

Í raun er ótrúlega stutt síðan íslenskt samfélag og þjóðkirkjan rönkuðu við sér í réttindamálum hinsegin fólks. Hvað þjóðkirkjuna varðar komst málið virkilega á dagskrá þegar lög um staðfesta samvist fólks af sama kyni tóku gildi í landinu árið 1996. Þá þurfti kirkjan að vinna að og leggja fram form fyrir slíkar athafnir og var málið rætt í þaula á ýmsum prestastefnum.
Samkvæmt skilgreiningu: Er æðsti embættismaður þjóðkirkjunnar. Hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu.
Biskupskjör er að nálgast. Bráðum fær þjóðkirkjan nýjan biskup. Ég sé stuðningsgreinar fyrir ákveðna frambjóðendur á hverjum degi og hlusta einnig á umræðu um biskupskjörið bæði meðal vígðra og leikmanna í kringum mig.
Í komandi biskupskjöri er miklvægt að til embættisins veljist manneskja sem er góður leiðtogi, hefur mikla yfirsýn yfir málefni kirkjunnar og þekkingu á innviðum hennar, og hafi hæfileika til að miðla erindi kirkjunnar út í samfélagið á jákvæðan og framsækinn hátt.
Ég undirritaður styð Guðrúnu Karls Helgudóttur í komandi biskupskjöri. Ég vil taka það fram að ég er ekki tengdur neinum af frambjóðendunum á einhvern hátt, en þekki þau öll í gegnum störf mín sem prestur innflytjenda.
Framundan er biskupskjör, framundan er tækifæri til breytinga. Sóknarnefndir landsins, kirkjunnar þjónar og aðrir sem hafa kjörgengi velta því nú fyrir sér hver hinna þriggja frambjóðenda geri kirkjunni mest gagn á þeim stað sem hún er nú. Hverjar eru þarfir kirkjunnar? Hverjar eru þarfir safnaða landsins?
Biskupskjör hefst 11. apríl næstkomandi og gestir Pallborðsins voru þremenningarnir sem tryggðu sér útnefningu þegar tilnefningar fóru fram: Guðrún Karls Helgudóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Elínborg Sturludóttir.
Pallborðið verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag en til umræðu að þessu sinni verða embætti biskups Íslands og málefni Þjóðkirkjunnar.
Guðrún Karls Helgudóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Elínborg Sturludóttir hlutu flestar tilnefningar til biskupskjörs. Guðrún hlaut 65 tilnefningar, Guðmundur Karl 60 og Elínborg 52.
Framundan er forval til biskupskjörs. Hópur vígðra þjóna kirkjunnar, alls 164 einstaklingar, tilnefnir einhvern þeirra sjö sem hafa „rétt upp hönd“ til að gefa kost á sér í sjálfu biskupskjörinu. Mikil ábyrgð er lögð á herðrar þessa fólks og hefur þetta fyrirkomulag sætt gagnrýni sem vel má taka undir.
Í dag hefjast á ný tilnefningar til biskups Íslands og mega þá 164 starfandi prestar og djáknar Þjóðkirkjunnar tilnefna þrjá frambjóðendur til embættis biskups. Að því loknu gefst sóknarnefndarfólki og öðrum sem gegna trúnaðarstörfum innan kirkjunnar tækifæri til að kjósa biskup fyrir hönd þeirra sem tilheyra Þjóðkirkjunni. Hin útvöldu sem eru á kjörskrá mega tilnefna hvern þann sem uppfyllir skilyrði til biskupsembættis og er starfsfólk Þjóðkirkjunnar á fellilista en aðra má rita í þartilgerða reita við hlið fellilistans.
Tilnefningar í biskupskjöri hefjast í dag en um er að ræða aðra umferð eftir að tæknileg vandamál urðu til þess að ekki var hægt að telja atkvæði eftir fyrstu atrennu.
Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa hörmungunum á Gaza á þann hátt að við getum skilið þjáninguna og sorgina sem fylgir þessum ómannúðlega hernaði í Landinu helga. Staðan er grafalvarleg og ákall um vopnahlé þarf að ná eyrum þeirra sem geta stöðvað ófriðinn, morðin og gjöreyðileggingu samfélagsins sem áður lifði í Gaza.
