
Sportpakkinn

Einn harðasti Stjörnumaðurinn vonast til þess að safna rúmri milljón fyrir félagið eftir maraþonhlaup
Almar Guðmundsson, fyrrum formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, gerði sér lítið fyrir og hljóp heilt maraþon í dag til styrktar knattspyrnudeild félagsins. Söfnunin er enn í gangi og miðar vel.

Ásdís fær ekki að enda á stórmóti en vonast eftir því að bæta Íslandsmetið
Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir fær ekki að enda síðasta árið sitt á stórmóti því nú hefur bæði Ólympíuleikunum í Tókýó sem og EM 2020 verið frestað vegna kórónuveirunnar.

„Var að gæla við það að snillingarnir í EHF myndu finna einhverja lausn á þessu“
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari deildarmeistara Vals í Olís-deild karla sér jafn mikið á eftir EHF-keppninni eins og úrslitakeppninni hér heima en það varð ljóst í dag að Valur myndi ekki spila meir í EHF-bikarnum þetta árið.

Gaupi og Maggi Bö hlustuðu á grasið á Meistaravöllum vaxa
Vallarstjórinn á Meistaravöllum segir að hann sé í fínu ásigkomulagi. Hann er ekki hrifinn af gervigrasþróuninni.

Hjörvar segir að lið verði að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri í sumar
Guðjón Guðmundsson, Gaupi, ræddi við Hjörvar Hafliðason, sparkspeking um komandi sumar í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu.

„Maður er þakklátur fyrir að fá að spila“
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Vals, er þakklát fyrir það að Íslandsmótið í knattspyrnu fari fram.

Þjálfar yfir 1000 manns í gegnum samfélagsmiðla
Afreks- og hlaupaþjálfarinn Silja Úlfarsdóttir gerir sitt besta til aðstoða íþróttafólk af öllum aldri á þessum srítnu tímum. Gerir hún það meðal annars í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram.

Íslandsmeistarinn stefnir á mót erlendis þegar fram líða stundir
Róbert Daði Sigurþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í eFótbolta, mun keppa fyrir Íslands hönd í eFótbolta á þriðjudaginn. Með honum verður landsliðsmaður í knattspyrnu.

Íris Björk hætt: Fyrsti titillinn með Gróttu á sérstakan stað í hjartanu
Íris Björk Símonardóttir, landsliðsmarkvörður og markvörður ríkjandi Íslandsmeistara Vals, hefur lagt handboltaskóna á hilluna. Hún ræddi um ákvörðun sína í Sportpakkanum á Stöð 2.

Virði leikmanna hrunið og spænska deildin gæti orðið áhugamannadeild
Arnar Freyr Theodórsson, umboðsmaður sumra af bestu handboltamönnum heims, segir markaðsvirði leikmanna hafa farið hratt niður á við. Hann óttast að spænska deildin breytist í áhugamannadeild.

Félagarnir á hjólunum ánægðir með titilinn og vonast til þess að Evrópuleikirnir verða spilaðir
Tveir af öflugustu leikmönnum Vals í Olís-deild karla segja að það hafið verið fúlt að tímabilið í handboltanum hafi verið blásið af en þeir vonast til þess að Evrópuleikir liðsins verði spilaðir í sumar.

Markaskorarinn og læknisfræðineminn útilokar ekki atvinnumennsku
Ein besta fótboltakona landsins, Elín Metta Jensen, raðar ekki bara inn mörkum á fótboltavellinum heldur stundar hún einnig læknisfræði með fótboltanum. Hún segir að það krefjist aga að sameina þetta tvennt.

„Líkaminn fer hálfpartinn í verkfall þegar adrenalínið er ekki upp á sitt besta”
Guðjón Guðmundsson, Gaupi, heyrði í Arnar Gunnlaugssyni, þjálfara Víkinga í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu, fyrir Sportpakka kvöldsins á Stöð 2 en Víkingum hefur verið spáð góðu gengi á komandi leiktíð. Innslagið í heild sinni má sjá í fréttinni.

„Tekur lang mest á andlegu hliðina“
Þetta er undarlegir tímar til að æfa hópíþróttir. Gaupi ræddi við Kára Jónsson og Vilhjálm Steinarsson um það hvernig þeir eru að tækla þessar skrítnu aðstæður sem íþróttafólk glímir við þessa dagana.

