Stj.mál
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 187 ›
Formlegar sprengingar við Héðinsfjarðargöng hefjast í dag Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tendrar fyrstu formlegu sprengingu við Héðinsfjarðargöng klukkan fjórtán í dag. Sprengingin verður framkvæmd við gangamunna Siglufjarðarmegin í Skútudal. Innlent 30.9.2006 11:03
Dagur kjörinn formaður sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur verið kjörinn formaður nýrrar stjórnar sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar, en það var gert á aðalfundi ráðsins á Akureyri í gærkvöldi. Formaður ráðsins var kjörinn í netkosningu meðal sveitarstjórnarmanna og segir í tilkynningu frá Samfylkingunni að þetta muni vera í fyrsta sinn sem sú aðferð er viðhöfð hjá íslenskum stjórnmálaflokki. Innlent 28.9.2006 15:44
FF fagnar nýjum tillögum um íbúðalánamarkað Félag fasteignasala fagnar tillögum stýrihóps félagsmálaráðherra um að staðinn sé vörður um stefnu íslenskra stjórnvalda í húsnæðismálum og að Íbúðalánasjóður gegni þar mikilvægu hlutverki. Innlent 28.9.2006 15:08
Tveir berjast um formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga verður kjörinn á landsfundi á morgun. Baráttan stendur einkum milli tveggja sveitarstjórnarmanna. Innlent 28.9.2006 14:55
Einhver dapurlegasti dagur langrar starfsævi „Þetta er einhver dapurlegasti dagur sem ég hef lifað á langri starfsævi vegna þess að hér er verið að hefja mestu mögulegu óafturkræfu umhverfissspjöll sem hægt er að fremja á Íslandi og það á kostnað milljóna ófæddra Íslendinga,“ sagði Ómar Ragnarsson fréttamaður í samtali við NFS, en hann er nú staddur við Kárahnjúka þar sem hann hyggst fara á báti niður gljúfrin sem fara nú undir Háslón. Innlent 28.9.2006 14:40
Segja daginn sorgardag á Íslandi Félag um verndun hálendis Austulands og Náttúruverndarsamtök Austurlands hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segja daginn í dag sorgardag á Íslandi, en eins og kunnugt er hófst fylling Hálslóns í morgun. Félögin segir að með því hafi herför valdsins gegn vesturöræfum við Snæfell hafist og að Ísland verði fátækara í kvöld en það var í morgun. Innlent 28.9.2006 13:51
Níu gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi Níu manns gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga, þar af fjórir sem sækjast eftir forystusætinu. Þetta varð ljóst eftir að framboðsfrestur rann út í gær. Innlent 28.9.2006 13:37
Stóraukin áhersla á íslenskt efni á RÚV Stóraukin áhersla verður lögð á íslenskt efni hjá Ríkisútvarpinu samkvæmt samkomulagi sem menntamálaráðuneytið og Ríkisútvarpið hafa gert um drög að samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Samningurinn á að skilgreina nánar tilgang og hlutverk RÚV og þær kröfur sem gerðar eru til Ríkisútvarpsins á grundvelli þess frumvarps sem lagt verður fram á fyrstu dögum þingsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Innlent 28.9.2006 12:46
Sprengingar hafnar við Héðinsfjarðargöng Sprengingar eru hafnar við eina dýrustu samgönguframkvæmd sögunnar, Héðinsfjarðargöng. Göngin verða fullbúin eftir þrjú ár. Innlent 28.9.2006 12:32
Fylling Hálslóns hefur gengið vel Jökla var stífluð við Kárahnjúka á tíunda tímanum í morgun og gekk framkvæmdin vel að sögn talsmanns virkjunarinnar. Hálslón er byrjað að myndast og hefur það hækkað um tíu metra við stífluna frá því að tappinn var settur í. Fyrir neðan stíflu er Jökla að hverfa. Innlent 28.9.2006 12:17
Forseti litháíska þingsins í opinberri heimsókn Viktoras Muntianas, forseti litháíska þingsins, er í opinberri heimsókn hér á landi sem hófst í gær og stendur fram á laugardag. Forsetinn mun ásamt sendinefnd funda með Sólveigu Pétursdóttur, forseta Alþingis, og fulltrúum þingflokka. Innlent 28.9.2006 11:00
Kynna drög að samningu um útvarpsþjónustu í almannaþágu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri hafa boða til blaðamannafundar nú klukkan tólf þar sem kynnt verða drög að samningi ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Greint verður frekar frá fundinum á Vísi síðar í dag. Innlent 28.9.2006 10:51
Vill óháða rannsóknarnefnd vegna leyniþjónustustarfsemi Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vill að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd til að kanna umfang leyniþjónustustarfsemi hér á tímum kalda stríðsins. Kemur sú krafa í framhaldi af uppljóstrunum Þórs Whitehead sagnfræðings sem greindi frá í því í grein í ritinu Þjóðmál að slík starfsemi hefði verið á vegum stjórnvalda á tímabilinu. Innlent 28.9.2006 10:11
