Málefni fatlaðs fólks
11 12 13 14 ›
Við eigum öll rétt til náms! Ég sótti þá mögnuðu ráðstefnu Nám er fyrir okkur öll í vikunni. Þegar ég gekk í salinn fór um mig gleði og baráttutilfinning. Þetta var troðfullur salur af fólki sem á það sameiginlegt að hafa verið sett til hliðar í uppbyggingu íslenska menntakerfisins en segir nú: Hingað og ekki lengra! Skoðun 31.3.2022 12:32
Missir heimaþjónustu á þriðjudag og hræðist að enda aftur á bráðamóttöku Fjölfatlaður 45 ára karlmaður hræðist að lenda varanlega inni á bráðamóttöku um miðja viku þar sem þjónustusamningur borgarinnar við hann er við það að renna út. Hann segist hafa sent borginni ítrekaðar fyrirspurnir en fái ekki svör um hvort samningurinn verði framlengdur svo hann geti verið áfram heima. Innlent 27.3.2022 14:01
Hvenær verða réttindi fatlaðra barna í Garðabæ virt? Þjónusta við fatlað fólk skal miða að því að fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að geta notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og að skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Þetta er ekki bara skoðun Viðreisnar í Garðabæ á góðri þjónustu, heldur eru þessi skilyrði bundin í lög, skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Skoðun 25.3.2022 08:01
Ísland verður rampað upp með þúsund römpum Átaksverkefnið „Römpum upp Ísland“ hófst formlega í dag en tilgangur verkefnisins er að setja upp þúsund rampa um land allt til að auðvelda hreyfihömluðum að komast ferða sinna. Verkefnið kostar um fjögur hundruð milljónir króna og mun taka fjögur ár. Innlent 11.3.2022 21:03
Aðgengi allra, líka þegar snjóar Síðustu vikur hefur færð á landinu verið mörgum erfið. Við heyrum fréttir af því að fatlað fólk, sem nú þegar glímir oft við erfitt aðgengi almennt, hefur þurft að hætta við læknisheimsóknir og að sækja aðra grunnþjónustu þar sem erfitt hefur verið, ef ekki ómögulegt, að komast úr húsi. Skoðun 8.3.2022 15:30
Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega. Innlent 7.3.2022 17:58
Má blöskrar snjóskafl á gangstéttinni við hús Blindrafélagsins Má Gunnarssyni, íþrótta- og tónlistarmanni, er ekki skemmt varðandi snjómokstur við húsakynni Blindrafélagsins í Hamrahlíð. Már er blindur og á eðli máls samkvæmt ekki auðveld með að komast fram hjá stórum sköflum frekar en aðrir. Innlent 1.3.2022 15:14
Hvenær er nóg, nóg? Ég var nýlega að ræða húsnæðismál fatlaðs fólks í Kastljósi ásamt bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu, sem í umræðunni velti fyrir sér hvenær nóg væri nóg. Í rödd bæjarstjórans mátti greina þreytu, jafnvel uppgjöf. Skoðun 24.2.2022 14:31
Leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun Í vikunni var haldinn í Ósló alþjóðlegur leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun. Talið er að 15 prósent jarðarbúa, einn milljarður manna, sé með fötlun. Af þeim búa 80 prósent í lág- og millitekjuríkjum. Heimsmarkmiðin 18.2.2022 15:01
Vopnleysið kvatt? Reglulega hefur verið rætt um auknar heimildir almennra lögreglumanna til þess að bera vopn síðustu ár, en umræðan hefur jafnan mætt andstöðu almennings. Nú á dögunum hefur umræðan verið tekin upp að nýju vegna atvika sem, eins og ber að skilja, veldur lögreglumönnum áhyggjum um hvort þeir geti tryggt öryggi sitt og almennings. Skoðun 16.2.2022 17:00
Hvar er hinn sértæki húsnæðismarkaður fatlaðs fólks? Um 15% landsmanna búa við fötlun og enn fleiri við erfiðar efnahagslegar aðstæður. Lítið fer þó fyrir sértækum úrræðum á fasteignamarkaði fyrir þann hóp. Jafnan er talað um hinn almenna markað en hinn sértæki er vandfundinn. Skoðun 5.2.2022 10:00
Skóli án aðgreiningar Það er í skólaumhverfinu sem börn fara að mynda sér hugmyndir, viðhorf og tengsl við heiminn utan fjölskyldunnar. Allir nemendur eiga rétt á því að vera í sínum hverfisskóla. Skoðun 26.1.2022 11:30
Ráð fyrir bandamenn mannréttindabaráttu fatlaðs fólks Ég heiti Sunna Dögg Ágústsdóttir og ég er fötluð. Í þessari grein mun ég gefa ráð fyrir bandamenn mannréttindabaráttu fatlaðs fólks, hafið þó í huga að ég er bara ein fötluð manneskja og get því ekki talað fyrir hönd alls fatlaðs fólks. Skoðun 17.1.2022 12:00
Samfélagið og fötlunarfordómar Fötlunarfordómar hafa verið til í mörg þúsund ár, líklega frá byrjun mannkynssögu, en það þýðir ekki að þeir séu eðlilegir eða réttlætanlegir. Skoðun 8.1.2022 09:01
Í stofufangelsi í íbúðinni sinni í sex ár með lágmarksþjónustu „Ég klifraði upp í ljósastaur og kom öfugur niður,“ segir Rúnar Björn Herrera um slysið sem breytti lífi hans. Lífið 28.12.2021 14:31
Fær að fara aftur heim Fjölfatlaður maður sem hefur verið fastur á Hrafnistu mánuðum saman vegna skorts á heimaþjónustu var tilkynnt rétt fyrir jól að borgin hafi loks samþykkti að veita honum hana. Maðurinn segist ekki hafa getað fengið betri jólagjöf. Innlent 25.12.2021 13:00
Kæra ríkisstjórn! Í nýjum stjórnarsàttmála ykkar kemur skýrt fram að bæta eigi hag fatlaðs fólks. Talað er um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og setja á laggirnar sérstaka mannréttindastofnun. Skoðun 23.12.2021 08:30
Fastur á elliheimili og fær ekki að flytja heim Fjölfatlaður 45 ára karlmaður er fastur á elliheimili því borgin neitar honum um heimaþjónustu sem hann fékk áður. Hann missir plássið eftir nokkrar vikur og veit ekki hvar hann endar. Baráttan hefur tekið sinn toll og telur hann sig hafa elst um tuttugu ár. Innlent 20.12.2021 19:00
Meirihluti fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman „Það sem sló mig strax í upphafi hvað það var lítil aðstoð sem fjölskyldum er veitt í svona aðstæðum. Þarna gerist atvik sem að breytir öllu í lífi fjölskyldu og aðstandenda og ekki síst breytir öllu mínu lífi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands. Lífið 16.12.2021 09:36
Niðurskurður á mannréttindum fatlaðs fólks Nýtt Alþingi hefur loks verið sett. Fyrsta verk þingsins er framlagning fjárlaga en þau vekja ekki von fyrir réttindabaráttu fatlaðs fólks. Þvert á móti, því þar er gert ráð fyrir 300 milljóna króna niðurskurði til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Skoðun 10.12.2021 18:00
Tveir karlar og ein kona valin íþróttafólk ársins hjá fötluðum Það var sögulegt var á íþróttafólki fatlaðra í dag því kjörnefndin hjá Íþróttasambandi fatlaðra gat ekki gert upp á milli tveggja karla í ár. Sport 9.12.2021 15:48
Vongóð um samtal við stjórnvöld um eingreiðslu í desember „Það skiptir gríðarlega miklu fyrir fólk að fá þessa eingreiðslu sem hefur komið frá ríkinu undanfarin tvö jól. Þörfin hefur ekki minnkað,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Innlent 9.12.2021 12:29
Sakfelldur fyrir að hafa sent myndir af íbúa sambýlis handleika kynfæri sín Starfsmaður sambýlis hefur verið sakfelldur fyrir að hafa gerst sekur um kynferðisbrot með því að hafa tekið upp Snapchat-myndband af vistmanni handleika ber kynfæri sín. Innlent 7.12.2021 14:14
Þyngdu dóm fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem á síðasta ári var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fötluðum skjólstæðingi sínum. Dómurinn var þyngdur úr tveimur árum í þrjú. Innlent 3.12.2021 18:19
Bein útsending: Guðmundur Ingi afhendir Múrbrjót Þroskahjálpar Múrbrjótur Landssamtakanna Þroskahjálpar verður í dag afhentur á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Verðlaunin verða afhent á skrifstofu Þroskahjálpar klukkan 15 og verður sýnt frá þeim í beinu streymi á Vísi. Innlent 3.12.2021 12:30