Innlent

Aðalvatnslögn Ísafjarðarbæjar rofin

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Lekinn hefur áhrif á íbúa Holtahverfisins, sem er innst í firðinum. Myndin er úr safni.
Lekinn hefur áhrif á íbúa Holtahverfisins, sem er innst í firðinum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Aðalvatnslögn Ísafjarðarbæjar er rofin. Þetta staðfestir bæjarverkstjóri bæjarins.

„Við erum að vinna í henni núna, það er búið að staðsetja lekann,“ segir Páll Brynjar bæjarverkstjóri bæjarins í samtali við fréttastofu.

Lekinn hafi aðallega áhrif á íbúa Holtahverfis Ísafjarðarbæjar þar sem er vatnslaust. Páll segir að ekki sé um stórmál að ræða en hann gat ekki sagt til um hvenær íbúar gætu von á að fá vatn aftur.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×