Á tvö barnabörn í körfuboltalandsliðinu: „Ég er hamingjusamasti maður í dag“ Ingvar Jónsson, körfuboltajöfur úr Hafnarfirði, segir stórkostlegt að eiga tvö barnabörn í íslenska karlalandsliðinu í körfubolta sem mætir Georgíu í gríðarlega mikilvægum leik í kvöld. Körfubolti 11. nóvember 2022 09:30
„Ég þarf bara að sækja peninginn annað“ „Það eina sem Hæstiréttur segir er að ég eigi ekki að leita til körfuknattleiksdeildarinnar heldur félagsins alls. Það er þá það sem ég mun gera,“ segir Sigurður Gunnar Þorsteinsson, körfuboltamaður, sem enn stendur í launadeilu við sína gömlu vinnuveitendur hjá ÍR. Körfubolti 11. nóvember 2022 08:30
„Tilfinningin er að við þurfum að eiga okkar besta leik“ Íslenska landsliðið í körfubolta leikur einn sinn mikilvægasta leik í sögunni gegn Georgíu í undankeppni heimsmeistaramótsins annað kvöld. Með sigri færist íslenska liðið skrefi nær lokakeppni heimsmeistsramótsins. Körfubolti 10. nóvember 2022 20:30
Ægir: Við erum búnir að finna eitthvað mojó Íslenska körfuboltalandsliðið hefur aldrei verið eins nálægt því að komast á HM og það er í dag. Næsti leikur liðsins, á móti Georgíu í Laugardalshöllinni annað kvöld, ræður miklu um hvort HM-draumurinn lifi góðu lífi eða ekki. Körfubolti 10. nóvember 2022 12:02
LeBron fór meiddur af velli í enn einu tapi Lakers LeBron James fór meiddur af velli þegar Los Angeles Lakers tapaði enn einum leiknum, nú fyrir grönnum sínum í Los Angeles Clippers, 114-101. Körfubolti 10. nóvember 2022 10:31
Biden ætlar að gera allt til að fá Brittney Griner heim frá Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að gera allt sem í hans valdi stendur til að fá körfuboltakonuna Brittney Griner heim frá Rússlandi. Körfubolti 10. nóvember 2022 07:31
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 76-89 | Sjötti sigur Hauka í röð Haukar unnu sinn sjötta sigur í röð í Subway deild-kvenna í kvöld. Haukar unnu þrettán stiga sigur á Val 76-89. Haukar tóku frumkvæðið í fyrri hálfleik og voru mest tuttugu stigum yfir. Þrátt fyrir nokkur stutt áhlaup Vals lentu Haukar aldrei undir og fögnuðu sigri að lokum. Körfubolti 9. nóvember 2022 23:00
„Stelpurnar létu áhlaup Vals ekki buga sig sem var snilld“ Haukar unnu þrettán stiga útisigur á Val 76-89 í Subway deild-kvenna. Þetta var sjötti sigur Hauka í röð og var Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, ánægður með sigurinn. Sport 9. nóvember 2022 22:30
Við mætum svakalega sterkar til leiks í fjórða leikhlutanum, spilum frábæra vörn og klárum leikinn Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var að eigin sögn kófsveittur í leikslok í Grindavík, en hans konur náðu aðeins að hleypa blóðþrýstingnum hjá honum upp í lokin, í leik sem þær voru í raun búnar að klára snemma í fjórða leikhluta. Körfubolti 9. nóvember 2022 22:15
Ekkert fær Keflavík stöðvað og Fjölnir vann dramatískan sigur Keflavík rúllaði yfir Breiðablik í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 82-47 Ekkert virðist fá Keflavík stöðvað sem hefur unnið fyrstu níu leiki sína í deildinni. Í Grafarvogi vann Fjölnir nauman sigur á ÍR. Körfubolti 9. nóvember 2022 21:16
Umfjöllun: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut Grindavík tók á móti Njarðvík í HS Orku höllinni í Subway deild kvenna í kvöld. Fyrir leikinn hafði Grindvíkingum loks tekist að tengja saman nokkra sigra í deildinni en Njarðvík bókfærðu sitt fjórða tap í síðasta leik gegn Keflavík, og eflaust staðráðnar í að tapa ekki öðrum Suðurnesjaslagnum í röð. Það kom þó ekki á daginn þar sem gestirnir unnu að lokum fjögurra stiga sigur í hörkuleik. Körfubolti 9. nóvember 2022 20:00
Sigurður fær að óbreyttu ekki krónu frá ÍR Körfuboltamaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson þarf að heyja nýja baráttu ætli hann sér að fá ógreidd laun upp á tæpar tvær milljónir króna frá ÍR, eftir dóm Hæstaréttar í dag. Körfubolti 9. nóvember 2022 16:15
Hannes: Pínulítið óraunverulegt að vera í þessari stöðu og bara örfáir miðar eftir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, tilkynnti í dag um nýjan samning við landsliðsþjálfarann Craig Pedersen sem mun þjálfa liðið út undankeppni Eurobasket 2025. Körfubolti 9. nóvember 2022 15:30
Sá þaulsætnasti í sögunni stýrir Íslandi áfram Eini landsliðsþjálfarinn sem komið hefur Íslandi í lokakeppni stórmóts í körfubolta, Kanadamaðurinn Craig Pedersen, skrifaði í Laugardalshöllinni í dag undir samning þess efnis að hann þjálfi áfram íslenska karlalandsliðið. Körfubolti 9. nóvember 2022 11:34
„Að vinna þá núna yrði risastórt“ „Það er mjög skemmtileg upplifun að spila um eitthvað svona stórt. Það er mikil spenna og menn verða mjög tilbúnir fyrir þennan leik,“ segir Tryggvi Snær Hlinason. Mikið kemur til með að mæða á honum í leiknum mikilvæga á föstudag við Georgíu, þar sem nánast má segja að sæti á HM í körfubolta sé í húfi. Körfubolti 9. nóvember 2022 11:31
Stundin runnin upp sem fólkið hennar Brittney Griner kveið svo fyrir Áfrýjun bandarísku körfuboltakonunnar Brittney Griner skilaði engu og hennar bíður nú níu ára fangelsisvist í Rússlandi. Hvar hún mun þurfa dúsa veit enginn. Verið er að flytja hana á þennan nýjan stað. Körfubolti 9. nóvember 2022 08:30
„Náttúrulega galið að Ísland sé að spila um að komast á HM“ Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson gekk í raðir ítalska félagsins Pesaro eftir stutt stopp hjá uppeldisfélagi sínu, Grindavík. Hann verður í íslenska landsliðshópnum sem mætir Georgíu i Laugardalshöll í forkeppni HM næstkomandi föstudag. Körfubolti 9. nóvember 2022 07:00
„Vissi ekki hvað ég ætti að setja mikið salt í pastavatnið“ Körfuboltamaðurinn Hilmar Pétursson segist njóta sín vel í Þýskalandi þrátt fyrir að það hafi verið stórt stökk að fara frá Breiðabliki og út í atvinnumennsku í sumar. Hann er þakklátur fyrir að vera í íslenska landsliðshópnum sem á möguleika á að komast á HM í fyrsta sinn en mætir Georgíu í afar krefjandi leik á föstudaginn. Körfubolti 8. nóvember 2022 17:31
Þorvaldur Orri og Orri nýliðar í karlalandsliðinu Craig Pedersen hefur valið öflugan sextán manna hóp fyrir landsleikina tvo í undankeppni HM 2023. Körfubolti 8. nóvember 2022 16:02
Misstu af flugi til Íslands og fyrirliðinn mætir rétt fyrir leik Ekki hefur gengið þrautalaust hjá georgíska landsliðinu í körfubolta að komast til Reykjavíkur, til að spila leikinn mikilvæga við Ísland í undankeppni HM karla á föstudaginn. Körfubolti 8. nóvember 2022 16:02
Ísland gæti unnið sig inn á HM á næstu dögum Íslenska karlalandsliðið í körfubolta á raunhæfa möguleika á því að komast í lokakeppni HM í fyrsta sinn frá upphafi. Samkvæmt styrkleikaröðun FIBA, alþjóða körfuboltasambandsins, er Ísland í hópi þeirra 12 Evrópuþjóða sem líklegastar eru til að komast á HM. Körfubolti 8. nóvember 2022 14:30
