Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Lovísa Arnardóttir skrifar 2. mars 2026 07:51 Myndin er tekin á flugvelli í Taílandi þar sem fjöldi eru strandaglópar vegna lokanna í Katar og Dúbaí. Vísir/EPA Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.
Helstu flugvellir í Mið-Austurlöndum, þar á meðal Dúbaí sem er fjölfarnasta alþjóðlega flugstöð heims, voru lokaðir þriðja daginn í röð og flugferðum aflýst í kjölfarið. Snemma á mánudag hafði þegar verið aflýst 1.239 flugferðum. Emirates Airlines, með aðsetur í Dúbaí, Etihad Airways, með aðsetur í Abu Dhabi, og Qatar Airways, með aðsetur í Doha, hafa samanlagt aflýst hundruðum flugferða. Önnur flugfélög aflýstu ferðum um allt svæðið. Air India aflýsti flugferðum á sunnudag frá Delhi, Mumbai og Amritsar til stórborga í Evrópu og Norður-Ameríku. Tæplega 2.800 flugferðum var aflýst á laugardag og 3.156 á sunnudag, samkvæmt rakningarvefnum FlightAware. Í frétt Guardian segir að hlutabréf í stórum flugfélögum hafi lækkað eftir margra daga truflanir en Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur gefið í skyn að hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gætu staðið yfir í nokkrar vikur. Flugumferð yfir Miðausturlöndum í morgun. Flightradar24 Lofthelgi yfir Íran, Írak, Kúveit, Ísrael, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Katar var enn nánast tóm á mánudag, samkvæmt flugrakningarvefsíðunni Flightradar24. Áhrifin víða Áhrifin teygðu sig langt út fyrir Mið-Austurlönd og farþegar voru strandaglópar allt frá Balí til Frankfurt. „Fyrir ferðalanga er engin leið að fegra þetta,“ er haft eftir Henry Harteveldt, sérfræðingi í flugiðnaði og forseta Atmosphere Research Group í frétt Guardian. „Þið ættuð að búa ykkur undir tafir eða aflýsingar næstu daga á meðan þessar árásir þróast og vonandi lýkur.“ Eftir að átökin breiddust út til Líbandon, þar sem Ísrael gerði loftárásir á suðurhluta Beirút eftir að Hezbollah, sem er í bandalagi við Íran, skaut flugskeytum á Ísrael, var stór hluti lofthelgi svæðisins áfram lokaður. Þá kemur fram í frétt Guardian að auk þess skapi það annað flækjustig við að hefja flug á ný að áhafnir og flugmenn séu nú dreifðir um allan heim. Í fréttinni kemur einnig fram að átökin geti haft áhrif á flugfrakt og vöruflutninga sem og olíuverð. Þá hafi hlutabréf margra flugfélaga einnig fallið síðustu daga. Fram kom í fréttum um helgina að samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafi nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Íslendingar líka í vandræðum Ferðaskrifstofan Kilroy, sem skipuleggur ferðir fyrir fólk til Asíu, Afríku og víða um heim, sagði á Facebook-síðu sinni í gær að þau fylgist náið með stöðunni og legðu fulla áherslu á að aðstoða viðskiptavini sem eigi bókað flug næstu daga. „Sem stendur er lofthelgi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lokuð, sem hefur áhrif á flugumferð á svæðinu. Þetta þýðir að sum flug geta hvorki tekið á loft né lent, meðal annars í Doha og Dubai,“ segir í færslunni. Við færsluna hafa nokkrir skrifað athugasemdir. Til dæmis skrifar ein að þær séu fjórar saman í Dubai og hafi átt flug annað og eigi skipulagða ferð annars staðar daginn eftir og önnur að systir hennar sé í sömu aðstæðum en hafi ekkert heyrt í þeim. Þá er þriðja sem segir fjölskylduna hafa verið fasta á flugvelli í Asíu.
Fréttir af flugi Íran Bandaríkin Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira