Stj.mál
134 135 136 137 138 139 140 141 142 … 187 ›
500 palestínskum föngum sleppt Fimmhundruð palestínskum föngum sem verið hafa í haldi í Ísrael verður sleppt klukkan átta að íslenskum tíma í dag. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir þetta gert til þess að koma enn frekari skriði á friðarferlið sem tekið hefur mikinn kipp undanfarið. Erlent 13.10.2005 18:48
Abbas undirbúi róttækar umbætur George Bush, forseti Bandaríkjanna, skorar á Mahmoud Abbas, nýjan leiðtoga Palestínu, að leggja línurnar að róttækum umbótum í landinu á ráðstefnu sem haldin verður um málefni Palestínu í Lundúnum í næsta mánuði. Erlent 13.10.2005 18:48
Ódýrara að taka lán fyrir skálanum Ódýrara hefði verið fyrir Reykjavíkurborg að taka lán fyrir sýningarskálanum sem hýsir landnámsminjarnar í Aðalstræti en að selja hann og endurleigja. Það hefur varafulltrúi F-lista í skipulagsráði reiknað út. Hann vill að málið verði tekið upp, enda hljóti að vera um mistök að ræða hjá borgaryfirvöldum. Innlent 13.10.2005 18:48
Bush mætir andstæðingum sínum Bush Bandaríkjaforseti mun mæta sínum hörðustu andstæðingum, hverjum á fætur öðrum, í fimm daga Evrópureisu sinni sem hófst í dag og situr meðal annars kvöldverð með Jacques Chirac Frakklandsforseta í kvöld. Bush er talin ætla að nota tækifærið til að bæta samskiptin yfir Atlantsála sem súrnuðu verulega í kjölfar Íraksstríðsins. Erlent 13.10.2005 18:48
Ágreiningur á bak við vinarþelið Vinsemd og friður svífur yfir vötnum á ferðalagi Bush Bandaríkjaforseta í Evrópu, enda er tilgangurinn að styrkja tengslin á Atlantshafsásnum eftir erfið misseri. En fréttamaður Stöðvar 2 komst að því að hátíðarbragur og tignarlæti duga ekki til að dreifa athyglinni frá grundvallarágreiningi stórveldisins og stækkandi Evrópusambands. Erlent 13.10.2005 18:48
Endurnýjun lýðræðis í Rússlandi George Bush Bandaríkjaforseti krefst þess að Rússar „endurnýi skuldbingu sína við lýðræði“, enda sé það forsenda þess að þjóðin þróist áfram sem Evrópuþjóð. Þetta kom fram í ræðu sem Bush hélt í Brussel í Belgíu í dag en það er fyrsti viðkomustaður hans í fimm daga Evrópureisu sem hófst í morgun. Erlent 13.10.2005 18:48
Bandaríkjamenn vilja viðræður Eftir blóðuga baráttu við uppreisnarmenn í Írak í tvö ár eru Bandaríkjamenn komnir að þeirri niðurstöðu að viðræður séu vænlegasta leiðin til að binda enda á skálmöldina. Erlent 13.10.2005 18:48
Vill eitt gagnaflutningsnet Flokksráð Vinstri - grænna hvetur til þess að grunnnet Landsímans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt gagnaflutningsnet í eigu ríkis og sveitarfélaga. Fundurinn telur mikilvægt að slíkt fjarskiptanet þjóni öllum landsmönnum og verði aðgengilegt öllum aðilum í fjarskiptaþjónustu en einkavæðing Landsímans með grunnnetinu muni leiða af sér mismunun og offjárfestingu sem almenningur þurfi á endanum að borga. Innlent 13.10.2005 18:48
Yfirlýsingar skaða Landsvirkjun Yfirlýsingar iðnaðarráðherra um einkavæðingu Landsvirkjunar skaða fyrirtækið og grafa undan lánstrausti þess að mati Álfheiðar Ingadóttur, stjórnarmanns í Landsvirkjun. Borgin geti ekki verið áfram í ábyrgð fyrir sextíu milljörðum króna verði fyrirtækið einkavætt. Það rýri verðmæti fyrirtækisins að missa þessar ábyrgðir. Innlent 13.10.2005 18:48
Hyggilegra að fresta undirskrift Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, segir á heimasíðu sinni að borgaryfirvöld hefðu betur frestað því að skrifa undir viljayfirlýsingu um sölu á hlut sínum í Landsvirkjun til ríkisins þar sem fyrirhuguð einkavæðing fyrirtækisins stríði gegn stefnu Vinstri - grænna. Hætta sé því á að R-listinn í Reykjavík gangi sundraður til þessara verka. Innlent 13.10.2005 18:48
Undrast áform iðnaðarráðherra Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir í tilkynningu furðu sinni á bollaleggingum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu orkufyrirtækja. Þingflokkurinn mótmælir harðlega öllum áformum ráðherrans um frekari markaðs- og einkavæðingu almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar á næstu árum. Innlent 13.10.2005 18:48
Mótmælir reykingabanni Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna lagafrumvarps um bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum. Þar ítrekar félagið að það sé óréttlætanlegt að ríkið banni fólki að stunda löglegar athafnir á eign sinni. Innlent 13.10.2005 18:48
