Fótbolti

Sneijder segist til sölu fyrir rétta upphæð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hollenskir fjölmiðlar hafa eftir Wesley Sneijder leikmanni Inter í Mílanó að hann sé til sölu fyrir rétta upphæð. Sneijder hefur þrálátlega verið orðaður við Manchester-félögin City og United undanfarið.

„Það eina sem ég veit er að Inter þarf peninga og ég er víst til sölu fyrir rétta upphæð,“ sagði Sneijder við hollenska dagblaðið Voetbal International.

Fréttir varðandi möguleg félagaskipti Sneijder undanfarnar vikur hafa verið afar misvísandi. Ýmist er Sneijder til sölu eða ekki hjá Inter. Þá eru Manchester-félögin sterklega orðuð við kappann þrátt fyrir að Sir Alex Ferguson og Roberto Mancini hafi báðir neitað að nokkuð sé satt í þeim efnum.

Sneijder skoraði frábært mark fyrir Inter í 2-1 tapi gegn erkifjendunum í AC Milan í viðureign meistaranna og bikarmeistaranna um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×