Skoðun

Er verið að svindla á starfsfólkinu sem afgreiðir þig í sumarfríinu?

Saga Kjartansdóttir skrifar

Stundum er talað um að íslenskt samfélag leggist í dvala í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Skólar og leikskólar loka og flestir sem geta kjósa að taka sér sumarleyfi frá störfum. En á sama tíma snarfjölgar þeim sem starfa í ferðaþjónustu og tengdum greinum, bæði til að þjónusta þau okkar sem fara um landið í sumarfríinu og taka á móti þeim hundruðum þúsunda ferðamanna sem koma til landsins yfir sumartímann. Þessi árstíðabundnu störf í ferðaþjónustu eru að talsverðu leyti mönnuð annars vegar ungu fólki og námsmönnum og hins vegar aðfluttu fólki sem hingað kemur ýmist til skemmri eða lengri tíma.

Vinnustaðaeftirlit Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og stéttarfélaganna sinnir eftirliti á vinnustöðum og þar á meðal í ferðaþjónustu og veitingageiranum. Meira en helmingur starfsfólks sem eftirlitsfulltrúar hitta eru erlendir ríkisborgarar, enda heldur aðflutt starfsfólk uppi mannaflafrekum greinum á borð við ferðaþjónustu.

Svindlað á aðfluttum og ungu fólki

Vinnustaðaeftirlitið hefur undanfarna mánuði birt færslur á Facebook-síðu ASÍ með dæmum um það sem eftirlitsfulltrúar sjá og bregðast við í heimsóknum sínum. Skortur á hvíldartíma, kaffihléum og afbökun á veikindarétti eru á meðal algengra brota gegn starfsfólki í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Þá er jafnaðarkaup, mikil notkun verktöku og notkun sjálfboðaliða algeng, en allt stríðir þetta gegn reglum og hefðum á íslenskum vinnumarkaði.

Það er líka sífellt algengara að starfsfólk búi í húsnæði á vegum atvinnurekanda. Þetta hefur lengi tíðkast í ferðaþjónustu á landsbyggðinni en er nú orðið sífellt útbreiddara, einnig á höfuðborgarsvæðinu og er afleiðing alvarlegrar húsnæðiskreppu. Verkalýðshreyfingin hefur oft bent á hversu varasamt það getur verið að blanda saman húsnæði og atvinnu og fjölmörg dæmi eru um að fólk verði húsnæðis- og tekjulaust á augabragði ef það missir vinnuna. Aðflutt starfsfólk á ekki alltaf í önnur hús að venda og getur því lent í mjög alvarlegri stöðu ef það missir vinnu sína og húsnæði.

Skýrslur ASÍ hafa sýnt að erlent og aðflutt starfsfólk, auk ungs fólks, er langlíklegast til að verða fyrir svindli á vinnumarkaði. Stór hluti launakrafna sem stéttarfélögin gera til að sækja ógreidd laun eru gerðar fyrir hönd starfsfólks í ferðaþjónustu og tengdum greinum, þar sem hlutfall aðflutts og ungs starfsfólks er hátt. Í ársskýrslu VR kemur fram að 37% kjaramála á borði félagsins á síðasta ári voru fyrir hönd erlendra ríkisborgara, en erlendir ríkisborgarar eru 14% af félaginu.

Draumurinn um vinnu á Íslandi

Ísland er draumaáfangastaður margra og íslenskir atvinnurekendur búa að því að fjöldi fólks er tilbúinn að koma hingað til lands til að vinna. Því miður er það þannig að of oft standast ekki loforðin um góða vinnu og mannsæmandi húsnæði. Of margt starfsfólk snýr aftur til heimalandsins peningalaust og með brostnar vonir.

Gott samfélag leyfir ekki að svindlað sé á aðfluttu og ungu fólki til að aðrir geti hagnast meira. Verum á verðinum og höfnum lagskiptum vinnumarkaði þar sem svindl viðgengst gegn launafólki.

Höfundur er verkefnisstjóri vinnustaðaeftirlits hjá ASÍ. 




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×