
Ölfus

Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju
Íbúakosningu um hvort reisa eigi umdeilda mölunarverksmiðju í Ölfusi var frestað á síðustu stundu í gær, sem bæjarstjóri segir hafa verið nauðsynlegt. Minnihlutinn segir ákvörðunina hins vegar óskiljanlega og hyggst leita álits á því hvort hún sé yfir höfuð lögleg.

Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu
Fulltrúar minnihlutans í Ölfusi segja frestun atkvæðagreiðslu um deiliskipulag vegna mölunarverksmiðju grafalvarlegt mál, og segjast munu leita álits sérfróðs fólks um það hvort vafi sé á lögmæti ákvörðunarinnar.

Kosningum frestað
Í dag átti að hefjast bindandi íbúakosning í Ölfusi um grótmulnings verksmiðju Heidelberg. Á bæjarstjórnarfundi í gær, sem var boðað var til með sólarhringsfyrirvara og engin gögn lágu fyrir, var ákveðið að fresta íbúakosningunum og taka þannig lýðræðislegan rétt af íbúum í Ölfusi. Við skiljum ekki á hvaða lagagrundvelli meirihluti bæjarstjórnar byggir sína fordæmalausu ákvörðun á, rökin virtust byggjast á þeirra eigin skoðunum.

Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni
Bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, sem eru í meirihluta í Ölfusi, finnst leiðinlegt að fresta fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu íbúa um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast í dag. Hins vegar sé ekkert annað í stöðunni.

Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg
Til að gæta að rétti íbúa til að taka upplýsta ákvörðun þar sem meðal annars koma fram áhyggjur stærsta hagaðila á svæðinu, First Water, tók bæjarstórn nú fyrir skömmu ákvörðun um að fresta atkvæðagreiðslu meðal íbúa.

Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju
Bæjarstjórn Ölfuss ákvað síðdegis að fresta íbúakosningu um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast á morgun. Vísað er til þess að bréf forstjóra First Water hafi fyllt málið vafa og óvissu sem ekki verði við unað.

Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli
Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA).

Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss
Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu.

Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts
Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu

Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista
Ómar Torfason, meðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista, hefur kært stjórn kirkjunnar, þau Gavin Anthony, Jedel Oriel Ditta og Þóru Sigríði Jónsdóttur fyrir auðgunarbrot.

Segir seinlæti First Water stórfurðulegt
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman.

Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn
Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfuss, er afar ósáttur við bréf Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf. – hann furðar sig á tímasetningunni.

Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi
Eggert Þór Kristófersson forstjóri hefur, fyrir hönd First Water hf., ritað bæjarstjórn Þorlákshafnar afdráttarlaust bréf þar sem hann lýsir sig algjörlega andsnúinn því að mölunarverksmiðja Heidelberg rísi í næsta nágrenni við starfsemi fyrirhugaðar matvælaframleiðslu.

Grjótmulningsverksmiðja umfram blómleg tækifæri komandi kynslóða?
Sveitarfélagið Ölfus er ekki á flæðiskeri statt. Til marks um það er fyrirhuguð fjárfesting í uppbyggingu atvinnulífs í Ölfusi á milli tvö til þrjú hundruð milljarðar á næstu fimm til sjö árum.

Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést
Meginorsök banaslyss á Þrengslavegi í júlí í fyrra var skert athygli við akstur. Við rannsókn slyssins kom í ljós að ökumaður, átján ára karlmaður, notaði farsíma talsvert skömmu fyrir slys til þess að taka upp myndband, taka ljósmyndir og senda skilaboð á meðan hann ók bifreiðinni.

Ætlað að móta aðgerðir gegn ofbeldi á Suðurlandi
„Öruggara Suðurland“ er nýtt verkefni, sem lögreglan á Suðurlandi stendur fyrir í samstarfi við sveitarfélögin fjórtán á svæðinu og nokkrar stofnanir, en tilgangurinn er að móta aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurlandi.

23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn
Það iðar allt af lífi og fjöri á heimili í Þorlákshöfn þessa dagana því 23 hvolpar úr tveimur gotum voru að koma þar í heiminn, þrettán rakkar og tíu tíkur.

Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði
Fyrirætlanir Heidelberg sem tengjast stórfelldum efnisflutningum til Þýskalands í gegnum Þorlákshöfn er enn komið á dagskrá. Og ekki seinna vænna enda verður íbúakosning um málið samhliða forsetakosningum.

Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna
Tveir félagar í Kirkju sjöunda dags aðventista (KSDA) bera stjórn safnaðarins þungum sökum og segja að þar hafi verið framið valdarán. Þeir segja söfnuðinn klofinn en undir lúra milljarða samningar þar sem heilt fjall er mulið og selt úr landi.

Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi
Undanfarin misseri hafa fyrirhugaðar stórframkvæmdir alþjóðlega steypurisans Heidelberg Materials í Ölfusi verið í fréttum.

Um 800 manns mættu á Stóðhestaveislu
Um átta hundruð manns mættu í Ölfushöllina á Ingólfshvoli í gærkvöldi til að sjá allra flottustu stóðhesta landsins spretta úr spori og kynna sig fyrir sumarið. Ellefu og tólf ára frænkur stálu hins vegar senunni á sýningunni þar sem þær gáfur ekki tommu eftir í reiðmennskunni.

Ætla að vera aðeins „hógværari“ en Ölfus við gerð bæjarskiltis
Til stendur að reisa nokkur skilti við bæjarmörk Hveragerðisbæjar á þessu ári. Í minnisblaði menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar bæjarins er lagt til að vera ögn „hógværari“ en nágrannarnir í Ölfusi við gerð skiltanna.

Taka ný veður- og upplýsingaskilti í notkun
Vegagerðin hefur sett upp tvö ný veður- og upplýsingaskilti, annars vegar við hringtorgið við Selfoss og hins vegar við Biskupstungnabraut. Til stendur við koma upp fleiri að þessari tegund á næstunni.

„Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“
Gosi Ragnarsson framkvæmdastjóri Superjeep harmar að starfsmenn fyrirtækisins séu sakaðir um að hafa hrakið burt fjölskyldu í norðurljósaleiðangri síðasta sunnudag.

Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum
Fjölskylda sem ætlaði sér að horfa á norðurljósin á slóða rétt hjá Litlu kaffistofunni var rekin í burtu af starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækis. Mennirnir sökuðu fjölskylduna um að ónáða fólk sem hefði borgað dýrum dómi fyrir norðurljósaferð.

Flutningabifreið á hliðinni undir Ingólfsfjalli og lokar veginum austur
Flutningabifreið fór á hliðina undir Ingólfsfjalli nú fyrir stundu og þverar algjörlega leiðina austur. Lögregla er á vettvangi og bíður þess að bílinn verðir fluttur af veginum. Hjáleið er um gamla Suðurlandsveginn fyrir neðan hringveginn.

Vistmaður á fangelsinu Sogni fannst látinn
Vistmaður á fangelsinu Sogni í Ölfusi fannst látinn seint síðastliðið fimmtudagskvöld. Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þrátt fyrir það rannsakar lögregla málið. Þetta staðfestir Páll E. Winkel fangelsismálastjóri í samtali við fréttastofu.

Eins og verið sé að bæta kjör örvhentra umfram rétthentra
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir almenna mótstöðu hjá sveitarfélögum að gera skólamáltíðir fríar í grunnskólum landsins. Honum hugnast aðrar leiðir til að bæta kjör allra frekar en að taka afmarkaðan hóp fjölskyldna barna í grunnskóla út fyrir sviga. Það hafi verið hugmynd forsætisráðherra. Sveitarfélögin fari sínar eigin leiðir til að mæta tilmælum í kjarasamningi.

Grindvíkingar fá forgang í lóðir í Ölfusi
Grindvíkingar fá forgang við úthlutun lóða í Ölfusi. Um er að ræða lóðir fyrir allt að 127 íbúðir.

Átök í kókaínpartýi í Þorlákshöfn enduðu fyrir dómi
Maður, sem var ákærður fyrir að slá konu með bréfpoka fullum af bjórflöskum, var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í gær.