Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Lyklaborðsriddararnir voru fljótir að láta Elísabetu Gunnarsdóttur, landsliðsþjálfara Belgíu í fótbolta, heyra það og sögðu henni að drulla sér frá Belgíu. Nýr veruleiki þessa öfluga þjálfara sem segir fólk og fjölmiðla hafa fullan rétt á sínum skoðunum. Fótbolti 8.7.2025 18:57
Svíþjóð örugglega áfram í átta liða úrslit Svíþjóð tryggði sér örugglega sæti í átta liða úrslitum Evrópumóts kvenna í kvöld þegar liðið lagði Pólland nokkuð þægilega 3-0. Fótbolti 8.7.2025 18:32
EM í dag: Nótt á spítala, hræddir blaðamenn og nammi frá Betu Þeir Sindri Sverrisson og Aron Guðmundsson eru enn staddir í Sviss að elta íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu. Liðið á einn leik eftir í riðlinum gegn Norðmönnum en Ísland er á botninum í riðlinum án stiga. Fótbolti 8.7.2025 16:00
Þurfa stelpurnar okkar bara að finna sér nýjan Sigurwin? 17. júlí 2013 er merkilegur dagur fyrir íslenska kvennalandsliðið í fótbolta. Þetta er dagurinn sem íslenska landsliðið fagnaði síðast sigri á stórmóti. Fótbolti 8. júlí 2025 08:02
Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Tvítugi Ólsarinn Sædís Rún Heiðarsdóttir er eins og margar aðrar í íslenska fótboltalandsliðinu að upplifa sín mestu vonbrigði á ferlinum, eftir tapið gegn Sviss á EM í gær. Tapið sem gerði út um vonir um 8-liða úrslit. Fótbolti 7. júlí 2025 22:03
Endurkomujafntefli heldur Portúgölum á lífi Portúgal hleypti öllu upp í háaloft í B-riðli Evrópumótsins í kvöld þegar liðið kreysti fram 1-1 jafntefli gegn Ítalíu. Fótbolti 7. júlí 2025 21:06
Heimsmeistararnir í ham gegn Belgíu Heimsmeistarar Spánar byrja Evrópumótið í Sviss með miklum látum en í dag voru það belgísku stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur sem urðu undir spænsku eimreiðinni þar sem Spánverjar skoruðu sex mörk. Fótbolti 7. júlí 2025 17:55
Heppni hafi skilað sigri á „of árásargjörnum Íslendingum“ Gríðarlegur áhugi var hér í Sviss á leik heimakvenna við Ísland á EM í fótbolta í gær og sigur Svisslendinga að sjálfsögðu aðalefnið í öllum helstu miðlum sem töldu sigurinn þó ekki ýkja verðskuldaðan. Fótbolti 7. júlí 2025 16:01
Mun taka stöðuna með fólkinu sem ræður hjá KSÍ Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta er ekkert að spá í framtíð sína í starfi eftir vonbrigði á vonbrigði ofan á EM í Sviss. Hann mun setjast niður með forráðamönnum KSÍ eftir mót. Fótbolti 7. júlí 2025 13:18
Finna stuðning hver hjá annarri: „Fólki má bara finnast það sem það vill“ „Við sem erum að spila erum manna svekktastar,“ segir Alexandra Jóhannsdóttir sem hefur meðal annars nýtt sudoku-þrautir til að hætta að hugsa um þá sáru niðurstöðu að Ísland fari ekki lengra á EM í fótbolta. Fótbolti 7. júlí 2025 12:33
Sveindísi var enginn greiði gerður Sveindís Jane Jónsdóttir átti ekki góðan leik í gær þegar íslenska kvennalandsliðið tapaði á móti Sviss en stelpurnar okkar lokuðu með því á alla möguleika á að komast upp úr riðli sínum á Evrópumóti kvenna í fótbolta. Fótbolti 7. júlí 2025 11:32
Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Framtíð Þorsteins Halldórssonar, þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var til umræðu eftir svekkjandi tap á móti Sviss á Evrópumótinu í gær. Eftir tvo leiki á móti slakari liðum riðilsins þá standa íslensku stelpurnar uppi stigalausar og eru úr leik fyrir lokaleikinn. Fótbolti 7. júlí 2025 09:33
