
Síle

Hélt hann hefði verið étinn af hval
Hnúfubakur tók kajakræðara í munn sinn í stutta stund við strendur Síle síðustu helgi. Atvikið náðist á myndband. Maðurinn segist hafa verið hræddur um líf sitt og föður síns.

Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar
Forsvarsmenn einnar umsvifamestu stjörnuathuganastöðvar heims vara við því að fyrirhuguð rafeldsneytisverksmiðja eigi eftir að spilla einum af fáum stöðum á jörðinni þar sem sést í ósnortinn stjörnuhimininn. Ljósmengun frá verksmiðjunni eigi eftir að trufla athuganir sjónauka í Atacama-eyðimörkinni.

Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku
Tilkomumikill hringmyrkvi var sýnilegur á sunnanverðri Suður-Ameríku í gær. Margir komu saman til að sjá sólmyrkvann.

Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa
Fleiri en einn og hálfan milljarð fyrirbæra er að finna á tröllvöxnu korti af Vetrarbrautinni sem hópi stjörnufræðinga tókst að að setja saman. Kortið er það nákvæmasta sinnar tegundar og tók þrettán ár í smíðum.

Flókið púsluspil gekk upp og fjölskyldan fór til Síle
Fréttastjórinn Kolbeinn Tumi Daðason ákvað að skella sér í tvo mánuði með börnunum sínum tveimur til Síle í janúar og febrúar á þessu ári. Börnin voru bæði í fjarnámi og hann í fjarvinnu frá störfum sínum á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Keppir á sínum fyrstu Ólympíuleikum 58 ára gömul
Hún hætti að keppa í íþróttinni sinni árið 1986 en sneri óvænt aftur og vann sér sæti á Ólympíuleikunum árið 2024.

Síleskt félag Björgólfs í greiðslustöðvun og hann hrynur niður listann
Síleskt fjarskiptafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur sótt um greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Á nýútgefnum lista Forbes yfir milljarðamæringa í dollurum talið hrynur Björgólfur um ríflega þrjú hundruð sæti. Hann er eftir sem áður eini Íslendingurinn á listanum.

Fullkomlega ærandi að vita ekki hvernig jakkinn komst hinumegin á hnöttinn
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann fékk skilaboð frá eiganda JÖR jakka sem bjó í eyju sunnan við Síle í Suður-Ameríku. Sá hafði keypt flíkina á fatamarkaði og hafði svo uppi á Gumma á samfélagsmiðlum.

Ekki valinn í landsliðið því hann talar ekki spænsku
Ben Brereton Díaz, leikmaður Sheffield United, þarf að læra spænsku ef hann vill verða valinn í landslið Síle á nýjan leik.

Fimmtíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi
Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum.

Piparsprey, brotin bílrúða og gáttaðir íslenskir krakkar
Sumum kvöldum gleymir maður aldrei. Ég upplifði eitt slíkt með börnunum mínum í gær. Í hinu fallega landi Chile, þar sem stéttaskiptingin og reiðin kraumar undir niðri og bullur taka völdin á fótboltaleik í Santiago. Rúmum fimmtíu árum eftir að fólk var tekið af lífi á sama vettvangi fyrir „rangar“ skoðanir.

Fyrrverandi forseti Síle lést í þyrluslysi
Sebastian Pinera, fyrrverandi forseti Síle, lést í dag þegar þyrla sem hann ferðaðist með féll ofan í stöðuvatn í suðurhluta Síle. Pinera var 74 ára gamall.

Erfitt að sjá barnið sitt eiga í erfiðleikum með tungumálin sín
Hjónin Alondra Silva Munoz og Helgi Þorsteinsson Silva gáfu nýlega saman út bókina Töfrandi fjöltyngdur heimur Áka Tahiel. Þau sóttu innblástur að bókinni í sitt eigið líf og til sonar síns sem er á þriðja aldursári og talar þrjú tungumál, íslensku, spænsku og ensku.

Neyðarástand vegna skógarelda í Síle
Í það minnsta 51 er látið í skógareldum í Valparaíso héraði í Síle. 45 fundust látin en sex létust vegna brunasára á spítala. Forseti landsins, Gabriel Boric, hefur lýst yfir neyðarástandi og sagðist ætla að nýta öll þau úrræði sem honum standa til boða til að takast á við ástandið.

Fjöldadauði sela rakinn til H5N1
Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1.

Disney kærir bílaþvottastöð í Síle
Lucasfilm, fyrirtæki í eigu Disney-samsteypunnar sem framleiddi Stjörnustríðsmyndirnar og myndirnar um Indiana Jones, er að kæra síleska bílaþvottastöð fyrir vörumerkjastuld.

Djúpstæður klofningur hálfri öld eftir alræmt valdarán
Síleskt samfélag er enn klofið sem endranær, fimmtíu árum eftir að herforingjar steyptu lýðræðislega kjörnum forseta landsins af stóli í blóðugu valdaráni. Tugir þúsunda manna greiddu fyrir stöðugleika og hagvöxt með lífi sínu undir ógnarstjórn einræðisherrans Augusto Pinochet.

50 ár liðin frá herforingjabyltingunni í Chile
Í dag eru 50 ár liðin frá því að herforingjar undir forystu Augusto Pinochet steyptu lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Salvador Allende í Chile með dyggri aðstoð bandarískra stjórnvalda og auðhringa. Herforingjarnir, górillurnar eins og þeir voru víða kallaðir, beittu gífurlegri hörku og fantaskap.

Fundu leifar fyrstu stjarnanna í fjarlægum gasskýjum
Þrjú fjarlæg gasský sem stjörnufræðingar fundu eru talin innihalda leifar af fyrstu stjörnunum sem mynduðust í alheiminum. Uppgötvun þeirra hjálpar vísindamönnum að skilja betur eðli fyrstu stjarnanna sem urðu til eftir Miklahvell.

Fundu nýja Moai-styttu á Páskaeyju
Vísindamenn á Páskaeyju í Kyrrahafi fundu undir lok febrúar nýja Moai-styttu. Styttan fannst ofan í eldfjallagíg en lítið stöðuvatn var ofan í gígnum áður.

Konan sem neitar að vera forsetafrú
Eiginkona forseta Chile hefur ákveðið að reka sjálfa sig sem forsetafrú landsins. Hún segir að aðrir geti sinnt skyldum forsetafrúarinnar, hún hafi nóg annað við tímann að gera.

Stytturnar á Páskaeyju verulega skemmdar eftir bruna
Nokkrar af heimsfrægu styttunum á Páskaeyju eru verulega skemmdar eftir sinubruna á svæðinu þar sem þær eru staðsettar. Talið er að eldurinn sé af mannavöldum.

Í lífstíðarbann fyrir að hagræða úrslitum
Sílemaðurinn Sebastián Rivera, fyrrum tennismaður og nú þjálfari, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá íþróttinni. Hann var fundinn sekur um að hafa hagrætt úrslitum í 64 tennisleikjum.

Sílemenn hafna nýrri stjórnarskrá
Sílabúar kusu í gær gegn stjórnarskrárbreytingum sem forseti landsins hafði reynt að ná í gegn. Þeir sem kusu gegn breytingunum segja nýju stjórnarskránna vera of róttæka en alls greiddu 62 prósent kjósenda gegn breytingunum.

Fékk óvart greidd 300 sinnum hærri laun og flúði
Chíleskur maður fékk í síðasta mánuði útgreidd mánaðarlaun sem voru 300 sinnum hærri en hann átti að fá. Í stað þess að endurgreiða fyrirtækinu launin lét maðurinn sig hverfa. Nokkrum dögum síðar barst tilkynning frá lögfræðingi mannsins um að hann hafi sagt upp starfi sínu. Síðan hefur ekkert heyrst frá manninum.

Telja sig hafa fundið elsta tré í heimi í Síle
Patagoníugrátviður sem hópur vísindamanna hefur rannsakað í sunnanverðu Síle gæti verið meira en fimm þúsund ára gamall. Sé það rétt er tréð það elsta sem vitað er um á jörðinni.

Hómófóbísk líkamsárás náðist á myndband: „Ég var bara í sjokki“
Íslendingur sem varð fyrir árás vegna kynhneigðar sinnar í líkamsræktarstöð í Síle í vikunni segist hafa óttast um líf sitt. Lögreglan brást honum en maðurinn segir málinu hvergi nærri lokið.

Ætla sér að toppa Anconcagua í dag
Þeir Tolli Morthens, Arnar Hauksson og leiðsögumaður þeirra Sebastian Garcia eru á leið á topp hæsta fjalls Suður-Ameríku en samkvæmt ferðaáætlun verða þeir á toppnum síðar í dag.

35 ára vinstrimaður nýr forseti Chile
Vinstrimaðurinn Gabriel Boric vann sigur í annarri umferð forsetakosninganna í Chile sem fram fór í gær. Hann hafði þar betur gegn hægriöfgamanninum José Antonio Kast.

Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile
Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði.