Enski boltinn

Ítalskir fjölmiðlar segja Sneijder á leið til City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sneijder eftir sigur Inter í Meistaradeild Evrópu vorið 2010.
Sneijder eftir sigur Inter í Meistaradeild Evrópu vorið 2010. Nordic Photos / AFP
Ítalska dagblaðið Gazetto dello Sport segir í dag að Manchester City hafi komist að samkomulagi við Inter um kaup á Wesley Sneijder fyrir 31 milljón punda.

Sneijder hefur verið sterklega oraður við hitt Manchester-liðið, United, í sumar og ítrekað sagður á leið þangað. Það hefur hins vegar ekkert orðið af því enn.

Fréttastofa Sky Sports hefur hins vegar eftir sínum heimildum að þetta sé rangt - City sé ekki búið að semja við Inter.

Sneijder lék í dag með Inter gegn AC Milan í ítalska ofurbikarnum en ítalska dagblaðið staðhæfði að eftir leikinn myndi Sneijder fljúga til Englands og skrifa undir samning við City.

Forráðamenn Inter hafa ítrekað sagt að félagið hafi ekki átt í viðræðum við neitt enskt félag um möguleg kaup á Sneijder.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×