Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. Erlent 21. júní 2022 12:42
Vaktin: Handtaka eigin stjórnmálamann fyrir njósnir Enn hóta Rússar því undir rós að grípa til kjarnorkuvopna en Reuters hefur eftir Vladimir Pútín Rússlandsforseta að Rússar hyggist styrkja herafla sinn með tilliti til mögulegra hernaðarógna og -áhættu. Forsetinn segir nýjar Sarmat eldflaugar Rússa, sem eru bæði langdrægar og geta borið allt að tíu kjarnorkusprengjur, verða teknar í notkun fyrir árslok. Erlent 21. júní 2022 08:29
Nóbelsmedalía Muratov slegin á 13 milljarða króna Nóbelsmedalía rússneska blaðamannsins Dmitry Muratov var seld á uppboði í gær og slegin á 103,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 13,5 milljarða króna. Féð mun renna til UNICEF, til að aðstoða börn sem hafa flúið heimili sín í Úkraínu. Erlent 21. júní 2022 07:45
Reiknað með að Rússar hefji stórsókn Serhiy Gadai, héraðsstjóri Luhansk-héraðs í austurhluta Úkraínu segir að rússneski herinn hafi safnað nægilega miklu liði til að hefja stórsókn í héraðinu. Erlent 20. júní 2022 21:47
Má ekki spila á HM vegna samnings við rússneskt félagslið Pólski bakvörðurinn Maciej Rybus hefur fengið þau skilaboð að hann megi ekki spila með pólska landsliðinu á HM eftir að hann gerði samning við rússneska liðið Spartak Moskvu fyrr í mánuðinum. Fótbolti 20. júní 2022 19:01
Vaktin: Segir Rússa halda Afríku í gíslingu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist eiga von á því að Rússar muni auka árásir sínar á Úkraínu og jafnvel önnur Evrópulönd í vikunni, í kjölfar ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að mæla með því að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis. Erlent 20. júní 2022 08:23
Búi sig undir að stríðið í Úkraínu geti staðið yfir í nokkur ár Vesturlönd þurfa að búa sig undir langvarandi stríðsátök í Úkraínu og halda áfram að styðja við stjórnvöld þar til að aftra frekari árásumVladimírs Pútín Rússlandsforseta. Þetta segja leiðtogar Bretlands og NATO. Erlent 19. júní 2022 15:20
Staðráðnir í að halda Eurovision í Úkraínu Úkraínsk yfirvöld fordæma ákvörðun Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva að leyfa Úkraínumönnum ekki að halda Eurovision-söngvakeppnina á næsta ári. Lífið 18. júní 2022 14:21
Hungursneyð í uppsiglingu vegna stríðsins Árásir Rússa í Úkraínu hafa gert það að verkum að hluti heimsins stendur frammi fyrir hungursneyð, að mati talsmanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 18. júní 2022 12:45
Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi í nótt og í morgun. Skipið var á siglingu í norðurhluta Eystrasaltsins nærri dönsku eyjunni Bornholm. Samkvæmt tilkynningu frá danska hernum var fjöldi danskra þingmanna og athafnafólks á eyjunni vegna lýðræðishátíðar sem fer þar fram um helgina. Erlent 17. júní 2022 13:53
Framkvæmdastjórn ESB lýsir yfir stuðningi við aðild Úkraínu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst yfir stuðningi við að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu. Ákvörðun stjórnarinnar er stórt skref í baráttu Úkraínu fyrir aðild að sambandinu. Erlent 17. júní 2022 11:06
Eurovision fer ekki fram í Úkraínu og Bretar beðnir að hlaupa í skarðið Skipuleggjendur söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hafa ákveðið að Úkraína geti ekki haldið keppnina sökum stríðsástands í landinu. Því hafa þeir beðið Bretland um að halda keppnina en framlag þeirra í ár endaði í öðru sæti. Lífið 17. júní 2022 10:58
Ætla að beita sér fyrir inngöngu Úkraínu í ESB Fjórir evrópskir leiðtogar lofuðu stuðningi við Úkraínu þegar þeir funduðu með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta í Kænugarði í gær. Þeir hétu því að styðja umsókn Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu og að senda fleiri hergögn til Úkraínu vegna innrásar Rússa þar í landi. Erlent 17. júní 2022 08:58
Alþingismenn einhuga um stuðning við Úkraínu Á síðasta degi þingvetrarins samþykkti Alþingi samhljóða frumvarp fjármálaráðherra um að fella niður tolla á allar vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða. Samkvæmt lögunum falla tollarnir niður til og með 31. maí 2023. Skoðun 17. júní 2022 08:02
Fyrrum fyrirliði Rússa gagnrýnir stríðið í Úkraínu Hinn 38 ára gamli Igor Denisov – fyrrverandi fyrirliði rússneska landsliðsins í fótbolta – hefur gagnrýnt innrás Rússa í Úkraínu og lýst stríðinu sem katastrófu. Denisov ákvað að mótmæla stríðinu opinberlega þó hann óttist að vera fangelsaður eða tekinn af lífi fyrir ummæli sín. Fótbolti 16. júní 2022 14:30
Sendiherra Úkraínu og borgarstjóri heimsóttu Kænugarð Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu í Finnlandi og á Íslandi, gengu um hádegi í dag saman frá ráðhúsinu yfir í Kænugarð, torgið á horni Garðastrætis og Túngötu. Innlent 16. júní 2022 13:31
Vaktin: Leiðtogar Evrópuþjóðanna vilja Úkraínu í ESB Þrír valdamestu leiðtogar Evrópusambandsins, forseti Frakklands, kanslari Þýskalands og forsætisráðherra Ítalíu mættu í heimsókn til Kænugarðs í nótt til að ræða við Volodomir Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 16. júní 2022 07:54
Dúsir í rússnesku fangelsi fram yfir mánaðamót Brittney Griner, ein skærasta stjarna WNBA-deildarinnar í Bandaríkjunum hefur verið í haldi rússneskra yfirvalda frá því í febrúar á þessu ári. Fjölmiðlar þar í landi hafa gefið út að hún verði það áfram, fram yfir mánaðarmót hið minnsta. Körfubolti 15. júní 2022 16:31
Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. Erlent 15. júní 2022 07:13
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. Erlent 14. júní 2022 10:55
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. Erlent 14. júní 2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. Erlent 14. júní 2022 07:27
Í efsta sæti heimslistans en ekki með á Wimbledon Daniil Medvedev er kominn í efsta sæti heimslistans í tennis. Novak Djokovic hafði setið í efsta sæti listans til þessa á árinu en hann er nú í 3. sæti. Medvedev fær hins vegar ekki að keppa á Wimbledon síðar í þessum mánuði. Sport 13. júní 2022 15:01
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. Erlent 13. júní 2022 12:17
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. Erlent 13. júní 2022 07:45
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. Erlent 13. júní 2022 07:13
Mannréttindi og mannslíf mikilvægari en „pólitískar fantasíur gamals manns“ Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin. Innlent 12. júní 2022 21:20
Veitti innsýn í lífið í Rússlandi þessa dagana Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert. Innlent 12. júní 2022 15:03
Opna McDonald's aftur í Rússlandi undir nýju nafni Veitingastaðir McDonald‘s í Rússlandi voru opnaðir á nýjan leik í morgun eftir að stórfyrirtækið yfirgaf landið fyrr í vor vegna innrásarinnar í Úkraínu. Litlar breytingar hafa verið gerðar á veitingastöðunum eða matnum sem seldur er þar. Viðskipti erlent 12. júní 2022 09:50
ESB staðfestir Úkraínu væntanlega sem umsóknarríki í næstu viku Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gefur álit sitt á aðildarumsókn Úkraínu að sambandinu í lok næstu viku. Harðir bardagar geisa í austurhluta landsins þar sem Úkraínumenn er farið að skorta vopn. Erlent 11. júní 2022 19:21