Eitt mesta uppbyggingarskeið seinni tíma er hafið í Hafnarfirði Fyrir kosningarnar í vor var mörgum tíðrætt um þá fólksfækkun sem hafði orðið í Hafnarfirði á Covid tímum. Þá fækkaði íbúum og að hluta mátti rekja það til erlendra verkamanna sem fengu ekki vinnu og þurftu að flytja frá bænum. Skoðun 12. október 2022 08:31
Sveltistefna Að skoða framlög til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er sorglegt og ekki er hægt að lesa út úr því annað en að ólin sé svo hert að það bitnar verulega á íbúum svæðisins, og hafi gert um langt árabil. Samantekt Deloitte staðfestir þetta. Þegar fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eru skoðaðar kemur í ljós að þær hafa hækkað um 10% frá árinu 2008 til 2022. Séu þessi framlög skoðuð miðað við fjölda íbúa kemur hins vegar í ljós að framlögin hafa lækkað um 22%. Skoðun 12. október 2022 07:00
Hraðari málsmeðferð og einfaldara regluverk á byggingamarkaði er lykilatriði Stóra verkefni íslensks efnahagslífs og stjórnmála næstu ár verður að koma húsnæðismarkaðnum í jafnvægi. Byggingastarfsemi er stór hluti efnahagslífsins og nam um 9% vergrar landsframleiðslu fyrir Covid og um 8% vinnuafls. Í tímans rás hefur húsnæðismarkaðurinn sveiflast mikið, mun meira en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Skoðun 11. október 2022 10:31
Hvar er afreksíþróttastefnan? Íslenskt afreksíþróttafólk hefur síðastliðinn áratug reglulega vakið athygli á slæmri fjárhags- og réttindastöðu sinni. Íþróttafólkið sem fyllir okkur stolti á alþjóðavettvangi býr við tekjuóöryggi og á nær engan rétt í kerfinu, til aðgangs að sjúkrasjóðum, fæðingarorlofs, lífeyrisréttinda eða annars stuðnings sem launafólk álítur sjálfgefinn. Íþróttahreyfingarnar hafa líka jafn lengi kallað eftir heildstæðri stefnu í málaflokknum. Skoðun 11. október 2022 08:00
Er hægt að ræða stór mál út frá staðreyndum? Eftir viðtal við mig fyrir hádegisfréttir Bylgjunnar í gær var skrifuð frétt á Vísi undir fyrirsögninni „Vill senda flóttafólk til Rúanda”. Skoðun 8. október 2022 16:03
Sama hvaðan gott kemur Sterk fjárhagsstaða stærstu útgerðarfélaga landsins hefur m.a. leitt til þess að fjárfestingar þeirra út fyrir greinina hafa verið verulegar. Sjávarútvegur er ein mikilvægasta stoð íslensks efnahagslífs en vegna smæðar sinnar er íslenskt samfélag sérstaklega viðkvæmt fyrir uppsöfnun eigna og áhrifa á fárra hendur. Það dregur úr virkri samkeppni með tilheyrandi afleiðingum fyrir atvinnulífið og neytendur. Skoðun 6. október 2022 12:30
Vandi hverfur ekki þótt hann sé hunsaður Umræða um langa biðlista eftir sálfræði- og talmeinaþjónustu í Reykjavík var í borgastjórn 4.10 að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins. Ég hef rætt biðlistavandann nánast sleitulaust frá 2018 og lagt fram tillögur til úrlausnar. Skoðun 6. október 2022 12:00
Stöðvum okrið á leigjendum Leigjendur á Íslandi búa við mjög erfiða stöðu. Á síðustu árum hefur leiga farið hækkandi og var há fyrir. Þegar stærstur hluti heildarráðstöfunartekna þinna fer í húsnæðið, þá getur þú ekki leyft þér ýmislegt sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Skoðun 5. október 2022 11:30
Hver vitleysan rekur aðra Starfsemi grunnskóla og leikskóla í Reykjavík er víða í uppnámi. Áralöng vanræksla innviða og innantóm fyrirheit um hvers kyns endurbætur skilja fjölskyldur eftir í þröngri stöðu. Skoðun 4. október 2022 11:01
Byggjum upp í Kópavogi Frá aldamótum hefur íbúum í Kópavogi fjölgað að meðaltali um þrjú prósent á ári, sem er næstum þrisvar sinnum meiri fjölgun en í Reykjavík og tvisvar sinnum meiri fjölgun en á landsvísu. Skoðun 30. september 2022 12:01
