera þetta aðeins hraðar, bæði í fyrri og seinni hálfleik“ Ásdís Karen Halldórsdóttir spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli Vals gegn Selfossi í kvöld. Valur hefur byrjað mótið vel og eru sem stendur í 2. sæti deildarinnar, en Þróttur R. situr í efsta sætinu með betri markatölu. Íslenski boltinn 10.5.2023 21:55
Inter í frábærri stöðu eftir magnaða byrjun á „útivelli“ Inter og AC Milan mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn var skráður sem heimaleikur AC Milan en bæði lið spila leiki sína á San Siro-vellinum í Mílanó. Það var hins vegar Inter sem vann eftir tvö mörk snemma leiks, lokatölur 0-2. Fótbolti 10.5.2023 18:31
Lundúnaliðin unnu stórsigra Chelsea og Arsenal unnu bæði stórsigra í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Bæði lið eru enn í bullandi toppbaráttu en Englandsmeistarar Chelsea eiga leik til góða á Manchester United sem situr á toppi deildarinnar. Enski boltinn 10.5.2023 20:30
Ingibjörg áfram taplaus á toppnum Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur í Vålerenga eru áfram taplausar á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Røa. Fótbolti 10.5.2023 19:15
Fjórir Valsarar í liði fyrsta fjórðungs Bestu deildarinnar Strákarnir í Þungavigtinni gerðu upp fyrsta fjórðung í Bestu deild karla og völdu bestu menn og lið fjórðungsins. Þá var veikasti hlekkurinn einnig valinn. Víkingurinn Oliver Ekroth var bestur að mati strákanna og Hlynur Freyr Karlsson Valsari var valinn sá besti ungi eftir mikla samkeppni frá Ísaki Andra Sigurgeirssyni í Stjörnunni. Íslenski boltinn 10.5.2023 18:01
„Það stoppaði bíll þarna og þurfti að bíða á meðan 80 naktir menn hlupu“ Ingimar Helgi Finnsson eða litla flugvélin eins og hann er oft þekktur mætti til Sverris Mar í hlaðvarpið „Ástríðan: hetjur neðri deildanna“ á dögunum og ræddi þar sinn feril í neðri deildum Íslands í fótbolta. Eins og gengur og gerist þá eru til ansi margar góðar sögur af liðum í neðri deildum og Ingimar fór yfir eina þeirra þar sem lið Árborgar á það til að fara í nektarhlaup. Íslenski boltinn 9.5.2023 10:00
Ítalskur níðsöngur á Hlíðarenda Það er alþekkt að stuðningsfólk íþróttaliða syngi söngva til að styðja lið sitt og jafnvel til að ögra andstæðingnum. Það er þekkt að sama laglínan fari landanna á milli en það er þó sjaldan sem það er fréttnæmt, fyrr en nú. Körfubolti 9.5.2023 09:02
„Held að íslenski fótboltinn sé ekki langt eftir á“ „Lífið utan fótboltans er mjög gott, er að koma mér fyrir og líður mjög vel þarna,“ sagði Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður norska knattspyrnuliðsins Rosenborg en hann er staddur hér á landi og ræddi við Stöð 2 og Vísi um veruna í Noregi. Fótbolti 9.5.2023 07:01
Búinn að fá nóg af því að vera bendlaður við bölvun tengda Man City Yaya Touré, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, er búinn að fá sig fullsaddan af því að fólk sé að bendla hann við umræðu um „bölvun“ sem fylgi enska knattspyrnuliðinu í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 8.5.2023 23:31
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 1-2 | Meistararnir mörðu nýliðana Íslandsmeistarar Breiðabliks þurftu að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti nýliða Fylkis í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 2-1, Breiðablik í vil, og óhætt að tala um torsóttan sigur gestanna. Íslenski boltinn 8.5.2023 19:30
„Djöfull er ég fúll“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var að vonum svekktur eftir að ÍBV hafði haldið hreinu í 95 mínútur gegn Víking, heitasta liði landsins, en tapa samt. Íslenski boltinn 8.5.2023 22:30
Dýrlingarnir sem gott sem fallnir eftir tap í Skírisskógi Nottingham Forest vann 4-3 sigur á botnliði Southampton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Dýrlingarnir eru svo gott sem fallnir eftir tapið á meðan Forest lyfti sér upp úr fallsæti. Enski boltinn 8.5.2023 21:06
Slæmt tap gæti hafa kostað Panathinaikos titilinn | Kristian Nökkvi allt í öllu Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Panathinaikos töpuðu fyrir Olympiacos í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tapið þýðir að Panathinaikos á litla möguleika á að vinna deildina þegar ein umferð er eftir. Kristian Nökkvi Hlynsson var magnaður í 4-2 sigri Jong Ajax í Hollandi. Fótbolti 8.5.2023 20:30
Amanda skoraði og Hlín lagði upp í stórsigri | Guðrún á sigurbraut Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Íslendingarnir í deildinni létu að sér kveða. Fótbolti 8.5.2023 19:20
