Stj.mál

Fréttamynd

SUS fagnar skattalækkanafrumvarpi

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna fagnar frumvarpi ríkisstjórnarinnar um mestu skattalækkanir á einstaklinga í áratugi. Breytingarnar munu að jafnaði þýða 4,5% hækkun ráðstöfunartekna heimilanna og koma öllum Íslendingum til góða, segja ungir sjálfstæðismenn.

Innlent
Fréttamynd

Alfarið á móti sameiningu

Guðjón Hjörleifsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður sjávarútvegsnefndar, segist vera alfarið á móti því að krókaflamarkskerfið, sem oft er kallað litla kerfið, og stóra kerfið verði sameinuð.

Innlent
Fréttamynd

Þorri sjálfstæðismanna mætti ekki

Sautján af tuttugu og tveimur þingmönnum Sjálfstæðismanna voru forfallaðir í gær þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands bauð þingheimi til árlegrar veislu í tilefni fullveldisdagsins 1. desember. Þorri annarra þingmanna sótti hins vegar veisluna.

Innlent
Fréttamynd

Sluppu við að greiða skattinn

Sex erfingjar sem fengu samanlagt um 65 milljónir króna í arf þurfa engan erfðafjárskatt að greiða. Ástæðan eru mistök sem gerð voru við lagasetningu. Sýslumaðurinn í Reykjavík rukkaði erfingjana um tæpar sex milljónir króna í erfðafjárskatt en Hæstiréttur dæmdi í gær að engin heimild hefði verið fyrir skattlagningunni.

Innlent
Fréttamynd

200 milljóna niðurskurður

Grípa þarf til niðurskurðar í rekstri Hafnarfjarðarbæjar til að mæta kjarasamningi kennara, segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri. Hann, ásamt Einari Njálssyni bæjarstjóra Árborgar, áréttar að tekjustofnar sveitarfélaganna séu veikir.

Innlent
Fréttamynd

Afstaða til stríðsins auglýst

Í gær hóf Þjóðarhreyfingin að safna fé til að birta yfirlýsingu í bandaríska blaðinu New York Times þar sem afstaða íslensku þjóðarinnar til innrásarinnar í Írak verður kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Heimdallur harmar hækkunina

Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna, harmar þá ákvörðun stjórnvalda að hækka áfengisskatt sem fyrir hafi verið sá hæsti í heiminum. Hann hafi síðast verið hækkaður um 15% árið 2002 og nú um 7%. Þetta gerist á sama tíma og Danir hafi verið að lækka áfengisskatt um 45%, Finnar um 33% og Svíar stefni að 30-40% lækkun.

Innlent
Fréttamynd

Engin viðræðuslit

Reykjavíkurborg telur óvíst að lífeyrisskuldbindingar hrökkvi fyrir hlut hennar í Landsvirkjun og ásælist eignir ríkisins á borð við flugvallarlandið. Einnig er hugmynd uppi um að borgin kaupi hluta RARIK. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Þingmenn reiðast orðalagi

Hópur fólks mótmælti stuðningi Íslands við innrásina í Írak fyrir framan alþingishúsið í gær, líkt og undanfarna daga. Minna var þó um að alþingismenn ræddu við mótmælendur en daginn áður því þingstörf lágu niðri í gær.

Innlent
Fréttamynd

Samþykkt ráðherra fyrir bí

Samþykkt heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum um áfengismál frá átjánda október er fokin út í veður og vind með hækkun áfengisskatts hér á landi en stórfelldri lækkun á sama skatti í hinum norrænu ríkjunum. 

Innlent
Fréttamynd

Fylgst með þróun mannréttinda hér

Louis Arbor, æðsti yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, ætlar að fylgjast grannt með þróun mannréttindamála á Íslandi eftir að stjórnvöld ákváðu að hætta að styrkja Mannréttindaskrifstofu Íslands. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins í gær.

Innlent
Fréttamynd

Happdrættislög í bága við EES

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA hefur gefið ríkisstjórninni þrjá mánuði til að breyta lögum um happdrætti þar sem þau stangist á við EES samninginn.

Innlent
Fréttamynd

Fjölskylda fær skaðabætur

Afganska ríkisstjórnin hefur greitt fjölskyldu Feribu, 13 ára gamallar stúlku sem lést í sjálfsmorðsárás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl, rúmar 140 þúsund krónur í skaðabætur fyrir dótturmissinn.

Erlent
Fréttamynd

Konur fæstar í íslenskum stjórnum

Hlutfall kvenna í stjórnum stærstu fyrirtækja hér á landi er aðeins ellefu prósent á Íslandi á meðan hlutfallið á Norðurlöndunum í heild er 16,5%.

