
Reykjavíkurkjördæmi suður

Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG
Listar Vinstri grænna fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður og suður voru samþykktir á fundi flokksins sem hófst á Nauthóli klukkan 17:30 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Kunnugleg andlit skipa fyrstu sæti beggja lista en athygli vekur að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, skipar heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Það er kjördæmið sem hún skipaði áður forystusætið.

Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, sem bauð sig fram til þriðja eða fjórða sætis á lista Samfylkingar í Reykjavík verður ekki að ósk sinni. Hann greinir frá því í færslu á Facebook.

Dagur mun ekki skipa oddvitasæti í Reykjavík
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, mun ekki skipa efsta sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum. Viðbúið er að hann skipi annað sætið á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður
Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaþingmaður, hefur verið tilnefnd af uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í annað sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Kosið verður um lista Samfylkingarinnar á morgun.

Þorbjörg, Jón og Aðalsteinn efstu þrjú hjá Viðreisn í Reykjavík suður
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður og fyrrverandi saksóknari, leiðir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður í komandi þingkosningum. Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri, skipar annað sætið og Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, er í þriðja sæti.

Þau skipa efstu sætin á listum Lýðræðisflokksins
Lýðræðisflokkurinn hefur kynnt þau sem munu skipa efstu sætin á listum flokksins í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember næstkomandi.

Alexandra afþakkar þriðja sætið
Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, mun ekki taka þriðja sæti á lista flokks síns í Reykjavíkurkjördæmi suður, eins og henni stóð til boða. Hún hefur ákveðið að óska eftir því við kjörstjórn að vera færð í fjórða sæti í Reykjavík norður.

Jón Gnarr sáttur með annað sætið
Samkvæmt heimildum Vísis bendir flest til þess að Jón Gnarr verði settur í annað sæti Viðreisnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna.

Tekur ekki sæti á lista og hættir í flokknum
Valgerður Árnadóttir, formaður Pírata í Reykjavík, hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista Pírata í komandi kosningum og sömuleiðis segja af sér formennski Pírata í Reykjavík.

„Ég átti ekki von á fyrsta sæti“
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata hlaut flest atkvæði í prófkjöri flokksins til lista í Reykjavíkurkjördæmunum. Björn Leví Gunnarsson hlaut næstflest atkvæði og munu þau tvö því leiða lista í kjördæmumum tveimur.

Býður sig fram en reiknar ekki með sæti á þingi
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gefur kost á sér í þriðja sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, fyrir alþingiskosningar þann 30. nóvember.

Grímur undir feldi
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íhugar alvarlega framboð fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.

Sjálfstæðisflokkurinn skuldi kjósendum skýringar
Ólafur Adolfsson nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir Sjálfstæðisflokkinn skulda kjósendum sínum skýringar. Það hafi verið röng ákvörðun að halda áfram í ríkisstjórnarsamstarfinu. Í flokknum sé verið að skipta út fólki því kjósendur vilji nýjar áherslur.

Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, verður oddviti Flokks fólksins í öðru af tveimur Reykjavíkurkjördæmum. Hann tekur þar oddvitasæti af Tómasi A. Tómassyni.

Þau taka þátt í prófkjöri Pírata
Framboðsfrestur í prófkjöri Pírata rann út klukkan 16 og hófst prófkjörið á sama tíma. Kosningin mun standa til klukkan 16 á þriðjudag en alls eru 69 í framboði.

Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Frá því greinir Sanna í tilkynningu á Facebook.

Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var
Sigríður Á. Andersen segir ákvörðun sína um að leiða lista Miðflokksins í komandi kosningum ekki skýrast af því að hún sé að flýja Sjálfstæðisflokkinn. Hún greindi frá því að hún myndi leiða annan Reykjavíkurlista Miðflokksins í komandi kosningum.

Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins
Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi ráðherra, mun leiða einn lista Miðflokksins.

Spurt um áhuga fólks á Degi í forystu í Reykjavík
Keyptar voru spurningar í spurningavagn Prósents til að kanna áhuga á framboði Dags B. Eggertssonar fyrrverandi borgarstjóra fyrir Samfylkinguna.

„Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“
Snorri Másson fjölmiðlamaður tilkynnti fyrr í dag að hann stefni á forystusæti í öðru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Miðflokkinn. Hann segist ekki hafa fastmótaða skoðun á því hvort kjördæmanna það verður.

Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík
Snorri Másson fjölmiðlamaður sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi Alþingiskosningum.

Vill úr borgarstjórn á Alþingi
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu Pírata á Alþingi og býður sig fram í Reykjavík.

Vill að rödd hins almenna launamanns heyrist á Alþingi
Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins ætlar að blanda sér í pólitíkina og gefur kost á sér í 2. sæti hjá Samfylkingunni í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. Hvort þeirra? Kristján Þórður segir að það verði svo bara að koma á daginn hvernig uppstillingarnefnd hagi sínum störfum.

Stillt upp á alla lista Viðreisnar
Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins.

Sara sækist eftir fyrsta sæti í Reykjavík hjá Pírötum
Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata sækist eftir því að leiða lista Pírata í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Fyrr í dag tilkynnti Lenya Rún Taha Karim um það sama. Áður hafa oddvitar kjördæmanna og þingmenn flokksins, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunnarsson, gefið það út að þau ætli að halda áfram. Það er því ljóst að slagur verður um efstu sætin í prófkjöri Pírata.

Lárus leiðir uppstillingarnefnd Framsóknar í Reykjavík
Lárus Sigurður Lárusson lögmaður leiðir kjörnefnd í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Framsóknarflokkinn. Með honum í nefndinni eru þau Haukur Logi Karlsson, Fanný Gunnarsdóttir, Ásta Björg Ólafsdóttir, Teitur Erlendsson, Björn Ívar Björnsson og Unnur Þöll Benediktsdóttir

Jón Magnús gefur kost á sér
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, mun óska eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.

Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík
Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar.

Áslaug Arna vill halda sæti sínu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Stefnir á áframhaldandi þingsetu
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, stefnir á áframhaldandi þingsetu. Hann segist eiga eftir að taka samtalið við félaga sína í Sjálfstæðsflokknum í Reykjavík en að hann muni áfram bjóða fram krafta sína.