FC Kaupmannahöfn tapaði og missti toppsætið Íslendingalið FC Kaupmannahöfn tapaði 3-2 fyrir FC Nordsjælland í eina leik dagsinsí dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Með sigrinum fór Nordsjælland upp á topp deildarinnar á kostnað FCK. Fótbolti 8.5.2023 19:16
Sjáðu glæsimark Arons í dýrmætum sigri | Arnór og Sveinn Aron á skotskónum Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag. Þeir Aron Bjarnason, Arnór Sigurðsson og Sveinn Aron Guðjohnsen voru allir á skotskónum. Mark Arons var í glæsilegri kantinum. Fótbolti 8.5.2023 19:01
Everton kláraði Brighton í fyrri hálfleik Everton vann magnaðan 5-1 útisigur á Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gestirnir frá Bítlaborginni eru í bullandi fallbaráttu á meðan Brighton lætur sig dreyma um að spila í Evrópu á næstu leiktíð. Enski boltinn 8.5.2023 18:30
Aron Einar nældi í silfur í Katar Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson spilaði fyrri hálfleik í 2-0 sigri Al Arabi á Al Sadd í lokaumferð katörsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 8.5.2023 18:16
Pep ósáttur með vítavesen gærdagsins Manchester City vann í gær góðan 2-1 sigur á Leeds sem færir liðið einu skrefi nær Englandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. Pep Guardiola var þó ekki yfir sig ánægður eftir leik í gær. Enski boltinn 7.5.2023 07:01
Cristiano Ronaldo komst upp fyrir Messi Cristiano Ronaldo er launahæsti knattspyrnumaður heims samkvæmt nýrri úttekt Forbes en hann hækkaði sig mikið í launum með því að komast til Sádí-Arabíu. Fótbolti 3.5.2023 14:31
Sveindís Jane þriðji Íslendingurinn til að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu Sveindís Jane Jónsdóttir er þriðji Íslendingurinn sem kemst í úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Hin tvö eru Eiður Smári Guðjohnsen og Sara Björk Gunnarsdóttir. Fótbolti 2.5.2023 07:01
Rifust á vellinum eftir sigurinn gegn Aston Villa Samherjarnir Bruno Fernandes og Casemiro enduðu 1-0 sigur Manchester United á Aston Villa um helgina með léttum rökræðum út á velli áður en þeir fögnuðu með samherjum sínum. Enski boltinn 1.5.2023 23:30
Fagna sigrinum með því að bjóða leikmönnum Wrexham til Syndaborgarinnar Hollywood-stjörnurnar og eigendur knattspyrnuliðsins Wrexham, Rob McElhenney og Ryan Reynolds, hafa ákveðið að bjóða leikmönnum liðsins til Las Vegas eftir að liðið sigraði ensku E-deildina. Enski boltinn 1.5.2023 23:01
Skoraði en fór svo meiddur af velli Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í rúmensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hann meiddist hins vegar einnig í leiknum. Fótbolti 1.5.2023 22:30
„Við vorum heppnar“ „Þetta var erfiður leikur með framlengingunni. Ég hélt við værum að fara í vítaspyrnukeppni en við unnum,“ sagði Jill Roord, einn af markaskorurum Wolfsburg í ótrúlegum 3-2 sigri liðsins á Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 1.5.2023 21:30
Maddison brenndi af víti í fallslag Leicester og Everton Leicester City og Everton gerðu 2-2 jafntefli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. James Maddison, leikmaður Leicester, brenndi af vítaspyrnu í stöðunni 2-1 fyrir Leicester. Enski boltinn 1.5.2023 21:03
Sú besta sneri aftur þegar Barcelona tryggði sér titilinn Barcelona tryggði sér sigur í La Liga, spænsku úrvalsdeild kvenna, með þægilegum 3-0 sigri á Huelva. Það sem meira er, Alexia Putellas – besta knattspyrnukona heims, sneri aftur á völlinn eftir margra mánaða fjarveru. Fótbolti 1.5.2023 20:30
Leeds íhugar að skipta aftur um stjóra Það hefur hvorki gengið né rekið hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Leeds United á leiktíðinni. Liðið mátti þola stórt tap gegn nýliðum Bournemouth um liðna helgi og nú íhuga forráðamenn félagsins að reka Javi Gracia. Sá hefur aðeins verið í starfi í 10 vikur. Enski boltinn 1.5.2023 20:01
Sjáðu mörkin: Sveindís Jane og Wolfsburg í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir framlengingu Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 3-2 sigur á Arsenal í leik sem þurfti að framlengja. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 118. mínútu leiksins. Fótbolti 1.5.2023 16:15
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA – Keflavík 1-2 | Gestirnir skelltu Akureyringum aftur á jörðina Keflavík vann sterkan sigur á Þór/KA fyrir norðan í dag í 2. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn endaði 1-2 fyrir Keflavík en liðið spilaði vel í dag og áttu svör við flestum aðgerðum heimakvenna. Íslenski boltinn 1.5.2023 15:15