Fótbolti

Emil skoraði í tapleik

Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson skoraði mark Verona í dag sem tapaði gegn Vicenza, 2-1, í ítölsku B-deildinni.

Emil jafnaði leikinn fyrir Verona á 78. mínútu en það dugði ekki til þar sem Vicenza skoraði sigurmark leiksins fjórum mínútum síðar.

Verona er rétt fyrir neðan miðja deild í 14. sæti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×