
Ferðaþjónusta

Sigurður Hjartarson er látinn
Sigurður Hjartarson, fyrrverandi menntaskólakennari og stofnandi Hins íslenzka reðasafns, er látinn 82 ára að aldri. Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir rithöfundur og dóttir Sigurðar greinir frá andláti hans á Facebook.

Lilja Dögg ráðherra er ánægð með að Bláa lónið sé opið
Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir er mjög sátt við að Bláa lónið sé opið þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesi. Hún segir fyrirtækið afar mikilvægt þegar ferðaþjónustan er annars vegar en þar starfa tæplega níu hundruð manns.

Lætur draum látins eiginmanns síns rætast á Íslandi
„Ég veit að hann á eftir að vera með okkur í anda,“ segir Sinéad Nolan Martin, 27 ára gömul kona frá Englandi í samtali við Vísi en í næsta mánuði mun hún leggja af stað í 40 kílómetra göngu frá Nesjavöllum til Þingvalla. Þannig hyggst hún heiðra minningu eiginmanns síns, Harry Martin, sem lést úr sjaldgæfu krabbameini árið 2021, einungis 25 ára gamall. Einn stærsti draumur Harry þegar hann var á lífi var að heimsækja Ísland.

Þrír samverkandi þættir gætu leitt til þess að ferðamönnum fækki í ár
Það eru ýmsar vísbendingar um að samdráttur sé í kortunum. Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa stigið fram og lýst yfir áhyggjum af þróuninni, segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). „Það er ekki lögmál að hér fjölgi alltaf ferðamönnum,“ segir framkvæmdastjóri Snæland Grímssonar.

Opna spa í gamalli garðyrkjustöð á Flúðum
Samkomulag um uppbyggingu á vegum Greenhouse Spa á Flúðum var undirritað á milli fyrirtækisins og Hrunamannahrepps í liðinni viku. Svæði fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi hafði áður verið auglýst laust til úthlutunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjóra Flúða, Aldísi Hafsteinsdóttur.

Vara við aðstæðum í Reynisfjöru næstu daga
Lögreglan á Suðurlandi vill vekja athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólahringinn. Sérstaklega er bent á að aðstæður í Reynisfjöru geti reynst mjög varhugaverð.

Bænastund í Vík vegna ökumannsins sem lést
Erlendir ferðamenn voru um borð í jeppa sem skall saman við dráttarvél austan Sólheimasands á Suðurlandsvegi í gær. Ökumaður dráttarvélarinnar lést í árekstrinum. Erfiðar aðstæður voru í suðaustanáttinni á vettvangi þegar slysið varð. Boðað hefur verið til bænastundar í Víkurkirkju í Mýrdalshreppi í kvöld.

Enginn fari niður í fjöru í Reynisfjöru
Lögreglan á Suðurlandi vill vekja athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólarhringinn og er sérstaklega bent á að aðstæður í Reynisfjöru geti reynst mjög varhugaverðar.

Tengifarþegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri viðdvöl á Íslandi
Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið.

Vísbendingar um að ferðamönnum fjölgi ekki í ár - jafnvel samdráttur
Vísbendingar eru um að það verði ekki vöxtur í fjölda ferðamanna í ár og jafnvel samdráttur, segir forstjóri eins stærsta ferðaþjónustu fyrirtækis landsins. Það er þvert á opinberar spár.

Gúanólýðveldið Ísland
Allsstaðar í heiminum er gengið út frá því sem vísu að fyrirtæki starfi undir eigin lögheiti - nema bara ekki á Íslandi. Þar gilda engin lög um slíkt og því engin viðurlög í gildi fyrir óheimila notkun á firmaheitum eða vörumerkjum annarra.

Formaður og ritari Félags leiðsögumanna segja af sér
Formaður og ritari Leiðsagnar - Félags Leiðsögumanna, Jóna Fanney Friðriksdóttir og Dóra Magnúsdóttir, hafa sagt af sér vegna þeirrar ólgu sem hefur geisað innan stjórnar félagsins frá því í október þegar stjórnarmeðlimir kröfðust afsagnar formanns.

Keyptu sögufrægt hús á 800 milljónir
Félagið Laug ehf. í eigu Kristjáns Magnasonar og Jóhanns Guðlaugs Jóhannssonar hefur keypt Háteigsveg 1 sem um árabil hýsti Apótek Austurbæjar. Hótelrekstur hefur verið í húsinu undanfarin ár og verður áfram undir heitinu 105-Townhouse Hotel.

Ferðamenn óhræddir við að fara í nýopnað lónið
Bláa lónið var opnað aftur í dag eftir að hafa verið lokað í flýti síðastliðinn sunnudag vegna eldgossins við Grindavík. Framkvæmdastjóri segir gleðitíðindi að starfsemi sé hafin að nýju og ferðamenn, þeir eru ánægðir.

„Nýr og breyttur veruleiki sem við ætlum að lifa með“
Bláa lónið opnaði á ný í morgun eftir vikulokun. Framkvæmdastjóri sölu- rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.s segir enga ónotatilfinningu á meðal starfsfólks né gesta. Nýr veruleiki blasi við og ljóst að Bláa lónið muni koma til með að opna og loka á víxl næstu árin.

„Ekki í boði“ að starfsemi í Svartsengi leggist af
Bláa lónið opnar aftur í dag eftir að hafa verið rýmt síðastliðinn sunnudag, í aðdraganda eldgossins í Grindavík. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að leita verði lausna fyrir fyrirtæki í Svartsengi. Það sé ekki í boði að starfsemi þeirra leggist af.

Bílastæðin við Landmannalaugar verða ekki stækkuð í bráð
Áform um stækkun bílastæðis við Landmannalaugar hafa verið slegin af með úrskurði Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Heildarmat skorti og samræmi við lög um stjórn vatnamála.

Óvíst hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný
Óvíst er hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný. Forsvarsmenn þess bíða eftir nýju hættumati til að hægt verði að taka ákvörðun um framhaldið. Nýja hættumatið verður birt á morgun. Þá hefur vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík verið frestað í dag af öryggisástæðum en mikið hefur snjóað á svæðinu.

Hin látnu voru pólskir ferðamenn
Þau tvö sem létust í bílslysi á þjóðveginum við Skaftafell síðastliðinn föstudag voru pólskir ferðamenn.

Birta nýr framkvæmdastjóri hjá Arctic Adventures
Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra sölu-, markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Arctic Adventures. Hún hefur þegar hafið störf og tekið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Ætla ekki að bjóða upp á útsýnisflug yfir gosið
Forsvarsmenn þyrlufyrirtækisins HeliAir Iceland hafa ákveðið að bjóða ekki upp á útsýnisflug á meðan óvissan er mikil varðandi hús og eignir fólks í Grindavík eftir að eldgos hófst í morgun. Hugur fyrirtækisins er hjá Grindvíkingum.

Tröllaskagi er „skíðahöfuðborg“ Íslands
Fyrrverandi ferðamálastjóri gerir það gott í ferðaþjónustu þegar skíði eru annars vegar í Fljótum á Tröllaskaga en þar er hægt að fara á gönguskíði, alpaskíði eða fjallaskíði. Vinsældir skíðaferða á svæðið hafa slegið í gegn enda talað um Tröllaskaga, sem „Skíðahöfuðborg“ Íslands.

Tveir létust í slysinu
Tveir erlendir ferðamenn létust í alvarlegu umferðarslysi sem varð laust fyrir klukkan tíu í morgun á Þjóðvegi 1 skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðum áttum skullu saman, en mikil ísing var á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Skilaboð til ferðabransans að vera ekki með minnimáttarkennd
Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja segir umfjöllun bandaríska fréttablaðsins New York Times um Vestmannaeyjar skýrt merki til ferðabransans að hann eigi að hætta að „klína bjánalegum enskum þýðingum á íslensk örnefni og staðarheiti“.

Dreymdi um líf á Íslandi en þoldi aðeins ársdvöl
Annabel Fenwick Elliott átti sér draum eftir þriggja daga heimsókn til Íslands að búa hér á landi. Draumurinn rættist en lífið á Íslandi var ekki jafnánægjulegt og hún hafði séð fyrir sér. Glöggt er gests augað segir máltækið og spurning hvort Annabel hafi eitthvað til síns máls varðandi gagnrýni sína á landið.

Enn af Bláa lóninu
Undanfarið hef ég skrifað nokkrar greinar um það sem ég tel að sé vanmat á hættu af völdum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Ég hef bent á að óvissa sé mikil og að best sé að fara varlega þegar ákvarðanir eru teknar varðandi það hvað er leyft og hvað ekki á svæðinu þar sem jarðhræringar eiga sér nú stað á Reykjanesskaga.

Framlengja lokun lónsins
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að framlengja lokun til og með föstudagsins 5. janúar næstkomandi. Þá verður staðan endurmetin.

Langþreytt á ferðamönnum sem fylla tunnurnar af óflokkuðu rusli
Dæmi eru um að sorptunnur miðborgarbúa séu ekki tæmdar vegna þess að AirBnb-gestir í nágrenninu fylla tunnurnar af óflokkuðu rusli. Samskiptastjóri Sorpu segir nýja flokkunarkerfið mögulega of flókið fyrir ferðamenn - en ábyrgðin liggi hjá leigusölunum.

Tekur við sem framkvæmdastjóri Mývatnsstofu
Úlla Árdal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mývatnsstofu og hefur hún þegar hafið störf.

Ferjuðu ferðamenn í bæinn eftir vandræði í Hvalfirði
Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út eftir að tvær rútur með ferðamenn innanborðs lentu í vandræðum í mikilli hálku í Hvalfirði seint í gærkvöldi.