Myndasyrpa: Skin og skúrir í Bern Það skiptust á skin og skúrir í Bern í gærkvöldi þegar Ísland tapaði 2-0 gegn heimakonum á Evrópumótinu í Sviss. Íslenskir stuðningsmenn fjölmenntu á völlinn og studdu vel við bakið á okkar konum en það dugði skammt að þessu sinni. Fótbolti 7. júlí 2025 07:00
Skýrsla Sindra: Handklæðið dugar ekki við þessum tárum Fjölmennasti leikur sem íslenskt kvennalandslið í fótbolta hefur tekið þátt í en um leið ein mesta sorgin sem leikmenn þess hafa þurft að takast á við innan vallar. EM er búið. Því lauk í Bern í kvöld. Fótbolti 6. júlí 2025 23:30
Glódís barðist við tárin: „Eftirsjá og það er erfitt“ „Ég er gríðarlega svekkt og sár. Það er eftirsjá. Það er ótrúlega leiðinlegt að standa hérna eftir tvo leiki og eiga ekki séns á markmiðinu okkar lengur,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, eftir tap liðsins fyrir Sviss á EM kvenna í fótbotlta í kvöld. Tapið þýðir að Ísland er úr leik. Fótbolti 6. júlí 2025 23:14
Jón Dagur gagnrýnir sérfræðinga RÚV: „Regla að þú gast ekkert eða veist ekkert?“ Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður karla í fótbolta, og sonur landsliðsþjálfarans Þorsteins Halldórssonar, virðist allt annað en sáttur við umfjöllun sérfræðinga á RÚV um frammistöðu föður hans í starfi. Fótbolti 6. júlí 2025 22:53
„Margt sem við hefðum getað gert betur“ Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 2-0 tap gegn Sviss í kvöld þegar hún ræddi við Aron Guðmundsson, blaðamann Vísis, skömmu eftir leik. Fótbolti 6. júlí 2025 22:35
Ingibjörg: Þetta er ömurlegt Tap íslenska kvennalandsliðsins gegn Sviss í Bern fyrr í kvöld var einstaklega sárt. Leikurinn endaði með 2-0 sigri heimakvenna og íslenska landsliðið því ekki á leiðinni upp úr riðlinum. Ingibjörg Sigurðardóttir þurfti að berjast við tárin í viðtali eftir leik. Fótbolti 6. júlí 2025 22:28
„Hef ekki hugsað það, tuttugu mínútum eftir leik“ „Eðlilega er ég, leikmenn og allir í kringum liðið þungir yfir þessu,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í Bern í kvöld, eftir að ljóst varð að Ísland kæmist ekki upp úr sínum riðli á EM kvenna í fótbolta. Fótbolti 6. júlí 2025 22:16
Twitter yfir leiknum gegn Sviss: Áberandi óþol í garð dómarans Ísland mátti sætta sig við 2-0 tap gegn heimakonum á Evrópumeistaramótinu í Sviss en úrslitin þýða að Ísland á ekki möguleika á að komast upp úr riðlinum þrátt fyrir að eiga einn leik eftir. Fótbolti 6. júlí 2025 21:33
Einkunnir Íslands: Fátt að frétta Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins voru misgóðir í slæmu 2-0 tapi fyrir Sviss í öðrum leik liðsins á EM kvenna í fótbolta. Ísland er úr leik á mótinu. Fótbolti 6. júlí 2025 21:06
Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Svisslendingar skipuðu boltasæki á Wankdorf-vellinum í Bern að fjarlægja handklæði sem Sveindís Jane Jónsdóttir hafði notað til að þurrka boltann fyrir löng innköst sín. Fótbolti 6. júlí 2025 20:02
Aldrei fleiri mætt í stuðningsmannagöngu fyrir leik Áhugavert met var sett í aðdraganda leik Íslands og Sviss á Evrópumeistaramóti kvenna í dag en aldrei hafa fleiri mætt í stuðningsmannagöngu fyrir leik og mættu í dag, eða um 14.000 manns. Fótbolti 6. júlí 2025 19:52
Byrjunarliðið gegn Sviss: Fyrirliðinn með eftir veikindin Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Íslands í stórleiknum gegn Sviss á EM kvenna í fótbolta í kvöld. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir hefur hrist af sér veikindin og byrjar leikinn. Fótbolti 6. júlí 2025 17:46