Bandaríkin beina spjótum sínum að dætrum Pútíns Bandaríkin, ásamt öðrum G7-ríkjum og Evrópusambandinu, hafa tilkynnt um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum, meðal annars vegna hryllingsins í Bucha. Bandaríkin segjast munu sjá til þess að hinir seku verði sóttir til saka og eru refsiaðgerðirnar liður í því. Bandaríkin hafa til að mynda ákveðið að beita fullorðnar dætur Pútíns refsiaðgerðum. Erlent 6. apríl 2022 15:25
„Það var engin virðing borin fyrir mannslífum“ Íslendingur segir eyðileggingu og ummerki eftir nauðganir og morð hafa blasað við þegar hann heimsótti bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs í gær. Erlent 6. apríl 2022 12:12
Ísland styður við móttöku flóttamanna í Moldóvu Íslensk stjórnvöld tilkynntu í gær um 50 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til að bregðast við álagi á innviði í Moldóvu vegna komu flóttamanna frá Úkraínu. Heimsmarkmiðin 6. apríl 2022 09:03
Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 5. apríl 2022 22:25
Allt að 170 flóttamenn borða saman á hverju kvöldi í Guðrúnartúni Samtökin Flottafólk, sem stofnuð voru til að bjóða flóttafólki frá Úkraínu kvöldmat og samkomuaðstöðu, taka á móti allt að 170 manns á hverju kvöldi í mat. Forsvarsmaður verkefnisins segir augljóst að fólkið þurfi á miðstöðinni að halda til að ræða málin. Innlent 5. apríl 2022 22:01
Úkraínuforseti vill Rússa út úr öryggisráðinu og draga þá fyrir stríðsglæpadómstól Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna. Innlent 5. apríl 2022 21:30
Vilja til Rússlands en flykkjast til Íslands í sumar Ísland er orðið eftirsóttasta laxveiðilandið nú þegar erfitt er að komast til Rússlands að veiða. Það stefnir allt í gott laxveiðisumar í ár. Innlent 5. apríl 2022 21:01
Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. Erlent 5. apríl 2022 15:52
Útilokar ekki að vísa starfsmönnum sendiráðs Rússa úr landi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segist reikna með frekari viðskiptaþvingunum í garð Rússlands eftir nýleg tíðindi af fjöldamorðum Rússa í úkraínskum bæjum, þar á meðal Bucha. Innlent 5. apríl 2022 13:55
Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5. apríl 2022 12:01
Danirnir seldu treyju sínar fyrir 7,6 milljónir og gáfu úkraínskum börnum Danska knattspyrnulandsliðið sitt gerði heldur betur sitt í að safna pening fyrir börn í Úkraínu sem þurfa á mikill aðstoð að halda þessi misserin eftir innrás Rússa í landið. Fótbolti 5. apríl 2022 09:31
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5. apríl 2022 09:04
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað. Innlent 4. apríl 2022 19:58
Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa. Erlent 4. apríl 2022 19:30
Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni. Innlent 4. apríl 2022 18:53
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. Erlent 4. apríl 2022 15:47
Rússneska sendiráðið á Íslandi tekur undir með Moskvu en hvað er rétt? Talsmenn sendiráðs Rússlands á Íslandi hafa tjáð sig um hroðaverkin í Bucha og endurtaka þá línu frá Moskvu að um sé að ræða „ögrun“ af hálfu Úkraínustjórnar. Erlent 4. apríl 2022 12:59
Orban gagnrýndi Selenskí í sigurræðu sinni Viktor Orban og Fidesz-flokkur hans unnu öruggan sigur í þingkosningunum í Ungverjalandi sem fram fóru í gær. Það er því ljóst að hann mun gegna stöðu forsætisráðherra í landinu, fjórða kjörtímabilið í röð. Erlent 4. apríl 2022 07:36
Dynamo Kiev leikur gegn stærstu liðum Evrópu til að safna pening fyrir Úkraínu Úkraínsku meistararnir Dynamo Kiev munu leika vináttuleiki gegn Barcelona, Paris Saint-Germain og AC Milan, ásamt öðrum stórliðum Evrópu til að safna pening fyrir stríðshrjáða þjóð þeirra. Fótbolti 4. apríl 2022 06:31
Hryllingur í Bucha: Fullyrðir að rússneskir hermenn séu verri en íslamska ríkið Utanríkisráðherra Úkraínu segir Rússa hafa framið fjöldamorð á almennum borgurum í bænum Bucha, þar sem lík liggja eins og hráviði á götum eftir brotthvarf Rússa. Vestrænir leiðtogar fordæma Rússa fyrir voðaverk á svæðinu og saka þá sumir um stríðsglæpi. Erlent 4. apríl 2022 00:00
Með skilaboð til Íslendinga: „Hjálpin sem þið hafið veitt okkur gleymist aldrei“ Vesturbæingar og fyrirtæki í nágrenninu hafa tekið höndum saman við að útvega úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Hótel Sögu ýmsar nauðsynjar, þar á meðal sundkort. Við hittum flóttamann sem var með skilaboð til íslensku þjóðarinnar. Innlent 3. apríl 2022 20:31
Saka Rússa um þjóðarmorð í Bucha Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur sakað Rússa um þjóðarmorð eftir að Rússar yfirgáfu bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs fyrir helgi. Svo virðist sem tugir ef ekki fleiri almennir borgarar hafi verið teknir af lífi í bænum af Rússum og grafa hefur þurft lík þeirra í fjöldagröfum. Erlent 3. apríl 2022 16:30
Skelfilegir stríðsglæpir koma í ljós Alþjóðleg mannréttindasamtök segja ljóst að rússneskir hermenn hafi framið ýmsa stríðsglæpi í Úkraínu. Hræðilegar sögur berast frá íbúum þeirra svæða sem Rússar hafa horfið frá. Erlent 3. apríl 2022 12:39
Vaktin: Rússar kalla eftir neyðarfundi öryggisráðsins Árásir voru gerðar á hafnarborgina Odessa við suðurströnd Úkraínu í morgun og er haft eftir ráðamanni að rússnesk flugskeyti hafi hæft mikilvæga innviði. Erlent 3. apríl 2022 07:34
Vesturbæingar sjá um hundrað flóttamönnum á Hótel Sögu fyrir nauðsynjum Tæplega eitt hundrað úkraínskir flóttamenn, konur og börn, hafa fengið þak yfir höfuðið í Bændahöllinni, þar sem Hótel Saga var þar til nýlega. Svo virðist sem fólkið fái ekki mikið meira en þak yfir höfuðið enda hafa íbúar Vesturbæjar tekið það á sig að verða fólkinu úti um helstu nauðsynjar. Innlent 2. apríl 2022 23:03
Saka Rússa um að hafa gert árásir á friðsæl mótmæli Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Erlent 2. apríl 2022 23:02
Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu. Innlent 2. apríl 2022 21:11
Segir Rússa hafa rænt áhrifavaldinum sem lifði af árásina á fæðingarspítalann Fréttaritarinn Thomas van Linge segir að úkraínsku konunni, sem lifði af árás Rússa á fæðingarspítala í Maríupól, hafi verið rænt af Rússum. Hún sé ein þeirra mörgu flóttamanna sem Rússar hafi beint frá Maríupól til Rússlands þvert á samninga. Innlent 2. apríl 2022 16:46
Vonar að atvinnurekendur taki flóttafólkinu opnum örmum Móttaka flóttamanna hér á landi fer vel af stað og hafa herbergi á Hótel Sögu meðal annars verið tekin undir þá. Innlent 2. apríl 2022 16:20
Vaktin: Gæti tekið mörg ár að hreinsa upp jarðsprengjur Rússa Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, segir að rússneskar hersveitir hafi komið fyrir jarðsprengjum í íbúðum og líkum á sama tíma og þær hörfi rólega úr norðurhluta landsins. Þetta kom fram í nýjasta ávarpi forsetans til úkraínsku þjóðarinnar. Hann varaði sömuleiðis við því að staðan væri áfram gríðarlega erfið í austurhlutanum þar sem Rússar væru að undirbúa árásir í Kharkív og Donbas-héraði. Erlent 2. apríl 2022 07:38