Ráðstefna um mikilvægi vetnistækni í Reykjavík Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra setti í dag ráðstefnu um mikilvægi vetnistækni fyrir sjálfbæra þróun. Ráðstefnan er haldin í Reykjavík. Innlent 28.9.2006 09:58
Gunnar Axel sækist eftir 4.-5. sæti í Kraganum, Gunnar Axel Axelsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember næstkomandi. Þar sækist hann eftir eftir stuðningi í 4.-5. sæti. Innlent 27.9.2006 17:32
Bjóða nýja sérhæfða þjónustu fyrir aldraða Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hleypti í dag af stokkunum nýrri sérhæfðri heimaþjónusta fyrir veika aldraða. Um er að ræða samstarfsverkefni milli Landspítala - háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 27.9.2006 17:15
Telja að efla þurfi sveitarstjórnarstigið Meirihluti sveitarstjórnarmanna telur að efla þurfi sveitarstjórnarstigið á Íslandi samkvæmt könnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst vann að beiðni félagsmálaráðuneytisins. Innlent 27.9.2006 16:36
Ármann í framboð í Suðvesturkjördæmi Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Innlent 27.9.2006 14:36
Gera athugasemdir við matsáætlanir vegna tveggja virkjana Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert athugasemdir við matsáætlanir Orkuveitu Reykjavíkur vegna jarðgufuvirkjana á Ölkelduhálssvæði og við Hverahlíð á Hellisheiði. Innlent 27.9.2006 12:54
Gengið á þremur öðrum stöðum en í Reykjavík Það var ekki aðeins í Reykjavík sem andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar efndu til mótmælagöngu í gærkvöld. Þónokkur fjöldi fólks fór um götur Egilsstaða þessara sömu erindagjörða í gær sem út af fyrir sig vekur athygli þar eð efnahagslegur ávinningur virkjanaframkvæmdanna er mestur á Austurlandi. Innlent 27.9.2006 12:17
Hvetja til minni fiskneyslu í mannúðarskyni Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund eru að hefja herferð þar sem Evrópubúar eru hvattir til að borða minni fisk í eins konar mannúðarskyni. Innlent 27.9.2006 12:08
Íslendingar eignast sína fyrstu herþotu Íslendingar hafa eignast sína fyrstu herþotu og það gerist við brotthvarf Varnarliðsins. Þotan er þó ekki af nýjustu gerð, heldur er um að ræða F-4 þotu sem sett hefur verið á stall á Keflavíkurflugvelli sem safngripur. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Innlent 27.9.2006 11:01
Samfylkingin fundar með bændaforystunni Þingflokkur Samfylkingarinnar situr nú á fundi með fulltrúum úr stjórn Bændasamtaka Íslands þar sem flokkurinn kynnir þeim tillögur sínar að lækkun matarverðs. Innlent 27.9.2006 10:50
Kristján sækist eftir sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar í Kraganum Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Álftaness, gefur kost á sér í eitt af efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Fram kemur í tilkynningu frá honum að hann hafi lengi starfað að sveitarstjórnarmálum á Álftanesi en áður í Kópavogi. Innlent 27.9.2006 10:24
Sigríður stefnir aftur á þing fyrir Samfylkinguna Sigríður Jóhannesdóttir, kennari og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Prófkjörið fer fram þann 4. nóvember. Innlent 27.9.2006 10:19
Vilja breytingar á tollum, sköttum og vörugjöldum sem allra fyrst Stjórn Heimdallar, ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur ríkisstjórnina til að ráðast í breytingar á fyrirkomulagi vörugjalda, virðisaukaskatts, tolla og annarra innflutningshafta á íslenskum matvörumarkaði og tryggja að þær breytingar nái að ganga í gegn sem allra fyrst. Innlent 27.9.2006 09:56
SBV gagnrýnir niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) harma niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra sem skilaði af sér tillögum um aðkomu ríkisins að húsnæðislánamarkaði. Hópurinn leggur til að komið verði á fót heildsölubanaka sem sinni fjármögnun íbúðarlaána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. Innlent 26.9.2006 17:28
Lagt til að stofnaður verði heildsölubanki Stýrihópur um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum leggur til að stofnaður verði nýr Íbúðabanki sem sinni fjármögnun íbúðarlána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. Þetta kemur fram í lokaáliti stýrihópsins sem félagsmálaráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag. Innlent 26.9.2006 15:58
Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu. Innlent 26.9.2006 15:20
Vill að Akureyrarflugvöllur verði lengdur Aðalfundur Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingyejarsýslum, leggur áherslu á að lenging Akureyrarflugvallar verði forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætlunar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi sambandsins um helgina. Innlent 26.9.2006 15:14