
Erlend sakamál

Clifford handtekinn
Kyle Clifford, maðurinn sem leitað var í dag vegna gruns um að hafa átt þátt í dauða þriggja kvenna er fundinn. Lögreglan í Hertfordshire handtók Clifford og kom honum undir læknishendur síðdegis í dag.

Talinn hafa myrt fjölskyldu íþróttafréttamanns BBC
Fréttastofa BBC hefur staðfest að konurnar þrjár sem Kyle Clifford er talinn hafa drepið fyrr í dag, eru fjölskylda starfsmanns þeirra, John Hunt. Þrjár konur fundust alvarlega særðar á heimili í Ashlyn Close í Bushey í Herfordshire í Englandi í gær, og eru nú látnar. Lögregla leitar enn árásarmannsins.

Lögregla leitar manns með lásboga eftir dauða þriggja kvenna
Lögregluyfirvöld í Hertfordshire á Englandi leita nú manns sem þau segja mögulega vopnaðan lásboga. Hafa þau varað fólk við því að nálgast mannninn ef hann verður á vegi þeirra.

Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar
Zaniar Matapour, sem myrti tvo og særði fjölda annarra á skemmtistað hinsegin fólks í miðborg Óslóar í júní árið 2022, hefur verið dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar. Það er lengsti fangelsisdómur í norskri réttarsögu.

Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum
Sex menn hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa þann þrettánda mars síðastliðinn fellt tré sem hafnaði á bíl akandi vegfaranda sem lést síðar af sárum sínum. Atvikið átti sér stað í grennd við Slagelse á Sjálandi.

Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar
Philip Westh, 33 ára Dani, hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 og fjölda kynferðisbrota.

Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng
Philip Westh, 33 ára Dani, hefur verið sakfelldur fyrir að myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016. Hann er einnig sekur um að hafa reynt að nauðga henni og fjölda brota gegn tveimur öðrum stúlkum.

Lýtalæknir handtekinn hálfu ári eftir að eiginkonan lést eftir aðgerð
Benjamin Jacob Brown, lýtalæknir í Flórída í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa drepið eiginkonu sína af gáleysi í nóvember í fyrra.

Félagi í Norðurvígi grunaður um stunguárás á tólf ára dreng
Á tæpri viku hafa tvær stunguárásir verið gerðar i sömu verslunarmiðstöð í borginni Oulu í Finnlandi. Karlmaður var handtekinn í vikunni í tengslum við aðra þeirra, grunaður um að hafa stungið tólf ára dreng. Árásirnar eru rannsakaðar sem hatursglæpir.

Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga
Tveir táningar í Flórída-ríki Bandaríkjanna hafa verið handteknir eftir að lögregla bar kennsl á þá í myndefni úr öryggismyndavél þar sem að þeir sáust sparka í hurðar á húsum ókunnugra.

Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum
Joe Biden Bandaríkjaforseti segist ætla að virða niðurstöðu kviðdóms sem sakfelldi Hunter son hans fyrir skotvopnalagabrot í gær. Hunter Biden gæti jafnvel átt yfir höfði sér fangelsisdóm.

Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni
Tveir tólf ára drengir hafa verið fundnir sekir um að hafa stungið nítján ára gamlan mann til bana í almenningsgarði í bænum Wolverhampton í Bretlandi í nóvember í fyrra.

Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli
Verjandi Hunters Biden, sonar Bandaríkjaforseta, segir að hann beri ekki vitni við réttarhöldin yfir honum vegna skotvopnalagabrots. Nánustu aðstandendur hans hafa borið vitni um glímu hans við fíkn við réttarhöldin.

Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann
Rex Heuermann verður ákærður fyrir tvö manndráp til viðbótar í dag fyrir dómstóli í New York en ákærurnar gegn Heuermann verða því sex talsins. Þetta herma heimildir fréttastofu News 12 á Long Island.

Amanda Knox dæmd fyrir meiðyrði þrettán árum eftir sýknu
Dómstóll í Flórens á Ítalíu sakfelldi Amöndu Knox fyrir meiðyrði í dag tæplega þrettán árum eftir að hún var sýknuð af ítölskum áfrýjunardómstóli þegar hún var sökuð um að hafa orðið meðleigjanda sínum, Meredith Kercher, að bana á Ítalíu árið 2007.