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur tilkynnt forsætisnefnd kirkjuþings ákvörðun sína um að hefja á ný kosningu til embættis biskups Íslands og forsætisnefnd lagt blessun sína yfir fyrirkomulagið.
Forsætisnefnd kirkjuþings hefur samþykkt tillögu kjörstjórnar þjóðkirkjunnar um að tilnefningarferlið fyrir biskupskjör hefjist á ný þann 7. mars næstkomandi.
Ekkert verður af því að hefja endurtekningu tilnefninga í í biskupskjöri klukkan 12 á hádegi í dag, þar sem forsætisnefnd kirkjuþings hefur ekki lagt blessun sína yfir framkvæmdina.
Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar hefur ákveðið að tilnefningarferlið í fyrirætluðu biskupskjöri, sem hófst 1. febrúar síðastliðinn og lauk á hádegi í gær, sé enn í gangi en að endurtaka þurfi tæknilega framkvæmd þess.
Ákveðið hefur verið að endurtaka tilnefningar til biskupskjörs vegna tæknilegra mistaka sem áttu sér stað hjá Advania, sem var þjónustuaðili vegna kosninganna.
Séra Elínborg Sturludóttir, prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík, hefur ákveðið að taka við tilnefningum til biskups. Hún staðfesti þetta við Morgunblaðið í gær.
Bjarni Karlsson prestur hefur ákveðið að bjóða sig fram til biskups. Það tilkynnti hann í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti biskup Íslands. Hann segist hafa fengið fjölda áskoranir.
Heitar umræður sköpuðust í Pallborðinu á Vísi um framtíð þjóðkirkjunnar og hlutverk hennar. Nýr biskup verður kjörinn í mars og hafa þegar fjórir gefið kost á sér í embættið. Tilnefningar til biskups þurfa að berast milli 1. og 6. febrúar og mun kosning standa yfir frá 7. mars til 12. mars.
Ár er liðið frá því að Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands greindi frá því að hún hygðist láta af störfum. Síðan þá hefur nokkuð vatn runnið til sjávar; Agnes sem var ekki lengur embættismaður samkvæmt nýjum lögum var „endurráðin“ að loknum skipunartíma sínum en úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar sagði þá ráðstöfun „markleysu“.
Þau séra Ninna Sif Svavarsdóttir og séra Guðmundur Karl Brynjarsson munu gefa kost á sér í embætti biskups Íslands, að því gefnu að þau hljóti nægilega margar tilnefningar.
Fyrrverandi vígslubiskup á Hólum reiknar með að fleiri prestar verði tilnefndir í biskupskjöri en þeir tveir sem gefið hafa kost á sér til embættisins hingað til. Hún telur presta sammála um að rödd kirkjunnar þurfi að heyrast hærra og það verði þeim efst í huga þegar gengið verður til kosninga.
Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju og prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi, og Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, hafa báðar gefið kost á sér í embætti biskups. Kosið verður í mars.
Framsögumenn ályktunar sem gengur út á að Agnes M. Sigurðardóttir verði eftir sem áður biskup yfir Íslandi eru Bryndís Malla Elídóttir og Kristrún Heimisdóttir.
Einar Gautur Steingrímsson hæstaréttarlögmaður segir að ef gengið sé út frá því að niðurstaða úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar um embættishæfi Agnesar M. Sigurðardóttur sé réttur sé enginn biskup yfir Íslandi.
Biskup mun ekki taka fjármálaákvarðanir verði tillögur starfshóps á vegum þjóðkirkjunnar samþykktar. Meðlimur hópsins segir að það sé ekki sniðugt að biskup beri ábyrgð á ýmsum fjármálagjörningum innan þjóðkirkjunnar.
Biskup Íslands segist una úrskurði nefndar Þjóðkirkjunnar um að hún hafi ekki umboð til að taka stjórnsýslulegar ákvarðanir þrátt fyrir að hafa kært hann til dómstóla. Hún segir alla innan þjóðkirkjunnar verða að stefna í sömu átt til að sigla úr þeim ólgusjó sem hún er stödd í.