Hljóta að geta fyrirgefið Fischer Ef menn gátu fyrirgefið Khadafi Líbíuleiðtoga hljóta þeir að geta fyrirgefið Bobby Fischer, segir utanríkisráðherra, og vill ekki meina að Bandaríkjamenn hafi beitt íslensk stjórnvöld þrýstingi til að draga boð um dvalarleyfi til handa Fischer til baka. Innlent 13.10.2005 18:48
Væri ekki á leið til lýðræðis Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis. Innlent 13.10.2005 18:47
ESB-baráttan að hefjast Baráttan fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta er að hefjast fyrir alvöru. Á sunnudaginn kjósa Spánverjar um stjórnarskrána, fyrstir allra Evrópuþjóða. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, heimsótti Spán í gær til þess að hvetja þarlenda stjórnmálamenn til dáða í báráttunni fyrir að fá stjórnarskrána samþykkta. Erlent 13.10.2005 18:47
Ráðinn upplýsingafulltrúi hjá NATO Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Börk Gunnarsson, kvikmyndagerðarmann og blaðamann, sem upplýsingafulltrúa hjá þjálfunarsveitum Atlantshafsbandalagsins í Írak. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, er Börkur á förum til Ítalíu þar sem hann fer í vikuþjálfun áður en hann tekur við nýja starfinu í Írak. Innlent 13.10.2005 18:47
Kristinn ekki sigurvegari Pétur Blöndal alþingismaður er ekki á því að Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hafi, með endurreisn sinni í Framsóknarflokknum, sigrað flokksforystuna að því er fram kom í máli Péturs í þættinum Íslandi í bítið í morgun. Innlent 13.10.2005 18:47
Frumvarp um reykingabann Siv Friðleifsdóttir og þrír aðrir þingmenn lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um að reykingar yrðu alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem og við aðrar menningar- og félagssamkomur. Innlent 13.10.2005 18:48
Kjarnorkuvopnaeign helsta ógnin Kjarnorkuvopnaeign Asíuríkja er meðal helstu ógna sem Bandaríkjamenn þurfa að fylgjast með að mati yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hryðjuverk eru áfram ofarlega á lista yfir ógnir. Erlent 13.10.2005 18:47
Yfirmaður allrar leyniþjónustu BNA George Bush hefur skipað John Negroponte, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sem yfirmann allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Embættið er nýtt af nálinni og er stofnun þess liður í aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að reyna að koma í veg fyrir að atburðirnir þann 11. september 2001 endurtaki sig. Erlent 13.10.2005 18:47
Víglína í átökum við Bandaríkin Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin. Erlent 13.10.2005 18:47
Sharon líklega ekki ákærður Dómsmálaráðherra Ísraels mun líklega ekki ákæra Ariel Sharon vegna meintrar fjármálaspillingar frá árinu 1999. Þetta sögðu heimildarmenn innan dómsmálaráðuneytis Ísraela í morgun. Erlent 13.10.2005 18:47
Vilja algert reykingabann Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Innlent 13.10.2005 18:47
Sharon ekki ákærður Engin ákæra verður gefin út á hendur Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vegna spillingarmáls sem allt leit út fyrir að gæti bundið enda á stjórnmálaferil hans. Erlent 13.10.2005 18:47
Fellur portúgalska ríkisstjórnin? Portúgalska ríkisstjórnin mun falla í þingkosningunum um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Jafnaðarmannaflokkurinn sem er í stjórnarandstöðu hefur töluvert forskot á sósíaldemókrata, sem leiða ríkisstjórnina, og samkvæmt sumum könnunum myndu jafnaðarmenn ná hreinum meirihluta ef kosið yrði nú. Erlent 13.10.2005 18:47
Áfengisgjald lækkað um 30% Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis. Innlent 13.10.2005 18:47
Stöndum okkur verr en Írakar Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á það í umræðum um kosningarnar í Írak á Alþingi í fyrradag að hlutfall kvenna á íraska þinginu væri hærra en á Alþingi Íslendinga. Innlent 13.10.2005 18:48
Fischer fær ekki ríkisborgararétt Á fundi allsherjarnefndar í gærmorgun var ákveðið að mæla ekki með því við Alþingi að bandaríska skákmanninum Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að svo stöddu. Innlent 13.10.2005 18:48
Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum. Erlent 13.10.2005 18:47
Kýótó bókunin orðin að lögum Fyrsta skrefið í því ferli að sporna gegn útbreiðslu gróðurhúsalofttegunda í heiminum í framtíðinni var stigið í gær þegar hin sjö ára gamla Kyoto-loftslagsbókun varð loks að alþjóðalögum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47