Kynferðisofbeldi
Braut á minni máttar og sýndi vinkonu sinni á Skype
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt táning í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn pilti. Braut hann á piltinum sem var meðvitundarlaus vegna áhrifa lyfja.
Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 33 ára karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Brotið átti sér stað í heimahúsi á Akureyri í janúar 2018.
Ákærður fyrir að áreita mann kynferðislega meðan hann svaf
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur manni fyrir kynferðislega áreitni.
Þóttist ætla að aðstoða konu á skemmtistað en nauðgaði henni
Mahdi Soussi, starfsmaður á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að brjóta gróflega á konu á salerni staðarins seint um nótt í desember 2018.
Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga ungum næturgesti bróður síns
Karlmaður um fertugt hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga átján ára konu í september 2017.
Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni
Karlmaður á þrítugsaldri var á föstudaginn sakfelldur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku.
Lögreglan með allar klær úti í vændis- og mansalsmálum
Í nýrri afbrotaskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram kynferðisbrotamálum hafi fjölgað töluvert í maímánuði. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar segir allar klær vera úti í vændis- og mansalsmálum sem útskýri fjölgunina.
Vonar að stjórnvöld innleiði samþykktina
Á nýafstöðnu afmælisþingi ILO, eða Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, var samþykkt tímamótasamþykkt gegn ofbeldi og áreitni á vinnustað. Samþykktin er fyrsti alþjóðasamningur sinnar tegundar og markar mikil tímamót í baráttu gegn ofbeldi og áreitni á vinnustað.
Dæmdur fyrir að grípa um „flott“ brjóst konu á sjómannadaginn
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni með því að grípa um brjóst nær ókunnugrar konu á dansleik á sjómannadaginn í fyrra.
Telur að kanna eigi þörfina á karlaathvarfi fyrir þolendur ofbeldis
Dæmi eru um að karlmenn sem hafa flúið heimilisofbeldi lendi á götunni. Ráðgjafar frá Kvennaathvarfinu hafa aðstoðað þá í Bjarkarhlíð en lengra nær hjálpin ekki þar sem ekkert skjól er í boði. Verkefnastýra Bjarkarhlíðar segir vandann falinn þar sem karlar upplifi oft mikla skömm sem þolendur. Hún telur að kanna eigi þörfina fyrir karlaathvarf.
Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun
Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi.
Fangelsisdómur vegna nauðgunar á Hressó staðfestur í Landsrétti
Landsréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Hemn Rasul Hamd 34 ára gamals karlmanns vegna nauðgunar aðfaranótt 14. febrúar 2016.
„Það er einfaldlega stórhættulegt fyrir okkur að tala um þetta ofbeldi“
„Ég verð sjálf skíthrædd, miðað við þennan dóm veit ég ekki hversu frjálst ríkið er,“ segir Anna Lotta Michaelsdóttir einn stofnenda Málfrelsissjóðs sem stofnaður var í dag í þágu þeirra sem tjá sig um kynbundið ofbeldi.
Stofna sjóð til að draga úr hræðslu kvenna við að tjá sig um kynbundið ofbeldi
Hópur kvenna hefur stofnað málfrelsissjóð á söfnunarsíðunni Karolinafund í þeim tilgangi að draga úr ótta kvenna við að tjá sig um kynbundið ofbeldi og tryggja að fjárhagsáhyggjur bætist ekki við það andlega og tilfinningalega álag sem fylgir því að tala um kynbundið ofbeldi.
Leiðtogi kynlífsþrælkunarhópsins sakfelldur
Keith Raniere, maðurinn sem sakaður var um að hafa verið leiðtogi sjálfshjálparhóps sem hneppti konur í kynlífsþrælkun, var í kvöld sakfelldur í réttarhöldunum yfir honum. Hann gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm.
Birti nektarmyndirnar sjálf eftir að hakkari hótaði að kúga hana með þeim
Bandaríska leikkonan Bella Thorne birti í gær nektarmyndir sem hún tók af sjálfri sér, en hafði ekki ætlað til opinberrar birtingar, eftir að hakkari komst yfir myndirnar og hótaði að birta þær.
Staðfestu dóm yfir manni sem braut gegn æskuvinkonu
Atvikið átti sér stað í september árið 2014.
Fjögurra ára dómur yfir manni sem braut gegn barni staðfestur
Maðurinn lést skömmu eftir uppkvaðningu héraðsdóms en börn hans áfrýjuðu til Landsréttar.
R Kelly segist saklaus
Tónlistarmaðurinn R Kelly mætti fyrir dóm í morgun þar sem hann neitaði sök í öllum ákæruliðum en meðal þeirra eru 11 kynferðisbrotaákærur. Ef hann er fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér 30 ára fangelsisvist.
Björgunarsveitarmanni ekki vikið úr starfi þrátt fyrir nauðgunarkæru
Björgunarsveitarmanni hjá Landsbjörgu, sem annar félagsmaður kærði fyrir nauðgun, var ekki vikið úr sveitinni meðan rannsókn á málinu fór fram. Málið er nú til merðferðar hjá héraðssaksóknara.
Ofbeldismaður Nönnu rekinn úr skólanum: „Ég skammaðist mín fyrir að vera vinkona hans“
Nanna Elísa var í námi við Columbia háskóla og gekk vel, þrátt fyrir að námið væri erfitt og margar áskoranir. Nanna lenti í miklu áfalli haustið 2017 þegar hún sneri aftur til New York eftir að hafa varið sumrinu á Íslandi.
Þarf að hafa það á samviskunni að hafa ekki trúað Ellen Degeneres
Móðir Ellenar Degeneres kom á framfæri djúpstæðri eftirsjá fyrir að hafa ekki trúað frásögn Ellenar um kynferðisofbeldi.
Stuðningsfaðir braut kynferðislega gegn fatlaðri konu
Auk tveggja ára fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í bætur.
Níðingur fær styttri dóm
Landsréttur mildaði í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Þorsteini Halldórssyni úr sjö ára fangelsi í fimm og hálfs árs
Dómur yfir barnaníðingi styttur um átján mánuði
Landsréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Þorsteini Halldórssyni, dæmdum kynferðisbrotamanni, úr sjö ára fangelsi í fimm og hálfs árs fangelsi.
Lögfesta þarf auðkennaþjófnað hér á landi
Rannsóknarlögreglumaður í netglæpadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir auðkennaþjófnað á netinu vera að aukast.
Beraði sig ítrekað fyrir stjúpdætrum sínum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í fimm mánaða fangelsi sem skilorðsbundið er til tveggja ára fyrir að bera sig fyrir framan stjúpdætur sínar og fróa sér svo þær sáu til.
Grunaður um brot gegn þrettán ára stúlkubarni
21 árs karlmaður sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir að hafa sumarið 2016 látið þrettán ára stúlku hafa við sig munnmök og haft samræði við stúlkuna.
Ekki hægt að höfða sakamál vegna ungs manns sem ranglega var sakaður um nauðgun og kúgun
Það eru engin ákvæði til sem gera auðkennaþjófnað refsiverðan hér á landi sem þýðir að ekki er hægt að höfða sakamál vegna ungs manns sem ranglega var sakaður um nauðgun og kúgun eftir að auðkenni hans hafði verið stolið á Snapchat.
Konan segist hafa verið heilaþvegin af þeim sem lést vera annar maður
Sá dæmdi sagði upphafið hafa verið hugsunarlaust grín.