
Kokkalandsliðið

Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari látinn
Hilmar Bragi Jónsson matreiðslumeistari er fallinn frá. Hilmar var einn þekktasti matreiðslumaður landsins og lifði ævintýralegu lífi; eldaði ofan í kónga, drottningar, þjóðhöfðingja, sendiherra, varaforseta, þingmenn og aðra hátt setta embættismenn víða um heim.

Hinrik Örn kokkur ársins
Hinrik Örn Lárusson sigraði í gær í keppninni Kokkur ársins 2024. Hinrik starfar hjá Lux en Ísak Aron Jóhannsson hjá Zak veitingar hafnaði í öðru sæti og Viktor Pálsson hjá Speilsalen í Noregi var í því þriðja.

Fulltrúi barnaverndar kom Snædísi til bjargar
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, matreiðslumeistari og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, er fædd á Filippseyjum og hún hefur lifað tímana tvenna.

Íslensku kokkarnir lönduðu bronsi
Íslenska kokkalandsliðið hafnaði í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart Þýskalandi. Keppni lauk í gær og voru úrslitin kynnt nú eftir hádegið á lokahátíð leikanna.

Íslenska kokkalandsliðið á leiðinni á Ólympíuleika
Það stendur mikið til hjá íslenska kokkalandsliðinu, sem æfir sig nú á fullum krafti fyrir Ólympíuleika, sem verða í byrjun febrúar á nýju ári í Stuttgart í Þýskalandi. Þorskur, íslenskt lamb og hindber verður meðal annars á matseðlinum. Sérstakur uppvaskari fylgir liðinu á leikana.

Ragnar Ómarsson matreiðslumaður er látinn
Ragnar Ómarsson matreiðslumaður er látinn, 51 árs að aldri. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut síðastliðinn föstudag.

Tekur við sem þjálfari Kokkalandsliðsins
Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur verið valin þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur.

Sindri er kokkur ársins
Sindri Guðbrandur Sigurðsson er kokkur ársins 2023. Sindri hreppti titilinn í gær eftir mjög sterka keppni.

Sigurjón Bragi náði áttunda sæti
Sigurjón Bragi Geirsson náði áttunda sæti í Bocuse d´Or heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu sem lauk í Lyon dag. Keppnin er sú virtasta í heiminum á sviði matreiðslu.

Sigurjón Bragi keppir í Bocuse d´Or
Matreiðslumaðurinn Sigurjón Bragi Geirsson mun keppa fyrir hönd Íslands í virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d´Or, sem haldin verður í Lyon í Frakklandi næstkomandi sunnudag og mánudag.

Kokkalandsliðið hlaut gullverðlaun
Íslenska kokkalandsliði hlaut gullverðlaun fyrir frammistöðu sína í keppni í þriggja rétta matseðli sem eldaður er fyrir 110 manns, sem fór fram í gær.

Kokkalandsliðið stefnir aftur á gullið
Íslenska kokkalandsliðið hefur keppni á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í dag. Liðið vann til gullverðlauna á síðasta heimsmeistaramóti árið 2018 og stefnir ótrautt á að endurtaka leikinn.

Fréttasjúklingur sem hefur borðað hundahamborgara, hestaheila, lifandi orma og drukkið snákablóð
Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og fyrrverandi forseti Heimssamtaka Matreiðslumanna, Klúbbs matreiðslumanna og Kokkablúbbs Norðurlanda, segist í dag fyrst og fremst vera ævintýramaður. Og húsmóðir í Frakklandi. Sem þó er að setja á laggirnar fyrsta kokkalandsliðið í Indlandi.

Ömmumaturinn, ástríðan og sushi-draumurinn
„Laugardagar voru í miklu uppáhaldi því þá var hakk og spaghetti. Amma gerði líka alltaf kartöflumús með rosalega mikið af sykri. Það var ekkert eðlilega gott,“ segir matreiðslumeistarinn Axel Björn Clausen í viðtalsliðnum Matarást.

