
Netverslun með áfengi

Kærir sjálfan sig til lögreglu
Árni Guðmundsson hefur gefið sig fram við laganna verði og játar brot sitt gagnvart áfengislöggjöfinni undanbragðalaust. Hann segist sekur um að hafa keypt áfengi ólöglega.

Með hendur í vösum?
Ágæta Halla. Íslendingar skilja út á hvað lýðheilsa gengur. Skilja mikilvægi þess að hafa regluverk sem hefur verndandi áhrif. Ekki síst í þágu barna og ungmenna. Íslendingar flestir vita að áfengi, tóbak og nikótín eru heilsuspillandi vörur sem geta undir engum kringumstæðum flokkast sem venjulegar vörur.

Sante hafi veitt viðskiptavinum rangar upplýsingar
Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að Santewines, sem rekur vefsíðuna sante.is, hafi veitt neytendum rangar upplýsingar um rétt þeirra til að falla frá samningi í skilmálum sínum. Skilmálar síðunnar um rétt neytenda séu því ólögmætir.

Vill setja reglur um vefverslanir frekar en að afneita þeim
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að setja reglur um vefverslanir sem selja áfengi hér á landi. Hún hefur lagt fram frumvarp um að leyfa verslanirnar í meira mæli hér á landi.

Dagdrykkja meðal sjúklinga SÁÁ þrefaldast á þrjátíu árum
Netverslun áfengis er mikið áhyggjuefni að sögn læknis hjá SÁÁ. Áfengisneysla hefur tæplega tvöfaldast á síðustu fjörutíu árum hér á landi hjá fimmtán ára og eldri. Þá hefur fjöldi þeirra skjólstæðinga SÁÁ sem drekkur daglega rúmlega þrefaldast á þrjátíu árum.

Nýr eigandi Bláhornsins með áfengisverslun í pípunum
Víðir Jónasson gekk frá kaupum á Bláhorninu, gamalgrónum söluturni í miðborginni, í byrjun júlí. Hann segist vera með það í skoðun að hefja netsölu með áfengi, þar sem áfengi yrði sótt í Bláhornið.

Allt að helmings verðmunur áfengis í vefbúðum
Sante Wines og Costco bjóða oftast upp á lægsta verðið á áfengi samkvæmt óformlegri könnun Vísis. Fjölgar þeim stöðugt vefverslununum sem bjóða upp á áfenga drykki.

„Fólk á ekki að láta bjóða sér svona dellu“
Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, segir áfengissölu Costco algera lögleysu og hann væri búinn að klippa Costco-kortið sitt – ef hann ætti það.

Áfengismálin ekki einkamál eins ráðuneytis
Forsætisráðherra segir að ræða þurfi áfengismálin á mun breiðari grundvelli en einungis innan veggja eins ráðuneytis. Hún sjálf sé á meðal þeirra ráðherra sem hafi komið í veg fyrir áfengisfrumvörp hafi verið afgreidd út úr ríkisstjórn.

„Glæsilegt“ að Costco selji nú áfengi
Dómsmálaráðherra segir löngu tímabært að endurskoða áfengislöggjöfina hér á landi. Hins vegar hafi gengið illa að koma frumvörpum um áfengi út úr ríkisstjórn. Viðskiptavinir Costco virðast flestir hlynntir sölu áfengis í versluninni.

Alþingi taki hausinn úr sandinum í áfengismálum
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Alþingi verða að hætta að stinga höfðinu í sandinn þegar kemur að þróuninni á áfengismarkaði. Taka þurfi áfengislöggjöfina algjörlega í gegn þar sem hún hindri samkeppnishæfi innlendra fyrirtækja.

Aukið aðgengi að áfengi ekki framfaraskref
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra Vinstri Grænna, segir að netverslun á áfengi sé ekki framfaraskref og spyr hvert Íslendingar stefni í áfengismálum.

Hagkaup bætist í hóp verslana sem selja áfengi
Hagkaup stefnir að því að hefja netverslun áfengis á næstu misserum. Verslunin mun þá bætast í hóp með Costco, Heimkaupum og fjölda smærri netverslana. Dómsmálaráðherra segist ekki getað dregið aðra ályktun en að vefverslun með áfengi sé lögmæt.

Costco opnar á sölu áfengis til einstaklinga
Verslunarrisinn Costco er kominn í samkeppni við Vínbúðina og netverslanir í sölu á áfengi á netinu. Einstaklingar geta nú pantað áfengi á vefsíðu Costco og sótt í verslunina í Kauptúni.

Vinstri grænum svelgist á áfengismálum Jóns
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra telur ekki ósennilegt að tekið hafi sig upp afdalamennska og gömul forræðishyggja meðal samstarfsflokka Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórninni.

