Fótbolti

Prandelli: Balotelli ekki tekist að fara í taugarnar á mér

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Cassano hefur oft komið sér í vandræði en virðist í náðinni hjá Prandelli þjálfara.
Cassano hefur oft komið sér í vandræði en virðist í náðinni hjá Prandelli þjálfara. Nordic Photos/AFP
Ítalir mæta Spánverjum í vináttulandsleik í Bari á Ítalíu í kvöld. Guiseppe Rossi og Antonio Cassano verða í byrjunarliði heimamanna en Mario Balotelli vermir bekkinn.

„Með Cassano við hlið Guiseppe Rossi geta mótherjar okkar ekki dekkað framherjana líkt og þeir gætu ef Giampaolo Pazzini væri í stöðu framherja,“ sagði Prandelli þjálfari Ítala

Antonio Cassano verður væntanlega hylltur af stuðningsmönnum í Bari í kvöld en hann hóf feril sinn hjá félaginu.

Mario Balotelli verður til taks á varamannabekknum. Prandelli sló á létta strengi þegar hann var spurður út í framherjann sem er duglegur að koma sér í fréttirnar fyrir ranga hluti.

„Mario verður að einbeita sér að því sem hann gerir á vellinum. Við höfum æft í tvo daga og honum hefur ekki tekist að fara í taugarnar á mér ennþá,“ sagði Prandelli.

Byrjunarlið Ítala

Gianluigi Buffon; Christian Maggio, Andrea Ranocchia, Giorgio Chiellini, Domenico Criscito; Andrea Pirlo, Daniele De Rossi, Thiago Motta; Alberto Aquilani eða Riccardo Montolivo; Giuseppe Rossi, Antonio Cassano

Viðureign Ítala og Spánverja í Bari hefst klukkan 20 og er í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×