Enski boltinn

AC Milan vann borgarslaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nigel de Jong skallar boltann í mark Inter.
Nigel de Jong skallar boltann í mark Inter. Vísir/Getty
AC Milan hafði betur gegn Inter í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Hollendingurinn Nigel de Jong skoraði eina mark leiksins á 65. mínútu þegar hann skallaði aukaspyrnu Marios Balotelli í netið.

Þetta var sjötti sigur AC Milan í síðustu sjö leikjum, en lærisveinar Clarence Seedorf sitja í 8. sæti með 54 stig. Inter er í 6. sæti með 57 stig.


Tengdar fréttir

Juventus ítalskur meistari

Juventus varð Ítalíumeistari þriðja árið í röð, án þess þó að hafa leikið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×