Kvenfélagskonur vilja ekki deila bollastelli með Grundarfjarðarbæ Kvenfélagið á Grundarfirði hefur hafnað beiðni bæjarstjóra um að sameina bollastellið og matarstellið í samkomuhúsinu. Bæjarstjóri segir að allir séu þó vinir. Innlent 6. júní 2023 18:23
Tryggðu sér sigurinn í Krakkakviss á lokaspurningunni Úrslitin réðust í Krakkakviss á laugardagskvöldið þegar Grundarfjörður mætti KR í hörkuviðureign. Lífið 6. mars 2023 16:39
Vilja Hopp-hjól í umferð á Hellu, Hvolsvelli, Snæfellsnesi og Tröllaskaga fyrir sumarið Stefnt er að því að koma Hopp-hjólum í umferð á Hellu, Hvolsvelli, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík fyrir sumarið. Viðskipti innlent 2. mars 2023 06:30
Myndasafni Bærings í Grundarfirði komið á stafrænt form Myndasafn og myndavélar Bærings Cecilssonar í Grundarfirði vekja alltaf jafn mikla athygli en safnið og búnaðurinn er til sýnis í „Bæringsstofu“ í sögumiðstöð bæjarfélagsins. Bæring var fréttaritari í Grundarfirði til fjölda ára. Nú er unnið að því að koma öllum ljósmyndum Bærings á starfrænt form. Innlent 21. janúar 2023 21:05
Hressir og skemmtilegir Grundfirðingar Félagar í Félagi eldri borgara í Grundarfirði passa vel upp á hvert annað og njóta þess að koma saman til að eiga góðar stundir og til að fara yfir málefni líðandi stundar, hlæja saman og njóta góðra veitinga. Þá er dansað þegar harmonikuspilari mætir á svæðið. Innlent 16. janúar 2023 20:06
Telja göngubann ekki samræmast lögum Ferðafélagið Útivist telur bann við göngu upp Kirkjufell samræmist ekki lögum um almannarétt. Ekki sé hægt að setja ferðir óvanra göngumanna undir sama hatt og ferðir skipulagðra hópa sem búa að mikilli þekkingu. Innlent 15. nóvember 2022 11:49
„Þrjú banaslys á fjórum árum, það er bara of mikið“ Landeigendur hafa bannað göngur á Kirkjufell við Grundarfjörð fram á næsta sumar. Þrjú banaslys á fjórum árum sé ekki ásættanlegt og því þurfi að bregðast við. Innlent 8. nóvember 2022 21:00
Bannið við gönguferðum á Kirkjufell sé skiljanlegt Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að ákvörðun landeigenda um að banna gönguferðir á Kirkjufell sé vel ígrunduð. Það sé skiljanlegt að vant fjallafólk setji sig á móti ákvörðuninni en raunin sé sú að óvant ferðafólk sé stór hluti þeirra sem sæki á svæðið. Innlent 8. nóvember 2022 17:56
Banna gönguferðir upp Kirkjufell Landeigendur jarðanna Kirkjufells, Háls og Búða hafa ákveðið að banna allar göngur á Kirkjufelli frá og með deginum í dag þar til um miðjan júní. Þrjú dauðsföll hafa orðið í fjallinu á fjórum árum. Innlent 8. nóvember 2022 09:38
Rafíþróttir vinsælar i Grundarfirði Rafíþróttir njóta mikilla vinsælda hjá krökkum í Grundarfirði þar sem einblínt er á holl og góð samskipti og heilbrigða tölvuhegðun. Innlent 7. nóvember 2022 09:30
„Þetta er orðið virkilega alvarlegt“ Ástandið á Kirkjufelli í Grundarfirði er orðið virkilega alvarlegt að sögn bæjarstjóra á staðnum. Í vikunni varð þar þriðja dauðsfallið á aðeins fjórum árum. Bæjarstjóri segir nauðsynlegt að tækla vandann enda sé staðan óviðunandi. Það sé þó ekki endilega raunhæft að loka fjallinu alveg. Innlent 22. október 2022 14:43
Banaslys við Kirkjufell Þyrlu Landhelgisgæslunnar var flogið að Kirkjufelli við Grundarfjörð á Snæfellsnesi vegna banaslyss í hlíðum fjallsins í dag. Mikill viðbúnaður var við fjallið og komu lögregluþjónar og björgunarsveitarfólk að slysinu. Innlent 19. október 2022 19:15
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. Innlent 4. október 2022 12:23
Skvísurnar „Lísurnar“ í Grundarfirði Þær eru flottar skvísurnar, sem kalla sig „Lísurnar“ í Grundarfirði en þær eiga það sameiginlegt að vera allar á fjórhjólum og hjóla saman reglulega. „Gleði og gaman saman“ eru einkunnarorð hópsins. Lífið 17. ágúst 2022 10:27
Fiskur fyrir 16 milljónir á dag hjá G.RUN í Grundarfirði Eitt glæsilegasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, G.RUN í Grundarfirði framleiðir fiskafurðir fyrir 16 milljónir króna á dag. Um 85 starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu, sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá 1947. Innlent 15. júlí 2022 22:19
Spriklandi hressir og kátir Grundfirðingar Eldri borgarar í Grundarfirði slá ekki slöku við því þeir koma saman nokkrum sinnum í viku í íþróttahúsinu á staðnum til að hreyfa sig og gera fjölbreyttar leikfimisæfingar í þeim tilgangi að styrkja sál og líkama. Innlent 11. júlí 2022 20:04
Tveir sóttir með þyrlu á Snæfellsnes eftir bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna bílslyss austan við Grundarfjörð. Innlent 11. júlí 2022 13:07
Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis. Innlent 28. júní 2022 22:44
Slegnir yfir fyrirhugaðri lækkun aflamarks þorsks Sjómönnum og útgerðarmönnum líst illa á fyrirhugaða lækkun aflamarks þorks. Uppbygging þorksstofnsins hefur staðnað síðustu ár og afrakstur minni en áætlað var. Margir telja að tími sé kominn til að endurskoða nálgun Hafrannsóknarstofnunar. Innlent 27. júní 2022 13:29
50 þúsund ferðamenn mæta í Grundarfjörð í sumar Grundfirðingar eiga von á miklu lífi og fjör í bænum í sumar því þangað eru væntanlegir fimmtíu þúsund ferðamenn með skemmtiferðaskipum. Bæjarstjórinn lofar að vel verið tekið á móti gestunum og þeir hafi nóg að skoða og borða á Snæfellsnesinu. Innlent 23. maí 2022 21:03
Björg áfram bæjarstjóri í Grundarfirði eftir sigur D-lista D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra vann sigur og hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn í Grundarfirði í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær. Innlent 15. maí 2022 09:39
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á Snæfellsnes að sækja slasaðan bifhjólamann. Innlent 14. maí 2022 17:29
Verkstæði í Grundarfirði brennur Verkstæði við Sólvelli 5 í Grundarfirði stendur í ljósum logum og slökkvilið Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar berst nú við eldinn. Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út til að berjast við eldinn. Innlent 8. mars 2022 20:28
Nokkur útköll vegna veðurs á norðvestanverðu landinu Björgunarsveitir hafa frá því í gærkvöldi sinnt útköllum vegna óveðurs á Bíldudal, Siglufirði, Suðureyri, Þingeyri og í Grundarfirði. Á Bíldudal losnaði flotbryggja skömmu fyrir miðnætti og þá fauk einnig svalahurð upp á Siglufirði. Innlent 22. janúar 2022 12:26
Krakkar í Grundarfirði brjóta upp á kófið og gefa út jólalag „Jæja kæru vinir nú er jólafrí, skundum heim í fílinginn og treystum því að allt fari vel og amma fái að kíkja í heimsókn. Sóttkví, grímur, skólabækur, fjas og fár, skelltu þér í Covid-test og vertu klár fyrir jólaboð, áramótapartý og gleði.“ Tónlist 20. desember 2021 16:30
Heimsóknum á Kvíabryggju aflýst vegna smitaðs gests Öllum heimsóknum gesta í fangelsið á Kvíabryggju hefur verið aflýst næsta daga eftir að barn sem kom þangað í heimsókn á sunnudag greindist smitað af Covid-19. Einn fangi er í sóttkví og nokkrir aðrir í smitgát. Innlent 30. nóvember 2021 18:37
Adam sló í gegn með kollhnís: Draumur fyrir strák frá smábæ á Íslandi Hinn 19 ára gamli Adam Ingi Benediktsson, markvörður frá Grundarfirði, lék sinn fyrsta leik í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með stórliði IFK Gautaborgar í gær og sló strax í gegn hjá stuðningsmönnum. Fótbolti 29. nóvember 2021 14:00
Fyrirtæki hefur þurft að loka vegna faraldursins Kórónuveirufaraldurinn hefur skollið á íbúa Grundarfjarðar síðustu daga af fullum þunga en fjórðungur þeirra er nú annað hvort í einangrun eða í sóttkví. Innlent 24. nóvember 2021 20:32
Líklega umgangspest en ekki Covid-19 um borð í Kap Áhöfnin á Kap II VE er laus úr sóttkví í Grundarfjarðarhöfn eftir að niðurstöður skimunar á áhöfninni fyrir Covid-19 reyndust neikvæðar. Umgangspest er líkleg skýring veikindaeinkenna nokkurra skipverja. Innlent 28. júlí 2021 10:14
Grunsemdir um smit um borð í Kap Vísbendingar eru um COVID-smit í áhöfn Kap VE II og þess vænst að niðurstöður skimunar leiði í ljós síðar í dag eða í kvöld hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru. Innlent 27. júlí 2021 13:13