Sjálfstæðisflokkurinn er skaðræðisskepna - Fyrst hænuskref, svo netsala áfengis
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stefnt að því afar lengi að sala áfengis verði tekin úr höndum hins opinbera og afhent einkaaðilum. Eins og allir sjá hefur áhugi hans og ákefð magnast mikið þótt á undangengnum áratugum hafi sífellt komið betur og betur í ljós hvernig stóraukið framboð sem hlýst af slíkum ráðstöfunum leiðir af sér vaxandi áfengisböl og ýmsan annan óskunda.

Sjálfstæðisflokkurinn er skaðræðisskepna – Stórhættulegt áfengislagafrumvarp
Því miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var fyrir nóvemberlok samkvæmt þingmálaskrá. Nái það fram að ganga er líklegast að aukningin verði allnokkur, jafnvel veruleg eins og sumir óttast.

Fólk duglegt að kaupa í matinn og kippa með vínflösku hjá Heimkaupum
Vefverslunin Heimkaup hóf um síðustu mánaðamót áfengissölu. Forstjóri Heimkaupa segir söluna hafa farið prýðilega vel af stað og fólk sé hóflegt í kaupunum. Það sé helst með matarkaupum sem vínflaska eða kippa af bjór sé látin fylgja með í körfuna.

Líst ekkert á vefsöluna og vill skerpa á lögum
Þingmaður Vinstri grænna segir flokkinn mótfallinn því að heimila vefsölu með áfengi. Réttara væri að herða löggjöfina til að koma í veg fyrir að Íslendingar geti stofnað fyrirtæki erlendis og selt áfengi inn á íslenskan markað.

Kærði Heimkaup til lögreglu vegna netverslunar
Heimkaup hófu í dag netsölu áfengis fyrst stórmarkaða. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur óskýran lagaramma í kringum netsölu áfengis skapa skakka stöðu á samkeppnismarkaði. Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum segir áfengissölu Heimkaupa ólöglega og því hafi hann kært fyrirtækið til lögreglu.

„Ekkert hægt að koma í veg fyrir þessa þróun“
Heimkaup opnuðu í dag fyrir sölu á áfengi á vefsíðu sinni. Forstjóri Heimkaupa segir þetta mikil tímamót. Nú sé í fyrsta skipti á Íslandi hægt að versla sér mat og áfengi á sama stað líkt og annars staðar í Evrópu.

Máli ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað málum ÁTVR gegn Sante ehf, Santewines SAS og Bjórlandi vegna smásölu á áfengi frá dómi.

Tækifæri til að koma viti í áfengismarkaðinn
Félag atvinnurekenda hefur að undanförnu ítrekað vakið athygli á furðulegri stöðu, óvissu og þversögnum, sem uppi eru á áfengismarkaðnum á Íslandi. Nú þegar stjórnarflokkarnir sitja og ræða áframhaldandi samstarf er frábært tækifæri til að leggja drög að því að koma viti í þennan markað.

Nokkur mál í skoðun hjá ÁTVR: „Við ætlum að grípa til varna“
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins vill ekki svara því hversu mörg mál hafa verið höfðuð eða eru í skoðun gegn innlendum aðilum sem stunda netsölu á áfengi. Lögmaður ÁTVR segir „nokkur sambærileg mál til skoðunar“.

ÁTVR stefnir Arnari og Sante vegna brots á einkarétti til smásölu áfengis
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur stefnt Sante ehf, Santewines SAS og Arnari Sigurðssyni, sem er skráður eigandi beggja fyrirtækjanna, til þess að hætta smásölu áfengis á Íslandi.

Hefur ekki keypt áfengi af netverslun og skoðar hvort starfsemin standist lög
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir til skoðunar hjá ráðuneyti sínu hvort áfengissala netverslana sem skráðar eru erlendis en starfi að miklu leyti til hér á landi stangist á við lög. Félag atvinnurekanda hefur kallað eftir svörum um málið þar sem fjöldi fyrirtækja hefur áhuga á að hefja slíka sölu. Sjálf hefur Áslaug ekki keypt áfengi af slíkri netverslun.

Félag atvinnurekenda krefst svara um lögmæti netsölu á áfengi
Félag atvinnurekenda hefur enn ekki fengið svar við fyrirspurn sinni um lögmæti netsölu á áfengi, þrátt fyrir að hún hafi legið inni um nokkurt skeið hjá tveimur ráðuneytum.

Villta vestrið í áfengismálum eða lög og reglur um frjálsan markað?
Samkvæmt laganna hljóðan hefur Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins (ÁTVR) einkarétt á smásölu áfengis á Íslandi. Í raun er þó farið að kvarnast býsna mikið úr ríkiseinokuninni.