Brynjar segir KKÍ vera ákvörðunarfælið samband og vill sjá nýtt fólk í forystu Stjórn Körfuknattleiksambands Íslands var meðal þessa sem var til umræðu í nýjustu Framlengingunni í Körfuboltakvöldi en þar voru nokkur hitamál tekin fyrir. Körfubolti 8. nóvember 2022 10:00
Lögmál leiksins: „Ég er mikill aðdáandi sápuópera þar sem allt gengur á afturfótunum“ Nei eða Já var á sínum stað í þætti vikunnar af Lögmál leiksins. Þar var venju samkvæmt farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA deildinni í körfubolta liðna viku. Farið var yfir stöðu mála í Stóra eplinu, klæðnað leikmanna og þjálfara deildarinnar, Nick Nurse og hvort meistarar Golden State ættu að fara hafa áhyggjur. Körfubolti 7. nóvember 2022 23:31
Stjórnarmenn NBA taka í sama streng og Lögmál leiksins: Dagar Kyrie gætu verið taldir Eins og kmur fram í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins þá gætu dagar Kyrie Irving verið taldir í NBA deildinni í körfubolta. Hans eigið félag, Brooklyn Nets, dæmdi hann í fimm leikja bann eftir að hann neitaði að biðjast afsökunar vegna gyðingahaturs. Forráðamenn deildarinnar taka margir hverjir undir með sérfræðingum Lögmál leiksins þegar kemur að framtíð Kyrie. Körfubolti 7. nóvember 2022 20:15
Lögmál leiksins um Kyrie: „Ég á svo erfitt með að skilja er hvernig fullorðinn maður nennir þessu“ Það kemur svo sem ekki á óvart að í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins verði talað um Kyrie Irving, leikmann Brooklyn Nets í NBA deildinni, og nýjasta útspils hans. Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi velti einfaldlega fyrir sér hvort Irving hefði spilað sinn síðasta leik í deildinni. Körfubolti 7. nóvember 2022 17:30
Keflavík mætir Njarðvík eða Tindastól eða Haukum Í dag var dregið í átta liða úrslit VÍS-bikars kvenna og karla í körfubolta. Ljóst er að Keflvíkingar þurfa að bíða nokkuð eftir því að vita nákvæmlega hvaða liði þeir mæta í karlakeppninni. Körfubolti 7. nóvember 2022 12:42
LeBron tapaði fyrir gamla liðinu sínu og Lakers áfram í skítamálum LeBron James sótt ekki gull í greipar síns gamla liðs og vandræði Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta aukast enn. Körfubolti 7. nóvember 2022 11:20
Tryggvi Snær í sigurliði Zaragoza gegn Real Madrid Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. Þá unnu Elvar Már Friðriksson og félagar í Rytas sigur á toppliði Zalgiris Kaunas. Körfubolti 6. nóvember 2022 20:42
Meistaraefni Milwaukee í engum vandræðum án Giannis | Durant virðist ekki þurfa Kyrie né Simmons Það kom ekki að sök þó Giannis Antetokounmpo hafi verið fjarri góðu gamni þegar Milwaukee Bucks mætti Oklahoma City Thunder í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistaraefnin frá Milwaukee unnu 14 stiga sigur, 108-94. Þá vann Brooklyn Nets sinn annan leik í röð, kannski er liðið betur sett án Kyrie Irving og Ben Simmons? Körfubolti 6. nóvember 2022 10:31
„Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila saman“ Farið var yfir slaka frammistöðu KR gegn Hetti á heimavelli í síðustu umferð Subway deildar karla í körfubolta í Körfuboltakvöldi á föstudaginn var. Brynjar Þór Björnsson, fyrrverandi leikmaður KR og margfaldur Íslandsmeistari, segir að það sé eins og leikmönnum finnist ekki gaman að spila saman. Körfubolti 6. nóvember 2022 08:01