Grindavík
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 74 ›
Áfram heimilt að dvelja í bænum þó að lögreglustjóri mæli gegn því Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara í bæinn og dvelja heima hjá sér þrátt fyrir nýtt hættumatskort sem bendi til þess að auknar líkur séu á eldgosi norðan Grindavíkur. Þetta tilkynnir lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem fundaði í dag um stöðu mála með fulltrúum almannavarna. Innlent 30.12.2023 12:04
Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svartsengi Auknar líkur eru á eldgosi norðan Grindavíkur og hætta er talin á hraunflæði inn í bæinn. Byrjað verður að reisa gríðarstóra varnargarða við Grindavík strax eftir helgi. Bæjarstjóri telur að uppbygging garðanna fái Grindvíkinga til að flytja heim. Innlent 29.12.2023 20:00
Svona mun varnargarðurinn við Grindavík líta út Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur tilkynnt að ráðist verði í fyrsta áfanga varnargarða við Grindavík og er undirbúningur framkvæmdanna þegar hafin. Gert er ráð fyrir að garðurinn verði um 7 km að lengd og að hann muni liggja að mestu í hápunktum í landinu ofan og umhverfis Grindavík. Innlent 29.12.2023 18:01
Fannar þakkar fyrir skjót viðbrögð Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi að samhugur væri í ríkisstjórninni varðandi byggingu varnargarða við Grindavík og að undirbúningur hans væri þegar hafinn. Fannar Jónsson, bæjarstjóri í Grindavík, segir þetta vera ánægjulegar fréttir. Innlent 29.12.2023 17:42
Breytt hætta í Grindavík vegna mögulegs hraunflæðis Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort sem er byggt á samtúlkun gagna á samráðsfundi vísindafólks sem var haldinn var í morgun, en mat á hættustigi innan svæðanna er óbreytt frá því síðast. Hins vegar hefur þó verið gerð breyting á þeim hættum sem eru mögulegar innan Grindavíkur. Þar hafa bæst við hættur vegna hugsanlegs hraunflæðis og gasmengunar. Innlent 29.12.2023 15:24
Gríðarlega stór varnargarður til að gera Grindavík að öruggum kosti Eitt mál var á dagskrá á ríkisstjórnarfundi í dag, að sögn Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra, en það var bygging varnargarðs í kringum Grindavík til að verja innviði bæjarins. Hún segir algjöra samstöðu um málið í ríkisstjórninni. Innlent 29.12.2023 11:45
Koma upp nýju verklagi á lokunarpóstum Lögregla á Suðurnesjum hefur tekið upp nýtt verklag á lokunarpóstum til Grindavíkur og þurfa þeir sem vilja komast í bæinn nú að gefa upp kennitölu, auk þess að bílnúmer er sérstaklega skráð niður. Innlent 29.12.2023 08:04
Telur skynsamlegt að reisa varnargarða norðan við Grindavíkurbæ Innviðaráðherra telur skynsamlegt að byggja varnargarða norðan við Grindavíkurbæ til að verja bæinn ef til eldgoss kemur. Framkvæmdin sé vissulega dýr en verndi mun meiri verðmæti. Innlent 28.12.2023 19:57
Sjómenn og vélstjórar vilja Gildi út Aðalfundur Sjómanna- og vélastjórafélags Grindavíkur krefst þess að lífeyrissjóðurinn Gildi segi sig úr Landssambandi lífeyrissjóða. Þannig hljóðaði önnur tveggja ályktana sem samþykktar voru á fámennum aðalfundi sem fram fór í húsi fagfélaganna að Stórhöfða 29 í Reykjavík í gær. Innlent 28.12.2023 14:57
Nýjar sprungur í Grindavíkurvegi Nýjar sprungur hafa myndast í Grindavíkurvegi, í nýrri viðgerð nærri Svartsengi. Vegagerðin segir talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær. Innlent 28.12.2023 14:53
Smáaurar í öllu samhengi Kostnaður við uppbyggingu varnargarða norðan við Grindavíkurbæ er smáaurar miðað við þau verðmæti sem garðarnir verja að sögn bæjarstjóra Grindavíkur. Það sé mikilvægt fyrir þjóðarbúið að ráðist verði í uppbyggingu garðanna sem fyrst. Innlent 28.12.2023 12:31
Yrði líklega aflminna en gæti varað lengur Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið hafi haldið áfram við Svartsengi og sé nú á svipað statt og það var fyrir 18. desember þegar síðast byrjaði að gjósa. Innlent 28.12.2023 08:35
Þrautseigja Grindvíkinga Föstudagskvöldið 10. nóvember var heilt bæjarfélag rýmt í skyndi eftir stanslausa skjálftahrinu. Eldgosið á Reykjanesskaga varði sögulega stutt og íbúar Grindavíkur vita lítið sem ekkert um framhaldið. Innlent 28.12.2023 07:00
Vilja betra eftirlit með komum til Grindavíkur Enn eru miklar líkur á eldgosi. Kvikusöfnun og landris heldur áfram. Nýtt hættumatskort verður birt á föstudag sem ákvarðar fyrirkomulag í Grindavík. Íbúar vilja meira eftirlit og vöktun. Innlent 27.12.2023 21:30