Innlent
Fréttamynd

Grefur undan samstarfi

Mannréttindastofnun Abo-háskóla í Finnlandi hefur sent áskorun til Alþingis þar sem áhyggjum er lýst yfir tillögum meirihluta fjárlaganefndar um að fella niður styrk til Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjórinn komi úr Framsókn

Líklegt er að framsóknarmenn í bæjarstjórn Kópavogs fari fram á að embætti bæjarstjóra haldist í þeirra röðum þangað til í júní þegar Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tekur við starfinu.

Innlent
Fréttamynd

Hækkun leikskólagjalda frestað

Hækkun leikskólagjalda fyrir sambúðarfólk þar sem annað foreldri er í námi verður frestað samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans höfðu samþykkt að frá og með áramótum myndi þessi hópur greiða jafnhá leikskólagjöld og sambúðarfólk þar sem báðir eru á vinnumarkaði. Við það hefðu gjöldin hækkað um 42 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Þingið leyndi hækkuninni

Alþingi leyndi landsmenn fyrirætlun sinni um að taka fyrir hækkun áfengisgjalds á þinginu í gær. Þetta var gert svo almenningur hamstraði ekki sterka drykki og tóbak í stórum stíl.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnvöld bregðist við vandanum

Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins á Húsavík ítrekar fyrri ályktun sína frá því 15. september síðastliðinn þar sem félagið skoraði á stjórnvöld að bregðast þegar við þeim alvarlega vanda sem blasti við Mývatnssveit þegar starfsemi Kísiliðjunnar legðist af.

Innlent
Fréttamynd

Skilar ríkissjóði 340 milljónum

Alþingi samþykkti í kvöld frumvarp sem felur í sér að áfengisgjald á sterku víni og tóbaki hækkar um 7%. Áfengisgjald af léttu víni og bjór verður óbreytt. Hækkunin skilar ríkissjóði 340 milljóna króna tekjuauka.

Innlent
Fréttamynd

Þeir tekjuháu fá mest

Barnmargar fjölskyldur með ung börn og háar tekjur koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar miðað við útreikninga sem gerðir voru fyrir Fréttablaðið. Barnlausir einstaklingar koma verst út úr þeim. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Davíð fór mikinn á þinginu

Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði að yrðu Íslendingar teknir af lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak nú jafngilti það því að hann færi upp á Landspítalann og segði að hann tæki til baka samþykki sitt fyrir krabbameinsaðgerðinni sem framkvæmd var í sumar. Um afstöðu Samfylkingarinnar í Íraksmálinu sagði Davíð að flokkurinn væri „afturhaldskommatittsflokkur“.

Innlent
Fréttamynd

Framkvæmdum frestað

Í fjárlagafrumvarpi 2005 er gert ráð fyrir tveggja milljarða króna frestun framkvæmda og eins milljarðs króna lækkun annarra útgjalda ríkissjóðs.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið í skuld við sveitarfélögin

Ríkisvaldið er í skuld við sveitarfélögin að mati Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, en hvorki Árni Magnússon félagsmálaráðherra né Geir H. Haarde eru tilbúnir til að greiða hana. Hann sagði í umræðu á Alþingi í gær að fulltrúar sveitarfélaganna kvörtuðu sáran undan því að illa gangi í samningum við ríkið um breytingar á tekjuskiptingu milli þeirra og ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Þróunarsjóður gagnist Íslendingum

Stjórnvöld hvetja íslensk fyrirtæki til að hefja samstarf við fyrirtæki í nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Með því móti eiga íslensk fyrirtæki möguleika á að ná til sín hluta þess fjár sem Ísland greiðir í þróunarsjóð sambandsins. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ráðuneyti birtir ekki stefnu

"Við sjáum ekki fram á það að utanríkisráðuneytið geti tekið að sér að birta bandarískum stjórnvöldum stefnuna," segir Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisvaldið neitar að borga

Ríkisvaldið stendur í skuld við sveitarfélögin en lætur eins og það sé statt í miðjum grínfarsa og neitar að borga. Þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag í umræðum um skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. 

Innlent
Fréttamynd

Sænsk stofnunin skorar á alþingi

Raoul Wallenberg mannréttindastofnunin í Svíþjóð hefur lýst yfir áhyggjum yfir tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis um að hætta fjárveitingum til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hefur hún þess vegna sent Alþingi áskorun þar sem þingmenn eru hvattir til að endurskoða tillöguna.

Innlent
Fréttamynd

Skattalækkanir þyngja budduna

Útreikningar Fréttablaðsins sýna að barnmargar fjölskyldur og tekjuháar koma best út úr skattabreytingum ríkisstjórnarinnar. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tekur ekki jafndjúpt í árinni og Geir H. Haarde fjármálaráðherra sem telur að skattalækkanirnar hafi verið rangtúlkaðar í fjölmiðlum.

Innlent