Erlent

Ný skýrsla: Banda­ríkja­mönnum mis­tókst að eyði­leggja kjarnorkumannvirki Írana

Agnar Már Másson skrifar
Gervihnattarmynd af auðgunarstöð Írana í Fordó eftir loftárás Bandaríkjamanna aðfaranótt sunnudags.
Gervihnattarmynd af auðgunarstöð Írana í Fordó eftir loftárás Bandaríkjamanna aðfaranótt sunnudags. AP/Planet Labs PBC

Árásir Bandaríkjahers á þrjú kjarnorkumannvirki í Íran eyðilögðu ekki lykilinnviði kjarnorkuáætlunar landsins og líklega hefur kjarnorkuáætlunum Írana aðeins seinkað um nokkra mánuði, samkvæmt frummati bandarísku leyniþjónustunnar. Ráðamenn í Hvíta húsinu segjast ósammála matinu.

Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN greinir frá og segist hafa þetta eftir þremur ráðamönnum sem hafi lesið matið. New York Times greinir einnig frá matinu og segir að árásirnar hafi aðeins lokað fyrir innganga að tveimur kjarnorkumannvirkum, en ekki lagt þau í eyði.

Skýrslan hefur enn ekki verið birt opinberlega en var að sögn bandarískra miðla framkvæmd af leyniþjónustudeild varnarmálaráðuneytisins (DIA). Matið byggir á öðru mati sem aðgerðarstjórn Bandaríkjahers framkvæmdi í beinu framhaldi af árásunum.

Greining á skemmdum á svæðum og áhrifum árásanna á kjarnorkumarkmið Írans er enn í gangi og gæti breyst eftir því sem frekari upplýsingar berast. En þessar niðurstöður stangast á við fullyrðingar Donalds Trumps forseta um að árásirnar hafi „algjörlega og algjörlega útrýmt“ kjarnorkuauðgunarstöðvum Írans.  Varnarmálaráðherrann Pete Hegseth sagði einnig á sunnudag að kjarnorkumarkmið Írans „hefðu verið þurrkuð út“.

Tveir heimildarmenn CNN sögðu að birgðir Írans af úrani hefðu ekki verið eyðilagðar. Annar sagði að þeytivindurnar væru að mestu leyti „óskemmdar“. „Þannig að mat [DIA] er að Bandaríkin hafi frestað þeim um kannski nokkra mánuði,“ bætti viðkomandi við í samtali við CNN.

Í skýrslunni segi enn fremur að Íranar hafi fjarlægt meirihluta af úranbirgðum sínum áður en Bandaríkjamenn létu til skarar skríða.

Hvíta húsið ósammála

Hvíta húsið viðurkenndi tilvist matsins en sagðist ósammála því þegar CNN innti eftir viðbrögðum. Karoline Leavitt sagði við CNN að „þetta meinta mat“ væri „alrangt“ og að því hafi aðeins verið lekið af lágtsettum starfsmanni varnarmálaráðuneytisins til þess að gera lítið úr Donald Trump Bandaríkjaforseta. 

„Allir vita hvað gerist þegar þú varpar fjórtán 30 þúsund punda sprengjum nákvæmlega á skotmörkin þeirra: algjör útþurrkun,“ sagði Leavitt. Bandaríkjaherinn hefur auk þess sagt að aðgerðin „Miðnæturhamar“ hafi gengið gríðarlega vel.

Að sögn Fox sagði Trump við Benjamín Netanjanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í dag að Bandaríkin hygðust ekki gera frekari árásir á Íran. Trump lenti í Haag á sjöunda tímanum í dag þar sem leiðtogafundur Nató hefst á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×