
Átök í Ísrael og Palestínu

Hljóp berfætt undan sprengjuregninu
Minnst þrjátíu og átta eru sagðir látnir og fleiri slasaðir eftir loftárásir Ísraelshers á Gasa í dag. Talsmaður almannavarna á svæðinu segir að þekktar flóttamannabúðir hafi orðið fyrir skotum.

Tugir látin í sprengingu við skrifstofu Rauða krossins á Gasa
Skrifstofur Rauða krossins á Gasa urðu fyrir miklum skemmdum í sprengingum seint í gær. Alls létust 22 Palestínumenn í árásinni samkvæmt tilkynningu Rauða krossins. Um var að ræða Palestínumenn sem bjuggu í nálægð við skrifstofurnar í tjöldum.

Segja lögreglu hafa gætt stillingar við mótmælin í Skuggasundi
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur engar vísbendingar uppi um mögulega refsiverða eða ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu við mótmælin í Skuggasundi í síðasta mánuði. Lögregla er sögð hafa gætt meðalhófs í aðgerðum sínum.

Yazan endanlega vísað úr landi og boðað hefur verið til mótmæla
Ellefu ára palestínskum dreng með hrörnunarsjúkdóm verður vísað úr landi eftir að Kærunefnd útlendinga vísaði máli hans frá og neitaði honum endanlega um vernd hér á landi. Boðað hefur verið til mótmæla á sunnudag vegna þessa.

Stjórnvöld á Kýpur ítreka hlutleysi eftir hótanir Hezbollah
Stjórnvöld á Kýpur hafa neyðst til að ítreka að þau eigi ekki þátt né muni þau eiga þátt í neinum stríðum eða átökum eftir hótanir af hálfu Hezbollah samtakanna í Líbanon.

Krefst fræðslu um gyðingahatur eftir að tólf ára stúlku var nauðgað
Tveir þrettán ára drengir hafa verið ákærðir fyrir að nauðga tólf ára stúlku í Frakklandi. Stúlkan er gyðingur og segir drengina hafa viðhaft hatursorðræðu um hana á meðan þeir nauðguðu henni. Frakklandsforseti hefur beint því til skólakerfisins að efla fræðslu um gyðingahatur.

Segir blekkingu að halda því fram að hægt sé að tortíma Hamas
Ísrael getur ekki sigrast á Hamas án þess að sjá til þess að ný stjórnvöld taki við á Gasa, segir talsmaður Ísraelshers. Ummæli hans í gær virðast benda til þess að upp sé kominn ágreiningur milli hersins og stjórnvalda um framhald átaka á Gasa.

Neita að halda landsleik gegn Ísrael á þjóðarleikvanginum
Borgarstjórn Brussel, höfuðborgar Belgíu, hefur af öryggisástæðum bannað belgíska knattspyrnusambandinu að halda landsleik gegn Ísrael á King Baudouin þjóðarleikvanginum.

Fyrsti Ólympíufari Palestínu dó á Gaza-svæðinu
Majed Abu Maraheel er látinn 61 árs gamall. Hann lést í Nuseirat flóttamannabúðunum á Gaza-svæðinu.

Stjórnvöld í Ísrael íhuga stríð gegn Hezbollah og Líbanon
Utanríkisráðherra Ísrael segir ákvörðun um mögulegt stríð gegn Hezbollah munu liggja fyrir innan tíðar en greint var frá því í gær að stjórnvöld hefðu ákveðið að ráðast í aðgerðir gegn samtökunum í Líbanon.

„Sjálfhatandi gyðingar“
Þriðja júní 2024 birtist í Morgunblaðinu grein undir yfirskriftinni „Stuðningur við Hamas-hryðjuverkasamtökin“ Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Ég hvet alla að lesa greinina, mér finnst hún vera dæmi um samviskuslappan mann, sem er rótfastur í áráttu rangtúlkana og meinbægni.

Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin
Hernaðaraðgerðir Ísraelshers á fyrstu þremur mánuðum stríðsins þurrkuðu nánast út heilu stórfjölskyldurnar á Gasa. Minnst 173 fjölskyldumeðlimir Salem-fjölskyldunnar létust í tveimur loftárásum. Fjölskyldumeðlimir sem lifðu af segja engin augljós hernaðarleg skotmörk hafa verið nálægt heimili fjölskyldunnar.

Netanjahú leysir stríðsráðið upp
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur ákveðið að leysa upp sex manna stríðsráð ríkisins. Ákvörðunin kemur skömmu eftir uppsögn Benny Gantz, pólitísks andstæðings Netanjahú, úr þjóðstjórninni.

Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði
Benjamin Natanyahu forsætisráðherra Ísraels er ósáttur með ákvörðun ísraelska hersins um að gera daglegt hlé á hernaði meðfram stofnbraut á Gasa til að hleypa neyðarbirgðum inn á svæðið.

Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð
Ísraelsher hefur tilkynnt að gerð verði dagleg hlé á hernaði með fram stofnbraut á Gasa í þeim tilgangi að hleypa meiri neyðarbirgðum inn á svæðið.

Hótanir í garð lögreglumanna komnar á borð saksóknara
Lögregla hefur kært tvær hótanir í garð lögreglumanna til héraðssaksóknara. Formaður Landssambands lögreglumanna tengir hótanirnar beint við Palestínumótmæli sem staðið hafa yfir síðustu vikur og mánuði.

Segir reyksprengjum verið kastað og piparúði nauðsynlegur
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögregluna hafa neyðst til að beita piparúða gegn mótmælendum við Alþingishúsið í gær. Reyksprengju og blysum hafi verið kastað í átt að Alþingishúsinu. Þingmaður Pírata telur atburðarásina hafa mátt vera á annan veg.

Piparúði á mótmælendur barst að þingmönnum Pírata
Lögregla beitti piparúða á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið í kvöld. Nokkrir þingmenn Pírata voru á svæðinu þegar piparúðanum var hleypt af og barst hluti piparúðans að þeim svo þá sveið í augun.

Með lygina að vopni
Föstudaginn 22. mars síðast liðinn voru 137 manns drepnir á hljómleikum í Moskvu. Byggingin var eyðilögð.

Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar
Ísraelskir og bandarískir ráðamenn fara enn yfir viðbrögð Hamas-samtakanna við vopnahléstillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í vikunni. Samtökin leggja til breytingar sem eru ólíklegar til að falla í kramið hjá ísraelskum stjórnvöldum.

Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd
Ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd er örugglega óvinsælasta fyrirtæki á Íslandi því samkvæmt könnun vilja um 60% Íslendinga ekki skipta við þau fyrirtæki og stofnanir sem nota Rapyd.

Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir
Ísland eykur framlag sitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) um hundrað milljónir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti um framlagið á ráðstefnu sem hann sótti fyrir hönd forsætisráðherra í Jórdaníu. Samanlagt munu stjórnvöld þá hafa lagt til UNRWA 290 milljónir á þessu ári.

Hamas samþykkir vopnahléstillöguna
Fulltrúi Hamas-samtakanna utan Gasa segir að þau samþykki vopnahléstillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lagði blessun sína yfir í gær. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir viðbrögð samtakanna góðs viti.

Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir að gjörðir bæði Ísraelshers og Hamas-samtakanna þegar Ísraelar frelsuðu fjóra gísla úr haldi um helgina gætu talist stríðsglæpir. Á þriðja hundrað manna féll í hernaðaraðgerðinni.

Öryggisráðið styður friðartillögu Biden
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að styðja við þriggja fasa vopnahlésáætlun á milli Hamas og Ísrael á Gasa. Áætlunin var lögð fram af forseta Bandaríkjanna, Joe Biden, við lok síðasta mánaðar.Fjórtán af fimmtán meðlimum ráðsins samþykktu að styðja tillöguna. Rússar sátu hjá.

Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa
Íslensk stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa. Utanríkisráðherra segir þó liggja á að tryggja að slík aðstoð berist til fólksins á Gasa en hjálparstofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum hefur verið nánast ómögulegt að koma hjálpargögnum inn á svæðið síðustu mánuði. Hún segir stjórnvöld hafa talað skýrt um að þau telji alþjóðalögum ekki fylgt og kallað eftir tafarlausu vopnahléi.

Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns
Ísraelsher heldur því fram að þrír gíslar sem voru frelsaðir úr haldi í hernaðaraðgerð á Gasa um helgina hafi verið í haldi blaðamanns sem starfaði fyrir katörsku sjónvarpsstöðina al-Jazeera. Fjölmiðillinn segir ásakanirnar stoðlausar.

Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD
Leikarinn George Clooney setti sig í samband við ráðgjafa Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum til að kvarta yfir afstöðu Bandaríkjastjórnar gagnvart ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins að óska eftir handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu.

Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús
Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hefur tilkynnt afsögn sína úr þjóðstjórn Benjamíns Netanjahús. Hann er leiðtogi Þjóðareiningarbandalagsins og pólitískur andstæðingur Netanjahús.

Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael
Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum.