Handbolti

Frá­bær byrjun hjá ungu strákunum okkar

Sindri Sverrisson skrifar
Ungu strákarnir okkar byrja vel í Rúmeníu.
Ungu strákarnir okkar byrja vel í Rúmeníu. HSÍ

Íslenska U20-landsliðið í handbolta karla hóf EM á flottum fimm marka sigri gegn Austurríki, 32-27, í Rúmeníu í dag.

Með sigrinum steig Ísland stórt skref í átt að milliriðlakeppninni en liðið mætir ríkjandi meisturum Spánar á morgun og svo Lettlandi á laugardaginn.

Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í milliriðlakeppnina og er íslenski hópurinn til alls líklegur eftir að hafa hafnað í 4. sæti á EM U18-landsliða í Svartfjallalandi fyrir tveimur árum.

Eyjamaðurinn Andri Erlingsson, sem gengur í raðir Kristianstad í Svíþjóð í sumar, varð markahæstur í íslenska liðinu í dag með átta mörk.

Birgir Leó Stefánsson og Ágúst Guðmundsson komu næstir með sex mörk hvor. Harri Halldórsson og Stefán Magni Hjartarson skoruðu þrjú mörk hvor, Jens Bragi Bergþórsson og Elís Þór Aðalsteinsson tvö mörk hvor, og þeir Antoine Óskar Pantano og Jökull Blöndal Björnsson eitt mark hvor.

Austurríki byrjaði leikinn mun betur og komst í 9-4, og var yfir í hálfleik, 16-15. Strákarnir okkar náðu hins vegar fljótlega forystunni í seinni hálfleiknum, komust í 20-19 þegar enn voru tuttugu mínútur eftir, og reyndust mun sterkari á lokakaflanum.

Alexander Ásgrímsson varði mark Íslands með mikilli prýði og varði 12 af 39 skotum, eða 30,77% skota sem hann fékk á sig, samkvæmt tölfræði EHF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×