Framlengja lokun til 29. desember Bláa lónið hefur framlengt lokun sína um tvo daga hið minnsta. Í tilkynningu segir að staðan verði endurmetin að þeirri framlengingu lokinni. Viðskipti innlent 27.12.2023 19:06
Enn kröftugt landris við Svartsengi Enn mælist landris við Svartsengi og er enn metin töluverð hætta við Grindavík. Innlent 27.12.2023 12:00
Breytir ekki fyrirkomulagi við lokunarpósta þrátt fyrir þjófnað Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar ekki að breyta verklagi við lokunarpósta inn í Grindavík þrátt fyrir þjófnað um jólin. Bærinn er opinn fyrir íbúa og verður fyrirkomulagið endurmetið á föstudag. Innlent 27.12.2023 11:59
Grindvíkingar geta áfram verið í Grindavík Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara til Grindavíkur og dvelja heima hjá sér miðað við uppfært hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 27.12.2023 11:12
Taka sér frí frá flugeldum Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur ákveðið að selja enga flugelda þessi áramótin. Flugeldasalan hefur verið langstærsta fjáröflun Þorbjörns síðustu áratugina og algjör lykilþáttur í okkar rekstri. Innlent 27.12.2023 09:52
Altjón við Víkurbraut þar sem boltar renna eftir gólfinu Sigurður Óli Þórleifsson íbúi í Grindavík sýndi fréttamönnum TV2 í Noregi stöðuna á húsinu sínu við Víkurbraut í Grindavík á dögunum. Gólfið hallar svo mikið að boltar rúlla eftir því. Um er að ræða altjón samkvæmt Náttúruhamfaratryggingum Íslands. Innlent 27.12.2023 08:10
Tvíeyki tók gaskúta Grindvíkinga ófrjálsri hendi Gaskútur og grillábreiða voru horfin þegar Aron Ágústsson íbúi í Grindavík og fjölskylda hans sneri aftur heim til Grindavíkur í dag. Hann segir furðulegt að óprúttnir aðilar komist inn í bæinn og að munir hverfi þrátt fyrir fullyrðingar lögreglustjóra um að ekkert sé að óttast. Innlent 26.12.2023 22:31
Unnu þrívíddarmódel sem veitir upplýsingar um skemmdir í Grindavík Myndmælingateymi verkfræðistofunnar EFLU hefur lokið við þrívíddarmódel af Grindavík. Módelin gefa haldbæra mynd af ástandi fasteigna og mannvirkja í Grindavík. Innlent 25.12.2023 19:46
Einn fárra sem heldur upp á jólin í Grindavík Grindvíkingur sem ætlar að halda jól í bænum segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að fara heim um jólin. Síðustu dagar hafi verið algjör rússíbanareið. Fjölskyldan verður ein fárra sem dvelur í Grindavík um hátíðarnar eftir að bærinn var opnaður að fullu í gær. Innlent 23.12.2023 20:01
Ætlar ekki að gista í Grindavík Landris við Svartsengi mun líklegast ná sömu hæð og fyrir gos eftir tvær til þrjár vikur. Bæjarstjóri Grindavíkur segir það vonbrigði að það gæti byrjað að gjósa á ný nærri bænum. Hann telur að fáir muni gista í Grindavík yfir hátíðarnar. Innlent 23.12.2023 12:29
„Það rýmdi enginn Reykjahlíð á sínum tíma“ Prófessor í eldfjallafræði segir það góða ákvörðun að leyfa Grindvíkingum að gista í bænum, nú þegar gosvirkni virðist hafa færst annað. Hann segir líkur á gosi fara vaxandi með auknu landrisi og telur tvær vikur í að það nái sömu hæð og það náði fyrir síðasta gos. Innlent 22.12.2023 22:08
Hætta við að stefna ríkinu í Grindavíkurmáli Grindvíkingar sem hugðust stefna íslenska ríkinu vegna lokana í Grindavík eru hættir við. Lögmaðurinn sem þeir höfðu leitað til vegna málsins kveðst ekki vita ástæðuna að baki ákvörðun þeirra. Innlent 22.12.2023 20:57
Myndi treysta sér til að gista sjálfur í Grindavík Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segist sjálfur myndu treysta sér til að gista í Grindavík, en hann hefur heimilað íbúum bæjarins að dvelja þar allan sólarhringinn frá og með morgundeginum. Hann segist skilja mætavel áhyggjur björgunarsveita, sem óskuðu eftir því að vera leystar undan daglegri viðveru í og við bæinn í dag. Innlent 22.12.2023 19:59
Dregið hafi úr góðvild í garð björgunarsveitafólks Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir teikn á lofti um að dregið hafi úr góðvild vinnuveitenda og aðstandenda björgunarsveitafólks. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglustjórans til fjölmiðla. Innlent 22.12.2023 16:34
Jól í Grindavík eftir allt saman Frá og með Þorláksmessu mega Grindvíkingar fara inn í bæinn allan sólarhringinn og jafnvel sofa þar. Því verða jól í Grindavík eftir allt saman, allavega hjá þeim Grindvíkingum sem það vilja. Innlent 22.12.2023 16:12
Sundhnúksgígar fyrir og eftir gos Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, eða RAX, náði myndunum hér fyrir neðan úr lofti í grennd við gosstöðvarnar við Sundhnúk. Önnur er tekin áður en gosið hófst og sú seinni eftir að því lauk í gær. Innlent 22.12.2023 15:05