Skoðun

Tómatsósa og smjörlíki

Kolbrún Baldursdóttir skrifar

„Einstæð móðir vann tvöfalda vinnu til að geta séð börnum sínum farborða. Suma daga mátti einungis finna tómatsósu og smjörlíki í ísskáp fjölskyldunnar. Hátíðarmaturinn var pottur af hrísgrjónum.“ Einhver myndi kannski segja að slík fátækt finnist ekki á Íslandi í dag en svona er nefnilega tilvera margra íslenskra fjölskyldna.


Flokkur fólksins býður nú fram í Reykjavík í fyrsta sinn. Í stefnuskrá hans er lögð höfuðáhersla á fjölskylduna sem byggir borgina og að allar fjölskyldur hafi öruggt húsaskjól og nóg að bíta og brenna. Öllum, þ.á.m. börnum, öryrkjum sem og eldri borgurum skal boðið upp á meira en hrísgrjón, tómatsósu og smjörlíki eða malt og lýsi eins og dæmi eru um.


Í aðdraganda síðustu kosninga lofaði Samfylkingin að byggja 3000 íbúðir. Þetta loforð hefur ekki verið efnt. Biðlistar þeirra sem sótt hafa um félaglegt húsnæði eru lengri en fyrir fjórum árum. Einstætt foreldri með 300.000 kr. á mánuði í ráðstöfunartekjur sem leigir íbúð á 200.000 kr. á mánuði líður skort á öllum öðrum sviðum. Þessi fjölskylda á oft ekki fyrir mat. Flokkur fólksins vill ganga til samstarfs við ríkið og umfram allt lífeyrissjóðina en hjá þeim liggja peningar fólksins. Þá á að nota til að byggja íbúðir þannig að nægt framboð verði til staðar svo húsnæðismarkaðurinn komist í eðlilegt horf. Til þess að þetta megi verða þarf vissulega lagabreytingu.



Í starfi mínu sem sálfræðingur hef ég hitt mörg börn sem líða skort. Þessi börn fara ekki varhluta af áhyggjum foreldra sinna. Fátæk börn bera sig saman við börn sem búa við betri kjör. Skilningur þeirra á erfiðleikunum byggist vissulega á þroska og aldri. Mörg spyrja af hverju eru foreldrar mínir fátækir?

Mismunun og ójöfnuður laða iðulega fram tilfinningu vanmáttar og óöryggis hjá ungum börnum. Það hefur áhrif á sjálfsmat og sjálfsvirðingu barns að hafa  ekki sömu tækifæri og önnur börn. Þau upplifa sig á jaðrinum meðal jafningja og tekst oft ekki að samlagast jafnöldrum sínum. Tilvik eru um að fátækum börnum sé hreinlega hafnað og þeim strítt vegna fátæktar sinnar.

Ég þekki af eigin raun tilfinningu vanmáttar, minnimáttarkenndar og óöryggis við það að búa við bágbornar aðstæður sem barn.

Flokkur fólksins líður ekki að börn skuli þurfa að lifa í fátækt Í Reykjavík og setur málefni fjölskyldunnar efst á forgangslista sinn í komandi kosningum 26. maí. Þak yfir öll höfuð og matur á diska skal það vera. Sé grunnþörfum einstaklings ekki sinnt er varla mikils að njóta. Fólkið fyrst!


Kolbrún Baldursdóttir skipar 1. sæti Flokks fólksins í Reykjavík

 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×