Verklag í kjölfar náttúruhamfara Áskoranir hafa alla tíð fylgt sambúð við náttúruöflin á Íslandi og um nýliðna helgi glímdu landsmenn sannarlega við þau. Illviðri gekk yfir, mikill vindstyrkur sem sumstaðar fylgdi mikil úrkoma og há sjávarstaða. Þetta leiddi til margs konar tjóns s.s. skriðufalla á Vestfjörðum, flóða á Akureyri, skemmda á uppskeru og gríðarlegs foktjóns. Skoðun 29. september 2022 15:30
Tímabært að lengja fæðingarorlof Samfélag sem vill hlúa vel að börnum og foreldrum gerir sennilega einna mesta gagn með því að halda vel utan um barnafjölskyldur á fyrstu árum í lífi barna. Þegar börnin eru lítil, foreldrarnir yngri, fjárhagur oft viðkvæmari og álagið hvað mest. Umræðan um hvernig á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er áratugagömul. Skoðun 29. september 2022 11:30
Hið opinbera klekkir á einkaaðilum Hið opinbera fer t.a.m. gegn skýrum markmiðum laganna með því að skipta innkaupum upp í sjálfstæða samninga og gera viðvarandi eða endurnýjanlega samninga þannig að erfitt verður að átta sig á samanlögðu virði þeirra, án þess að hafa jafnræði og hagkvæmni að leiðarljósi. Og hagsmunaárekstrar geta verið til staðar sem raska jafnvægi bjóðenda. Umræðan 29. september 2022 10:01
Þar eigum við heima Valdhafar í Rússlandi misreiknuðu sig illa þegar þeir ákváðu að ráðast inn í Úkraínu. Þeir vanmátu viðnámsþrótt Úkraínumanna og viðbrögð Vesturlanda. Skoðun 28. september 2022 11:14
Vextir, verðbólga og öskrandi verkkvíði Afborganir af húsnæðislánunum hækka og matarkarfan hækkar. Þessi staða hefur ekki farið fram hjá heimilum landsins. Afborganir hafa í mörgum tilvikum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Almennt mætti fólk búast við því að ríkisstjórnin ynni þá það verkefni sem henni er falið: Að verja kjör heimila og fyrirtækja. Skoðun 27. september 2022 18:02
Lög um tæknifrjóvganir mega ekki gera verkefnið erfiðara Í síðustu viku mælti ég fyrir frumvarpi mínu um aukið frelsi í löggjöf um tæknifrjóvganir. Ég lagði málið fyrst fram á síðasta þingi en það komst því miður ekki á dagskrá þá heldur nú í byrjun nýs þings eftir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað að setja málið fremst í röð þingmannamála. Skoðun 26. september 2022 07:00
Verndari virkrar samkeppni Verðbólgan getur ýtt undir frekari samþjöppun og skaðað samkeppnismarkaðinn til lengri tíma litið. Þess vegna er mikilvægt að bæta ekki á vandann með samkeppnishindrunum og öðrum aðgerðum sem grafa undan samkeppni. Þessi ríkisstjórn hefur hins vegar sýnt að hún er enginn verndari virkrar samkeppni. Miklu heldur á fákeppnin þar skjól. Umræðan 22. september 2022 09:31
Samstöðuaðgerðir vegna verðbólgu og vaxtahækkana Við komum út úr heimsfaraldri með gríðarlega miklar eignaverðshækkanir og aukinn eigna- og tekjuójöfnuð vegna aðgerða stjórnvalda. Fjármagnstekjur jukust um 52% á milli ára, mesta aukningin frá árinu 2007, og tekjuhæsta tíundin í landinu sá kaupmátt sinn vaxa tvöfalt á við aðra Íslendinga vegna þessa í fyrra. Tveir af æðstu stjórnendum landsins í efnahagsmálum töluðu um lágvaxtaumhverfi sem komið væri til að vera. Skoðun 21. september 2022 13:01
Það kostar að skulda Sannleikurinn er að það er margt sem sameinar okkur á Alþingi einfaldlega vegna þess að við erum hluti af sömu þjóð. Það er ekki þannig að allir séu ósammála um allt og nú þegar umræða fer fram um fjárlagafrumvarp, mikilvægasta mál haustsins, þá er það einfaldlega ekki svo að þar sé allt vonlaust. Skoðun 16. september 2022 07:30
Fjölflokka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjarna Benediktssonar og xD Við erum með einn stjórnmálaflokk á Íslandi sem stýrir landinu, tvo sem láta eins og þeir séu í stjórnarandstöðu miðað við málflutninginn í stóru málaflokkunum. Ráðherrar Vinstri grænna og Framsóknar tala um fjármagnstekjuskatt, álag á stórútgerð og hvalrekaskatta. Skoðun 15. september 2022 13:01
Slembilukkan og verðleikarnir Slembilukka ræður því hvar á Jörðinni við fæðumst en það er ákvörðun að velja sér nýjan samastað og hana þarf stundum að taka vegna aðstæðna sem einstaklingar bera enga ábyrgð á; stríðið í Úkraínu er nærtækt dæmi um það. Skoðun 15. september 2022 11:01
Venjumst ekki stríðsrekstri Það voru mikilvægar raddir sem heyrðust á leiðtogafundinum Norðurlandaráðs í Hörpu í síðustu viku. Vinir okkar frá Eystrasaltsþinginu funduðu með okkur og góðum gestum frá Belarús, Rússlandi og Úkraínu, umræðuefnið að sjálfsögðu stríði í Úkraínu og stöðug brot Pútíns stjórnar á mannréttindum. Skoðun 13. september 2022 13:31
Inn-, útvistun eða blanda af hvoru tveggja Útvistanir til einkaaðila hafa gengið misvel auk þess sem útvistanir geta leitt til lægri launa, verra starfsumhverfis og verri þjónustu. Flestir eru sammála um að einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er t.d. engin töfralausn. Skoðun 12. september 2022 11:31
Borgarstjórn á beinni braut „Hver er sérstaða þín flokks?” er ég stundum spurð. “Hver er munurinn á Viðreisn og Sjálfstæðisflokki eða Samfylkingu?” eru spurningar sem fylgja gjarnan á eftir. Það vefst ekki fyrir mér að svara þessu, enda er Viðreisn með sitt eigið hryggjarstykki, sína eigin sérstöðu sem við erum stolt af. Skoðun 7. september 2022 08:00
Sáttmáli um áframhaldandi stéttaskiptingu Alltof margir komast rétt svo í gegnum mánuðinn, hangandi á kvíðanum, streitunni og yfirdráttarheimildinni við að reyna að láta hlutina ganga upp í þessu stéttskipta samfélagi sem við búum í. Borgarstjórn ber ábyrgð á þjónustuveitingu í nærumhverfinu og vinnur út frá stefnumótun flokka sem mynda meirihluta. Sú stefnumótun var til umræðu í borgarstjórn í dag og er stefnumótun sem tekur engan veginn á rót vandans. Skoðun 6. september 2022 19:01
Leikskóli áfram í Staðarhverfi Nokkrir íbúar í Staðarhverfi í Grafarvogi skrifuðu grein hér á Vísi á dögunum um leikskólamál í hverfinu þar sem ég er sérstaklega ávarpaður. Nú er ég reyndar ekki lengur í forsvari fyrir skólamálin í borginni en hef þó haft aðkomu að þessu máli sem greinin fjallar um og sjálfsagt að upplýsa um það sem ég þekki til málsins. Skoðun 6. september 2022 11:01
Hvaða bakslag? Fréttir af regnbogafánum sem rifnir eru niður, eyðileggingum á regnbogagötum, nýnasistaáróðri gegn hinsegin fólki, skemmdaverkum á listasýningu í tilefni Hinsegin daga, hatursorðræðu og meiðandi ummælum hafa verið óþgæginlega algengar síðastliðnar vikur hér á landi. Það virðist ógna tilveru einhverra í samfélaginu okkar að fjölbreytileikinn hafi fest sig í sessi á Íslandi. Skoðun 2. september 2022 08:31
Hvers vegna óttast stjórnvöld samkeppni svona mikið? Fólk hræðist stundum breytingar. Það er auðveldara að halda sig við vanann en tækifæri glatast hins vegar þegar vaninn fær alltaf að ráða för. Nýlega voru sagðar fréttir af dómsmáli þar sem hin undirliggjandi saga er einmitt af óþarfa hræðslu við breytingar. Málið snýst um afstöðu hins opinbera til að bjóða út verkefni og opinber innkaup. Skoðun 2. september 2022 07:01
Ákall til alþingismanna Staðreynd: Rekstur leikskóla er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. En það ætti að vera það. Það er undir Alþingi að lögfesta slíkt og tryggja fjármögnun fyrsta skólastigsins. Skoðun 1. september 2022 09:31
Leigubremsa er raunhæf og skynsamleg Danir ætla að koma á leigubremsu. Á danska þjóðþinginu er meirihluti fyrir því að takmarka hækkun leiguverðs næstu tvö ár. Hækkanir á húsaleigu verða takmarkaðar við 4% á ári næstu tvö árin en undanskildir verða þeir leigusalar sem sýnt geta fram á að kostnaður vegna húsnæðisins hafi hækkað umfram þá upphæð, t.d. vegna viðhalds. Skoðun 30. ágúst 2022 14:01
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun