Upp­gjörið: Fram - Fylkir 2-0 | Lang­þráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Freyr Elísson kom Fram á bragðið í leiknum. 
Alex Freyr Elísson kom Fram á bragðið í leiknum.  Vísir/Anton Brink

Fram innbyrti kærkomin þrjú stig þegar liðið fékk Fram í heimsókn í fyrstu umferð í keppni liðanna í neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 2-0 Fram í vil.

Fyrir þennan leik hafði Fram spilað fimm leiki í deildinni án sigurs, beðið ósigur í fjórum þeirra áður en liðið gerði jafntefli við FH í síðustu umferð deildarinnar. 

Alex Freyr Elísson skoraði fyrra mark Fram um miðjan fyrri hálfleikinn. Fred gerði þá vel í að koma boltanum út á hægri kantinn á Alex Frey sem smellhitti boltann af vítateigshorninu og boltinn endaði í fjærhorninu.

Áður en Fram skoraði markið sem skildi liðin að höfðu gestirnir úr Árbænum tvisvar sinnum sett boltann í stöngina. Í fyrra skiptið skallaði Orri Sveinn Segatta boltann í tréverkið eftir fyrirgjöf frá Arnóri Breka Ásþórssyni.

Sigurbergur Áki Jörundsson lét svo skotið ríða af fyrir utan vítateig Fram í seinna skiptið og aftur glumdi í stönginni.

Eftir öfluga byrjun á leiknum náðu Frammarar hægt og bítandi tökum á leiknum án þess þó að ná að skapa sér hættuleg færi. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks sem Magnús Þórðarson nýtti sér sofandahátt Birkis Eyþórsson. Magnús stal boltanum af honum og setti boltann í nærhornið framhjá Ólafi Kristófer Helgasyni.

Staðan 2-0 í hálfleik og útlitið svart hjá botnliði Fylkis. Þrátt fyrir fín færi á báða bóga í seinni hálfleik var ekkert skorað og Fram vann sinn fyrsta deildarsigur frá því í byrjun ágúst þegar Stjarnan lá í valnum fyrir lærisveinum Rúnars Kristinssonar. 

Fylkismenn fengu 13 hornspyrnur í þessum leik en náðu ekki að færa sér það í nyt. Rúnar Páll Sigmundsson og Brynjar Björn Gunnarsson þurfa að fara að teikniborðinu og drilla hornin betur fyrir næsta leik. 

Fylkir vermir botnsæti deildarinnar með 17 stig, Vestri sem gerði 2-2 jafntefli við KR fyrr í dag er í næstneðsta sæti með 19 stig og HK er í sætinu fyrir ofan fallsvæðið með 20 stig.

KR er þar fyrir ofan með 22 stig. Fram tryggði sætið sitt nánast endanlega í efstu deild með þessum sigri. Fram situr í sjötta sæti með 30 stig og er þremur stigum á undan nýkrýndum bikarmeisturum, KA, sem eru sæti neðar.

Atvik leiksins

Birkir mun ekki vilja horfa á atvikið í seinna marki Fram aftur og það sama má segja um Ólaf Kristófer í marki Fylkis en hann var undarlega staðsettur þegar Magnús lét skotið ríða af.

Stjörnur og skúrkar

Magnús var síógnandi á vinstri vængnum hjá Fram og kórónaði góða frammistöðu sína með marki sínu. Þorri Stefán Þorbjönsson var öruggur í sínum aðgerðum í varnarlínu Fram. Fred var góður inni á miðsvæðinu. 

Hjá Fylki var Emil Ásmundsson að reyna að skapa usla og Sigurbergur Áki Jörundsson skilað sínu inni á miðjunni 

Dómarar leiksins

Gunnar Freyr Róbertsson og teymið hans voru ekki í stóru hlutverki í þessum leik og þannig vill maður hafa það hvað dómara varðar. Þeir fá átta í einkunn fyrir vel unnin störf að þessu sinni. 

Stemming og umgjörð

Það var fallegt veður í Úlfarsárdalnum í kvöld. Appelsínugulur himinn með ljúfa jazztóna úr stúkunni Frammegin gerði kvöldið huggulegt. Fín stemming og létt yfir heimamönnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira