
Hvalveiðar

Segir sameiningar háskóla efla háskólastarf um land allt
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, ræddi sameiningu háskóla í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagðist skilja ótta við breytingar og að það væri eðlilegt að margar spurningar vöknuðu við stórar sameiningar.

Tíðindin breyti ekki afstöðu þingmanna til málsins
Formaður Flokks fólksins segir ekkert annað hafa komið til greina en að draga til baka vantraust en hvalveiðimálið vofi þó enn yfir. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn ekki hafa verið búinn að komast að afstöðu til vantrausts þegar tíðindi af veikindum ráðherra bárust. Tíðindin breyti þó ekki óánægju flokksins með málið.

Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar.

Vantrauststillaga á matvælaráðherra komin fram
Inga Sæland mælir fyrir tillögu til þingsályktunar um vantraust á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra.

Útspil Svandísar
Það blasir við öllum að staða Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, er mjög veik. Það er auðvitað með talsverðum ólíkindum að undanfarnar vikur hefur ráðherra setið í meirihlutastjórn án þess að njóta stuðnings samstarfsflokkanna.

Ólíklegt að umræða um vantraust fari fram samdægurs
Ólíklegt er að umræður og atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu í garð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, fari fram í dag.

Hissa yfir viðbrögðum Svandísar og segir þau vonbrigði
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðismanna, segir að viðbrögð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vegna álits umboðsmanns Alþingis vera sér vonbrigði. Hún segir að þingflokkur Sjálfstæðismanna muni fara yfir stöðuna síðar í dag.

Svandís grípur til aðgerða þótt lögfræðiálit segi að þess þurfi ekki
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, ætlar að fela óháðum aðila að fara yfir stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða og ríkislögmanni að leggja mat á erindi Hvals hf. um mögulegt uppgjör vegna hvalveiðimálsins. Þetta gerir Svandís þrátt fyrir að lögfræðilegt álit ráðuneytis segi að hún þurfi ekki að grípa til sérstakra aðgerða.

Kostulegur hvalaflutningur myndi toppa ráðuneytisflakk Bjarna
Lögð verður fram vantrauststillaga á hendur Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á Alþingi í vikunni. Sigmundur Davíð furðar sig á því hvað Sjálfstæðismenn hafa beðið lengi eftir viðbrögðum VG vegna málsins. Hann gerir ráð fyrir að stjórnarandstaðan styðji tillöguna enda ekki verk hennar að styðja ríkisstjórnina.

Pískrað milli þingmanna að hvalveiðar verði færðar milli ráðuneyta
Þingmaður Viðreisnar segir pískrað inni í Alþingi um að hvalveiðar verði færðar úr matvælaráðuneytinu yfir í umhverfisráðuneytið. Svandísi verði þannig forðað frá vantrausti í nafni náttúruverndar og um leið fái Sjálfstæðisflokkurinn stjórn á málaflokknum.

„Hún á ekki að vera ráðherra“
Formaður Flokks fólksins segir vantrausttillögu sem hún hyggst leggja fram á hendur matvælaráðherra á morgun, snúast um lögbrot ráðherra í starfi. Um grafalvarlegt mál sé að ræða og einhverskonar stólaskipti eða aðrar hrókeringar innan ríkisstjórnarinnar sé alls ekki nóg.

„Við bíðum viðbragða VG og setjumst svo yfir stöðuna“
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn bíða viðbragða frá VG vegna boðaðrar vantraustillögu á hendur matvælaráðherra. Viðbrögðin geti breytt miklu um hina pólitísku stöðu.

Leggja fram vantrauststillögu á hendur Svandísi á mánudag
Inga Sæland ætlar að leggja fram vantrauststillögu á hendur Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á mánudag þegar þing kemur aftur saman.

Viðbrögð sem gæta meðalhófs
Hvernig má bregðast gegn sjötta skeiði fjöldaútrýmingar og gæta meðalhófs? Hvernig má bregðast gegn loftslagsvánni og þeirri staðreynd að við erum að fara yfir 1.5 gráður, og gæta meðalhófs?

Í takt við við fortíðina eða framtíðina?
Þegar stjórnmálamenn og hagsmunaaðilar hafa lokið skák sinni, í réttarkerfi Íslands sem og í fjölmiðlum landsins, mun á endanum sannleikurinn einn standa eftir. Að baki þeirri ákvörðun að stöðva hvalveiðar tímabundið sumarið 2023 er óhrekjanlegur sannleikur.

Hvalveiðar setja samfélag okkar á hvolf
Að ráðast inn í hvalasamfélag og splundra því er ekkert öðruvísi en að ráðast inn í samfélag hjá okkur mannfólkinu. Má það?

Meðalhóf í dýraníði
Langreyðin í myndbandinu frá MAST sem synti helsærð með fjóra skutla í skrokknum í 120 mín í dauðastríðinu hafði ekki stöðu til að verja sig fyrir umboðsmanni Alþingis, hvað þá gera kröfu um það fyrir dómi að sækja rétt sinn að fá að deyja eðlilegum dauðdaga.

Hefur áhyggjur af því að allir séu upp á kant við ráðherra
Vilhjálmur Árnason, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki upplifa átök innan flokksins um stöðu matvælaráðherra. Það sé búið að vera ljóst síðan í sumar að þingflokknum hafi fundist ákvörðun ráðherra um að fresta hvalveiðum slæm.

Svartstakkarnir herða tökin
Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, telur stöðu Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, vera óbærilega.

Svandís eigi ekki kröfu á að „starfa í skjóli Sjálfstæðisflokksins“
„Ekki verður séð hvernig ráðherra, sem virðir ekki gildandi lög vegna þess að hann telur þau úrelt eða þau samræmist ekki eigin pólitískum áherslum, geti gert kröfu til þess að starfa í skjóli Sjálfstæðisflokksins.“

Velferð dýra framar atvinnufrelsi til pyntinga
Álit umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða liggur nú fyrir. Umboðsmaður metur svo að útgáfa reglugerðar hafi ekki, miðað við þær aðstæður sem uppi voru, samrýmst kröfum um meðalhóf eins og þær leiða af almennum reglum stjórnsýsluréttar.

VG hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki tímabært að tjá sig um boðaða vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra en bendir á að Vinstri Grænir hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti þegar á það reyndi.

Ákvörðun Svandísar hafi verið í samræmi við mat sérfræðinga
Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um tímabundna frestun upphafs hvalveiða var í samræmi við mat og ráðgjöf sérfræðinga matvælaráðuneytisins.

Áhyggjuefni að umboðsmaður setji dýravelferð til hliðar í álitinu
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) segir það vonbrigði að umboðsmaður Alþingis gefi gömlum hvalveiðilögum meira vægi en nýjum dýraverndarlögum í nýju áliti sínu um hvalveiðar.

Svandís og sjallarnir
Enn eina ferðina eru ríkisstjórnarflokkarnir tveir, VG og Sjálfstæðisflokkur, að opinbera vandræðaganginn á stjórnarheimilinu.

Vantrauststillaga lögð fram um leið og þing kemur saman
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir flokkinn munu leggja fram vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra um leið og Alþingi kemur saman 22. janúar næstkomandi.

Bíða viðbragða ríkisstjórnarinnar
Stjórnarandstaðan er ekki samstíga um hvort leggja eigi fram vantrausttillögu á matvælaráðherra þegar Alþingi kemur saman á ný. Sumir eru á því á meðan aðrir telja þetta vandamál ríkisstjórnar.

Hvenær brýtur maður lög?
Þessa dagana hugsar gamla ísland sér gott til glóðarinnar. Gömlu hagsmunaöflin um óbreytt fyrirkomulag í sjávarútvegi, forherrta valdaklíkan sem ekki má anda á og það er Þórðargleði hjá stjórnarandstöðu sem sér færi á að fella ríkisstjórn með vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur út af framgöngu hennar í dýravelferðarmáli.

Hyggst leggja fram vantrauststillögu gegn Svandísi
Formaður Flokks fólksins segist líta álit umboðsmanns Alþingis, um að matvælaráðherra hafi ekki gætt meðalhófs við bann á hvalveiðum, mjög alvarlegum augum. Hún hafi rætt við formenn annarra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi um að lýsa yfir vantrausti gegn ráðherranum.

Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“
Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok.