
Pepsi Max-mörkin

Allt sóknarupplegg Fylkis var máttlítið
Farið var yfir leik Fylkis og Breiðabliks í Pepsi Max Mörkunum. Þó liðin séu nálægt hvort öðru í töflunni þá var aldrei spurning hvort liðið myndi fara heim með þrjú stig.

Segir að Gunnhildur Yrsa gæti verið á leið í Garðabæinn
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er mögulega á leið til Stjörnunnar og myndi þá klára tímabilið í Pepsi Max deild kvenna með Garðbæingum.

Sjáðu mörkin sem skutu Val á toppinn ásamt öllum hinum úr 9. umferð
Valur komst á topp Pepsi Max deildarinnar í gær með 3-1 sigri á Fjölni. Mörk leiksins sem og öll mörk 9. umferðar má sjá í fréttinni.

Rýnt í uppspil FH-inga: „Hún er ekki með neina möguleika“
Lið FH situr á botni Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta og hefur tapað sex af sjö leikjum sínum til þessa. Sérfræðingar Pepsi Max markanna rýndu í spilamennsku liðsins.

Grjóthörð og með geggjaða tækni - Ætti ekki að fara aftur til Keflavíkur
„Hún er ekki bara fljót. Hún er með geggjaða boltatækni og er grjóthörð,“ sagði Kristín Ýr Bjarnadóttir í Pepsi Max-mörkunum þegar sérfræðingarnir ræddu um Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Um slaka erlenda leikmenn: Ef þeir eru ekki afgerandi þá takk og bless
Það var mikill hiti í Pepsi Max Mörkunum í gær þegar erlendir leikmenn deildarinnar voru ræddir. „Þú þarft að vera afgerandi útlendingur til að taka sætið af íslenskum leikmanni,“ sagði Bára Kr. Rúnarsdóttir, sérfræðingur þáttarins.

Landsliðsmarkvörðurinn ætlaði að tækla óléttuna eins og meiðsli
Guðbjörg Gunnarsdóttir - landsliðsmarkvörður í fótbolta - mætti í settið hjá Pepsi Max Mörkunum og fór yfir óléttuna, stöðu sína í landsliðinu og hvernig það er að koma til baka eftir barnsburð.

Dagskráin í dag: Baráttan um Kópavog, Pepsi Max Tilþrifin, Pepsi Max Mörkin og ítalski boltinn
Það er boðið til veislu á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Við sýnum tvo leiki úr Pepsi Max deild karla, tvo leiki úr ítölsku úrvalsdeildinni sem og Pepsi Max Tilþrifin og Pepsi Max Mörkin eru á dagskrá.

Kristín Ýr segir lítinn sem engan mun á toppliðunum tveimur
Það er sannkallaður stórleikur á Kópavogsvelli annað kvöld þegar Íslandsmeistarar Vals koma í heimsókn.

Dagskráin í dag: Damallsvenskan og toppslagur í Serie A
Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag þar sem fótboltinn verður í fyrirrúmi.

Dagskráin í dag: Toppslagur í Lautinni og undanúrslit enska bikarsins á Wembley
Tveir stórleikir í Pepsi Max deild karla og fullt af öðru góðgæti í beinni útsendingu á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Fyrrum samherji Sifjar skildi ekkert í íslenska boltanum við komuna til landsins
Sif Atladóttir, landsliðs- og atvinnukona hjá Kristianstads í Svíþjóð, segir að helsti munurinn á milli sænsku og íslensku deildarinnar sé samkeppnin.

Sif mælir með Svíþjóð: „Erfiðara að fara til Frakklands eða Þýskalands“
Sif Atladóttir var gestur Pepsi Max-markanna á fimmtudagskvöldið þar sem hún ræddi m.a. um sænska kvennaknattspyrnu sem og launamálin.

Rauða spjaldið algjörlega galin ákvörðun að mati Margrétar Láru
Sérfræðingar Pepsi Max marka kvenna skildu hvorki upp né niður í rauða spjaldinu sem KR-ingurinn Ana Victoria Cate fékk í leik gegn Stjörnunni.

Sif í Pepsi Max mörkunum í kvöld
Landsliðskonan Sif Atladóttir fer yfir sænsku úrvalsdeildina í Pepsi Max mörkum kvenna á Stöð 2 Sport í kvöld.

Dagskráin í dag: Real getur orðið meistari, Leeds, Tiger Woods og Pepsi Max-mörkin
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 Sports í dag en alls má finna fimm beinar útsendingar í dag.