Stunguárás á fulltrúa þýsks fjarhægriflokks
Fulltrúi þýska fjarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) var stunginn í árás í borginni Mannheim í suðvesturhluta Þýskalands seint í gær. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að lögreglumaður var stunginn til bana í mótmælum gegn íslam í borginni.

Réttarhöld yfir syni Biden hafin
Alríkissaksóknarar lýstu Hunter Biden, syni Bandaríkjaforseta, sem dópista þegar réttarhöld yfir honum vegna skovopnalagabrota hófust í dag. Biden er ákærður fyrir að ljúga um fíknivanda sinn þegar hann keypti sér skammbyssu fyrir sex árum.

Nýfætt barn sem fannst í janúar alsystkini annarra yfirgefinna barna
Nýfætt barn sem fannst yfirgefið í Lundúnum í janúar, þegar hitastig var undir frostmarki, er alsystkini tveggja ungabarna sem einnig fundust yfirgefinn í stórborginni.

Ákærður fyrir að fjármagna fjarhægri dagblað með peningaþvætti
Fjármálastjóri bandaríska fjarhægri dagblaðsins Epoch Times var handtekinn og ákærður fyrir aðild að stórfelldu peningaþvættismáli. Blaðið sjálft er sagt hafa verið fjármagnað að miklu leyti með ágóða af peningaþvættinu.

Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn
Tilgátu um að Ruja Ignatova, búlgarskur rafmyntarsvikahrappur, hafi verið myrt af búlgörsku mafíunni og líki hennar varpað í Jónahaf er fleygt fram í nýju hlaðvarpi breska ríkisútvarpsins BBC. Ignatova var vinkona forsetaframbjóðandans Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur.

„Við búum í fasísku ríki“
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og dæmdur afbrotamaður, segist hafa verið sakfelldur fyrir skjalafals af pólitískum ástæðum. Þetta sagði Trump í ræðu sem hann hélt í dag. Bandamenn hans hafa gagnrýnt sakfellinguna harðlega og heita hefndum.

Ólíklegt að Trump fari í fangelsi
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var í gær sakfelldur fyrir skjalafals til að hylma yfir greiðslur til klámstjörnu fyrir forsetakosningarnar 2016, með því markmiði að afvegaleiða kjósendur. Ólíklegt þykir að Trump verði dæmdur í fangelsi, þó það sé möguleiki, en lögmaður hans segir að forsetinn fyrrverandi ætli að áfrýja sakfellingunni.

Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli
Kviðdómur í New York sakfelldi Donald Trump fyrir að falsa skjöl til þess að hylma yfir greiðslur til klámstjörnu fyrir forsetakosningarnar árið 2016. Trump, sem var fundinn sekur í öllum ákæruliðum, segir niðurstöðuna „skammarlega“.

Kviðdómendur leggjast undir feld í dag
Kviðdómendur í þagnargreiðslumál Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York munu leggjast undir feld í dag. Í kjölfarið munu þeir komast að niðurstöðu í fyrsta sakamáli Bandaríkjanna gegn fyrrverandi forseta.

Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir fullyrðingar Donalds Trump og bandamanna hans að alríkislögreglan FBI hafi fengið heimild til þess að skjóta hann þegar hún gerði húsleit hjá honum stórhættulegar. Fullyrðingarnar byggjast á stöðluðu orðalagi í tengslum við húsleitir.

Nemandinn ákærður fyrir tilraun til manndráps
Norskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps í ágúst í fyrra þegar hann réðst á Ingunni Björnsdóttur, kennara við Oslóarháskóla í Noregi. Karlmaðurinn viðurkennir að hafa veitt Ingunni og samkennara hennar áverka með hnífaárás en neitar að hafa ætlað að ráða þeim bana.

Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann
Dómstóll í Moskvu komst að þeirri niðurstöðu að rússneska rannsóknarlögreglan þurfi ekki að rannsaka tvær tilraunir til þess að ráða fangelsaðan stjórnarandstæðing af dögum í dag. Hann segir það lygi að lögregla hafi þegar rannsakað tilræðin.

Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump
Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust.

Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð
Rússneskur dómstóll dæmdi eðlisfræðing á áttræðisaldri í fjórtán ára í fanganýlendu fyrir landráð. Vísindamaðurinn er sagður hafa unnið að rannsóknum sem tengdust þróun hljóðfrárra flugskeyta.

Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar
Réttarhöld yfir meintum höfuðpaurum valdaránssamsæris í Þýskalandi hefjast í Frankfurt í dag.