Höskuldur um bróðurmissinn: „Veröld manns hrynur og maður brotnar í milljón búta"
Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks í Pepsi Max deild karla, fór yfir bróðurmissinn í viðtali við Svövu Grétarsdóttir í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöld. Einnig ræddi Höskuldur um það hvernig Breiðablik æfir þessa dagana þegar íþróttalið mega ekki koma saman til að æfa.

„Stórt félag með mikla starfsemi og þar af leiðandi eru launin há“
Knattspyrnufélagið Valur hefur lækkað laun leikmanna í öllum greinum félagsins vegna ástandsins sem útbreiðsla kórónuveirunnar hefur haft. Launakostnaður Vals er sá langhæsti hjá íþróttafélögum í Reykjavík.

Haukar munu fara varlega á leikmannamarkaðnum í sumar
Aron Kristjánsson, sem tekur við Haukum í Olís-deild karla í sumar, segir að félagið muni ekki fara hamförum á leikmannamarkaðnum í sumar. Félagið muni þess í stað horfa inn á við.

Birna Berg: Vona að deildin verði jafnari og sterkari
Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir hefur verið í atvinnumennsku í handbolta síðustu sjö ár en snýr nú aftur heim í Olís deildina á næsta tímabili.

Ásdís ætlar ekki að reyna við Ólympíuleikana á næsta ári
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir ætlar ekki að reyna að komast inn á Ólympíuleikana í Tókýó sem fara fram eftir ár en Ásdís ætlar að leggja spjótið á hilluna eftir þetta ár.

Sportpakkinn: „Viljum forðast það að vera taka ákvarðanir núna“
Forseti GSÍ, Haukur Örn Birgisson, segir að það sé lán í óláni fyrir golfíþróttina hér á landi að hún standi sem hæst á sumrin. Hann vonast til að sumarið á Íslandi í golfinu verði eins og best verði á kosið.

Kára bíður erfið ákvörðun ef ÓL verður frestað
Draumur Kára Gunnarssonar um að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar er úti eftir að öllum mótum þar sem honum gafst kostur á að vinna sér inn stig á heimslista var frestað vegna kórónuveirunnar.

Ekkert mót í boði fyrir ÓL? | „Reyni að vera jákvæð“
Mikil óvissa ríkir hjá afreksíþróttafólki sem stefnt hefur á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fresta leikunum en erfiðlega gengur fyrir íþróttafólk að komast á mót til þess að tryggja sig inn á leikana.

Sportpakkinn: Kem með titilinn heim við fyrsta tækifæri
Júlían J. K. Jóhannsson, íþróttamaður ársins 2019, þarf að bíða með að gera atlögu að Evrópumeistaratitli í kraftlyftingum en EM hefur verið frestað vegna kórónuveirunnar. Hann ætlar sér heimsmeistaratitil á næstu þremur árum.

Sportpakkinn: „Á ekki von á því að við klárum tímabilið“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, vonast til þess að Dominos-deildin byrji aftur eftir fjórar vikur en efast um að það verði raunin.

Sportpakkinn: „Sárt og mikil spæling innan hópsins“
Leikmenn Fram eru svekktar með að fá ekki að spila gegn Stjörnunni og mögulega tryggja sér deildarmeistaratitil Olís deildarinnar en þær skilja ákvörðun HSÍ.

Sportpakkinn: Sprækir Haukar gerðu Stjörnumönnum erfitt fyrir
Stjarnan færðist nær deildarmeistaratitlinum með sigri á Haukum í 21. umferð Domino's deild karla. Þrír aðrir leikir fóru fram í gær.

Sportpakkinn: Keflvíkingar unnu deildarmeistarana
Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í körfubolta í gær.

Sportpakkinn: Valur felldi HK, ÍR gerði góða ferð til Eyja og Fram heldur í vonina
Fjórir leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í gær. Arnar Björnsson fór yfir leikina.

Sportpakkinn: Allir nema einn af þeim tuttugu bestu í heimi með á Players í ár
Svo gott sem allir bestu kylfingar heims eru samankomnir á Flórída þar sem þeir keppa á Players meistaramótinu sem er í margra augum fimmta risamótið. Arnar Björnsson skoðaði mótið fram undan.

Sportpakkinn: Erfitt að sjá Valsmenn sleppa takinu af toppsætinu
Tuttugasta umferð Olís-deildar karla í handbolta hefst í kvöld með fjórum leikjum.