Stórskemmtilegt innslag um Pollamótið: „Vá hvað þetta er gaman“
Pepsi Max Mörkin fjalla ekki aðeins um það sem gerist í Pepsi Max deild kvenna heldur kvennaknattspyrnu almennt. Að þessu sinni var það Pollamótið á Akureyri.

Landsliðsþjálfarinn telur það kost að deildin verði spiluð fram á haust
Þjálfari íslenska A-landsliðsins í fótbolta, mætti í Pepsi Max Mörkin á föstudagskvöldið. Var hann spurður út í hvort það hefði áhrif á landsliðið að nokkur lið deildarinnar hefðu þurft að fara í sóttkví.

Landsliðsþjálfarinn vill fleiri yngri leikmenn í atvinnumennsku
Þjálfari íslenska kvennalandsliðsins vill að fleiri ungir leikmenn taki skrefið út í atvinnumennsku og fái fleiri krefjandi leiki yfir árið.

Ósammála um atvikið umdeilda í nýliðaslagnum: „Er mest hissa á viðbrögðum Guðna“
Sparkspekingar Pepsi Max-marka kvenna, Mist Rúnarsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir, voru ekki sammála um það hvort að FH hefði átt að fá vítaspyrnu gegn Þrótti í nýliðaslagnum fyrr í vikunni.

Dagskráin í dag: Fylkir og KA mætast í Árbæ, Leeds mætir Stoke, ítalski boltinn og Pepsi Max stúkan
Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Bein útsending frá leik Fylkis og KA í Pepsi Max deildinni, Leeds United mætir Stoke, Inter verður í eldlínunni á Ítalíu og loks Pepsi Max Stúkan kl. 20:00.

Markahæsti leikmaður deildarinnar sinnir varnarvinnunni vel til að vinna sig inn í leikinn
Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, mætti í Pepsi Max Mörkin í gær til að ræða gengi Vals og eigin frammistöðu.

„Held og vona að Sara fái vel borgað því hún á það skilið“
Margrét Lára Viðarsdóttir, sparkspekingur og fyrrum landsliðskona, vonar að Sara Björk Gunnarsdóttir fái vel borgað í Lyon því hún eigi það skilið.

Dagskráin í dag: Pepsi Max mörkin, Atalanta mætir Napoli, Real Madrid getur styrkt stöðu sína og PGA mótaröðin heldur áfram
Það er úr nægu að velja á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Pepsi Max mörkin, ítalski boltinn, spænski boltinn og PGA-mótaröðin í Golfi er meðal þess sem verður á boðstólnum.

Dagskráin í dag: Tekst FH-ingum að hefna fyrir tapið í bikarúrslitunum?
Það verður boðið upp á fullt af fótbolta á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag þar sem íslenski boltinn verður í fyrirrúmi en einnig er spilað í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Bára um Selfoss: „Töluvert langt frá Breiðabliki og Val í gæðum“
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, einn sérfræðingur Pepsi Max-markanna, segir að Selfoss sé langt frá toppliðum Breiðablik og Vals í gæðum, þrátt fyrir að hafa unnið FH 2-0 fyrr í vikunni.

Lék í 3. flokki frekar en í Pepsi Max-deildinni
Hlín Eiríksdóttir átti afbragðsleik gegn Þór/KA í Pepsi Max-deildinni á miðvikudagskvöldið en Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, sérfræðingur Pepsi Max-markanna, skildi ekki af hverju Jakobína Hjörvarsdóttir var ekki í byrjunarliðinu hjá Þór/KA.

Margrét Lára um smitið: Eitthvað sem að maður hefur óttast og engum að kenna
„Þetta er eitthvað sem að maður hefur óttast,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir í Pepsi Max mörkunum í kvöld um það að leikmaður Breiðabliks hefði smitast af kórónuveirunni.

Dagskráin í dag - Íslenskur og ítalskur fótbolti í fyrirrúmi
Knattspyrnan á sviðið á sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem ítalski boltinn verður í fyrirrúmi auk þess sem Guðmundur Benediktsson og félagar gera upp 2.umferð Pepsi Max deildar karla.

Segir kvenna fótbolta „ekki það einfaldan og barnalegan að þú getur bara hlaupið og skorað“
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, segir að kvennafótbolti sé ekki það einfaldur og barnalegur að það sé bara hægt að hlaupa og skora.