Innlent

Lang­flestir vilja ríkis­stjórnina sem samið er um

Kjartan Kjartansson skrifar
Viðræður Ingu Sæland, Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanna Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar, hafa staðið yfir frá því skömmu eftir kosningar.
Viðræður Ingu Sæland, Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanna Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar, hafa staðið yfir frá því skömmu eftir kosningar. Vísir/Vilhelm

Ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er það sem langflestir svarendur í þjóðarpúlsi Gallups segjast vilja sjá. Meirihluti svarenda er sáttur við úrslit alþingiskosninganna í síðasta mánuði.

Ríflega tveir af hverjum fimm svarendum í könnunni nefna þá þriggja flokka stjórn sem nú er reynt að mynda sem þá sem þeir vilja helst sjá. Fjórtán prósent vilja stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokksins og tólf prósent stjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Framsóknarflokks.

Konur voru líklegri en karlar til þess að vilja stjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og fólk með lægri fjölskyldutekjur en það sem er með hærri tekjur. Það gagnstæða gilti um mögulega ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks.

Alls sögðust 55 prósent svarenda ánægð með úrslit kosninganna 30. nóvember en 28 prósent sögðust ósátt. Konur voru merkjanlega ánægðari en karlar, sextíu prósent kvenna en fimmtíu prósent karla.

Kjósendur Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins voru eins og gefur að skilja ánægðastir með úrslitin, 82 prósent kjósenda Flokks fólksins og níutíu prósent bæði samfylkingar- og viðreisnarfólks. 

Kjósendur Vinstri grænna, sem þurrkuðust út af þingi, voru óhamingjusamastir með úrslitin. Aðeins átján prósent þeirra voru ánægð en 77 prósent óánægð. Píratar, sem náðu heldur ekki inn manni á þing, voru einnig ósáttir. Engu að síður sagðist rétt tæpur fjórðungur þeirra sáttur við úrslitin.

Fjórðugur sjálfstæðismanna var sáttur við úrslit þingkosninganna en hátt í helmingur ósáttur. Miðflokkurinn bætti verulega þingstyrk sinn í kosningunum þrátt fyrir að fylgið næði ekki þeim hæðum sem skoðanakannanir sýndu á tímabili. Um 39 prósent kjósenda flokksins sögðust ánægð með úrslitin en þriðjungur var ósáttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×