Framlag upp á 40 milljónir til keppnismatreiðslu
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Klúbbur matreiðslumeistara og Íslenska Bocuse d´Or Akademían, undirrituðu í dag samning um 40 milljóna króna framlag atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til keppnismatreiðslu.

Kokkalandsliðið vann gull á Ólympíuleikum matreiðslumeistara
Um var að ræða fyrri keppnisgrein af tveimur sem liðið keppir í þetta árið.

Stofnanir og stórfyrirtæki laða til sín færa kokka
Opinberar stofnanir og stórfyrirtæki eru í auknum mæli að ráða til sín færustu kokka landsins. Eftirsótt er að komast í þessar stöður vegna þægilegs vinnutíma og góðra launa. Bitnar það á hótelum og stórum veitingastöðum.

Kokkalandsliðinu rann blóðið til skyldunnar að aðstoða Denis
Denis var á föstudag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir.

Nýbakaður gullverðlaunahafi á leið í fangelsi
Denis Shramko, nýbakaður gullverðlaunahafi í sykurgerðarlist á heimsmeistaramóti kokkalandsliða í Lúxemborg, var á föstudaginn dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur árið 2016.

Íslenska kokkalandsliðið vann gullverðlaun
Íslenska kokkalandsliðið vann gullverðlaun í flokknum heitum mat á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg.

Vann gull í sykurgerðarlist
Fyrsta gull íslenska kokkalandsliðsins á heimsmeistarakeppninni í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg um helgina kom í hús í gær.

Röð „rangfærslna“?
Þann 5. nóvember var birt á Vísi.is grein eftir Sigurð Pétursson sem bar yfirskriftina ,,Röð ,,tilviljana“? Nefndur Sigurður er framkvæmdastjóri Artic Fish, en nefnt fyrirtæki ku að helmingi vera í eigu norska fiskeldisfyrirtækisins Norway Royal Salmon, aukinheldur sem kýpverskt aflandsfélag, Bremesco Holding, heldur að því er ég best veit, á tæplega 50% hlut.

Röð „tilviljana“?
Þegar heimsmetið var sett í Vatnsdalalsá í ágúst átti sér stað nokkur röð tilviljana sem hér fylgir: kokkur sem hefur tjáð sig svarinn andstæðing fiskeldis er svo "óheppinn“ að fanga eldislax langt fjarri árósum þessar laxveiðiár.

Kokkar biðja Arnarlax afsökunar
Klúbbur matreiðslumeistara og Arnarlax segjast hafa náð sáttum í máli sem reis eftir að undirritaður var samstarfssamningur milli kokkalandsliðsins og Arnarlax.

Segir kokkana ekki hafa vitað að semja ætti við Arnarlax
Ylfa Helgadóttir, fyrirliði kokkalandsliðsins, segist vön því að Klúbbur matreiðslumeistara semji við fyrirtæki samboðin kokkunum.

Kokkarnir rifta samningnum við Arnarlax
Stjórn Klúbbs matreiðslumanna (K.M.) hefur tekið ákvörðun að rifta samstarfssamningi kokkalandsliðsins við Arnarlax.

Telja andstæðinga fiskeldis hafa hótað landsliðskokkum
Þorsteinn Másson, útibússtjóri Arnarlax í Bolungarvík, segir viðbrögð kokkalandsliðsmanna við styrktarsamningi við Arnarlax hafa komið sér mjög á óvart.

Tólf draga sig úr kokkalandsliðinu
Tólf kokkar hafa ákveðið að draga sig úr kokkalandsliðinu vegna ákvörðunar Klúbbs matreiðslumeistara að gera styrktarsamning við fiskeldisfélagið Arnarlax.

Hættir í klúbbi matreiðslumeistara vegna samnings við Arnarlax
Kokkurinn Sturla Birgisson segist hafa verið sá sem dró eldislaxinn að landi í Vatnsdalsá á dögunum.

Góð tilfinning að hitta alla þessa flinku kokka
Ylfa Helgadóttir, matreiðslumeistari á Kopar, er nýr þjálfari kokkalandsliðsins. Næsta heimsmeistarakeppni er eftir eitt og hálft ár og undirbúningurinn er að hefjast.