Átök í Ísrael og Palestínu
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 42 ›
Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Ísraelskir og bandarískir ráðamenn fara enn yfir viðbrögð Hamas-samtakanna við vopnahléstillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í vikunni. Samtökin leggja til breytingar sem eru ólíklegar til að falla í kramið hjá ísraelskum stjórnvöldum. Erlent 12.6.2024 12:43
Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd er örugglega óvinsælasta fyrirtæki á Íslandi því samkvæmt könnun vilja um 60% Íslendinga ekki skipta við þau fyrirtæki og stofnanir sem nota Rapyd. Skoðun 12.6.2024 12:00
Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir Ísland eykur framlag sitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) um hundrað milljónir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti um framlagið á ráðstefnu sem hann sótti fyrir hönd forsætisráðherra í Jórdaníu. Samanlagt munu stjórnvöld þá hafa lagt til UNRWA 290 milljónir á þessu ári. Innlent 11.6.2024 17:33
Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Fulltrúi Hamas-samtakanna utan Gasa segir að þau samþykki vopnahléstillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lagði blessun sína yfir í gær. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir viðbrögð samtakanna góðs viti. Erlent 11.6.2024 11:13
Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir að gjörðir bæði Ísraelshers og Hamas-samtakanna þegar Ísraelar frelsuðu fjóra gísla úr haldi um helgina gætu talist stríðsglæpir. Á þriðja hundrað manna féll í hernaðaraðgerðinni. Erlent 11.6.2024 10:11
Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að styðja við þriggja fasa vopnahlésáætlun á milli Hamas og Ísrael á Gasa. Áætlunin var lögð fram af forseta Bandaríkjanna, Joe Biden, við lok síðasta mánaðar.Fjórtán af fimmtán meðlimum ráðsins samþykktu að styðja tillöguna. Rússar sátu hjá. Erlent 10.6.2024 21:12
Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa Íslensk stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa. Utanríkisráðherra segir þó liggja á að tryggja að slík aðstoð berist til fólksins á Gasa en hjálparstofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum hefur verið nánast ómögulegt að koma hjálpargögnum inn á svæðið síðustu mánuði. Hún segir stjórnvöld hafa talað skýrt um að þau telji alþjóðalögum ekki fylgt og kallað eftir tafarlausu vopnahléi. Innlent 10.6.2024 17:45
Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Ísraelsher heldur því fram að þrír gíslar sem voru frelsaðir úr haldi í hernaðaraðgerð á Gasa um helgina hafi verið í haldi blaðamanns sem starfaði fyrir katörsku sjónvarpsstöðina al-Jazeera. Fjölmiðillinn segir ásakanirnar stoðlausar. Erlent 10.6.2024 09:27
Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Leikarinn George Clooney setti sig í samband við ráðgjafa Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum til að kvarta yfir afstöðu Bandaríkjastjórnar gagnvart ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins að óska eftir handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu. Erlent 10.6.2024 07:10
Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hefur tilkynnt afsögn sína úr þjóðstjórn Benjamíns Netanjahús. Hann er leiðtogi Þjóðareiningarbandalagsins og pólitískur andstæðingur Netanjahús. Erlent 9.6.2024 18:14
Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. Innlent 8.6.2024 21:00
Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Talsmaður herskás arms Hamas-samtakanna segir Ísraelsmenn hafa drepið ríflega 200 Palestínumenn í dag þegar fjórum gíslum var bjargað úr haldi Hamas-liða. Þá hafi aðrir gíslar dáið í átökunum. Erlent 8.6.2024 19:52
Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Ísraelski herinn frelsaði í dag fjóra gísla úr haldi Hamas í Nuseirat-borg á miðlægu Gasasvæðinu. Samhliða fótgönguliðsáhlaupinu voru gerðar umfangsmiklar loftárásir sem leiddu til dauða 93 Palestínumanna að sögn yfirvalda á svæðinu. Erlent 8.6.2024 16:58
Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Fjórum gíslum hefur verið bjargað lifandi á Gasasvæðinu. Um ræðir þrjá karlmenn og eina konu sem voru tekin í gíslingu á tónlistarhátíðinni Nova þegar Hamasliðar réðust inn í Ísrael sjöunda október á síðasta ári. Erlent 8.6.2024 11:28
Þau sem hunsa helförina „Gjörðir fólks í dag sýna okkur hvað sama fólk hefði gert á meðan á helförinni stóð.“ Þessi orð tók ég með mér frá fundi dr. Mads Gilbert í Hofi á Akureyri, en Mads er margverðlaunaður norskur læknir sem hefur lengi stutt Palestínumenn í baráttunni gegn þungvopnuðu hersetuliði Ísraels. Skoðun 7.6.2024 18:30
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.6.2024 16:19
Markaðsbrestur tilfinninga Markaðsbrestur er hugtak úr hagfræði sem flestir sem fylgjast með fréttum þekkja og er (oftast) notað yfir það þegar framleiðsla á einhverri vöru (eða gæðum) er ekki skilvirk. Markaðsbrestur á vöru eða gæðum eru gjarnan notað til þess að ýta undir og réttlæta það að stofnanir hins opinbera séu með inngrip sem hafi áhrif á brestina. Þessi inngrip þekkjum við vel. Þetta eru t.d. stýrivaxtahækkanir (og hægar stýrivaxtalækkanir) Seðlabankans til að sporna gegn verðbólgu. Skoðun 7.6.2024 13:00
Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Að minnsta kosti 30 manns, þar af fimm börn, létust í loftárásum Ísraelsmanna á skóla Sameinuðu þjóðanna í al-Nuseirat, þar sem fólk á vergangi er sagt hafa hafist við. Erlent 6.6.2024 06:37
Ísrael tilkynnir um dauða fjögurra gísla Ísraelski herinn hefur tilkynnt um dauða fjögurra manna sem teknir voru í gíslingu í árásum Hamas á Ísrael sjöunda október. Talið er að um áttatíu gíslar séu enn í haldi. Erlent 4.6.2024 00:14
Trúðar mótmæla við Alþingi Félagar í samtökunum Ísland - Palestína standa fyrir mótmælum við Alþingishúsið. Þingfundur hófst á Alþingi klukkan 15. Innlent 3.6.2024 15:46
Netanyahu fastur milli steins og sleggju Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, er nú sagður standa frammi fyrir því að þurfa mögulega að velja á milli þess að ganga að vopnahléstillögum sem nú liggja fyrir og þess að halda lífi í ríkisstjórn sinni. Erlent 3.6.2024 07:18
Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti nýja friðaráætlun Ísraela sem felur í sér vopnahlé gegn því að Hamas-samtökin frelsi alla gísla í haldi þeirra. Hamas-liðar eru sagðir hafa tekið vel í tillögurnar. Erlent 31.5.2024 23:44
Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Mótmælin á vegum félagsins Íslands-Palestína í morgun eru þau hörðustu á síðari árum að sögn lögreglu. Mótmælendur segja lögreglu hafa gengið fram af hörku og ofbeldi og sýnt einbeittan brotavilja. Lögregla segist ekki hafa átt annarra kosta völ og fullyrðir að verklagsreglum hafi verið fylgt. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu muni fá aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum. Innlent 31.5.2024 19:45
Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur beðið ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um að farið verði yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, þegar piparúða var beitt á mótmælendur fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun. Innlent 31.5.2024 15:53
Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Undanfarna daga hefur þeirri áhugaverðu söguskýringu verið haldið á lofti að það sé ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eitthvað sérstaklega að þakka að fjöldinn allur af Palestínufólki hafi komist undan þjóðarmorði á Gaza og hingað til Íslands, þar sem fólkið er með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Dvalarleyfi sem þau eiga einfaldlega rétt á samkvæmt lögum og er engum að "þakka." Skoðun 31.5.2024 14:45
Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31.5.2024 11:21
Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31.5.2024 10:42
Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Forsetaframbjóðendurnir ræddu um utanríkismál og sér í lagi ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs í kappræðum á Stöð 2. Halla Hrund sagði alþjóðasamfélagið vera að klikka, Katrín sagðist hafa beitt sér í embætti forsætisráðherra og Halla Tómas sagði mikilvægt að sýna mennsku. Baldur vill að stigið sé fast til jarðar og Arnar Þór líka. Jón Gnarr segir forsetann valdalausan í þessu máli en sannarlega geta reynt að beita sér. Innlent 31.5.2024 08:26
Ísland leiði Norðurlöndin saman og innleiði viðskiptaþvinganir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar vill að Ísland taki forystu í að leiða Norðurlandaþjóðirnar saman í samtal um að innleiða viðskiptaþvinganir gegn Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gasa. Hún segir rödd Íslands á alþjóðasviðinu í dag vera brotna. Innlent 30.5.2024 14:11
Setuverkfall í utanríkisráðuneytinu Setuverkfall stendur yfir í utanríkisráðuneytinu þar sem mótmælendur hafa komið sér fyrir í anddyri ráðuneytisins. Yfirskrift mótmælanna er aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda hvað varðar þjóðarmorð á Gaza. Mótmælandi segir stefnuna að trufla störf yfirvalda þar til þau bregðist við. Innlent 30.5.2024 11:00