

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Götubardagar og sprengingar í Kænugarði í alla nótt en nú dauðaþögn
Enn ein erfið nótt er liðin í Úkraínu og var hart barist í öllum stærstu borgum landsins. Útgöngubann er í gildi í Kænugarði og verður í gildi þar til klukkan átta í fyrramálið. Íbúi í Kænugarði segir hörðustu bardagana háða í skjóli nætur.

Úkraínuvaktin: Úkraínuforseti ræðir við leiðtoga vesturlanda og ýjar að ESB-aðild
Nýjar gervihnattamyndir sýna nokkurra kílómetra langa bílalest, sem inniheldur meðal annars skriðdreka, stefna í átt að Kænugarði.

Frysta eigur Seðlabanka Rússlands og aftengja vissa banka frá SWIFT
Ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa komist að samkomulagi um að loka aðgangi tiltekinna rússneskra banka að SWIFT, greiðslukerfi sem notað er við miðlun fjármuna milli alþjóðlegra banka.

Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá SWIFT
Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá greiðslukerfi sem notað er til að miðla fjármunum milli alþjóðlegra banka en rússneskir hermenn hafa nú tekið að beina sprengjuárásum að spítölum og skólum í Úkraínu.

Roman Abramovich stígur til hliðar
Roman Abramovich og Chelsea gáfu út sameiginlega yfirlýsingu rétt í þessu þar sem kemur fram að Abramovich muni stíga til hliðar sem stjórnandi í daglegum rekstri félagsins. Ekki er tekið fram hvers vegna Abramovich er að stíga til hliðar.

„Vonum það besta en erum hræddir við að eitthvað slæmt geti gerst“
Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur hækkað viðbúnaðarstig sitt vegna hugsanlega yfirvofandi netárása Rússa. Framkvæmdastjóri Syndis segir mikilvægt að fólk sé á varðbergi og opni ekki furðulega pósta.

„Enn þá meiri uggur í mér“
Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir óþægilegt að hafa fylgst með starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu flýja úr borginni í morgun.

„Erfitt að sjá fólk sem í ofsareiði og af óskiljanlegum ástæðum vill tortíma okkur“
Sendiherra Úkraínu í Finnlandi og Íslandi kallar eftir því að íslensk stjórnvöld slíti stjórnmálasambandi við Rússland og vísi rússneska sendiherranum úr landi. Hann voni að rússneskur almenningur geri uppreisn annars verði skömmin og blóð Úkraínumanna á þeirra höndum næstu aldirnar.

Búast við rússneskum netárásum á Ísland
Aðstoðarforstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að viðbúnaður hér á landi vegna yfirvofandi netárása Rússa hafi aukist, sem og í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Alþjóðlegur hópur hakkara hefur ráðist á Rússa með góðum árangri, en búast má við því að Rússar ráðist á netinnviði NATO-ríkja.

Abramovich íhugar að selja Chelsea
Rússneski milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er að íhuga að selja félagið. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu hafa vesturveldi lagt til viðskiptaþvingana á Rússa og rússneska viðskiptamenn.

Pólverjar neita að spila við Rússa
Cezary Kulesza, forseti pólska knattspyrnusambandsins hefur gefið það út að þeir muni ekki leika við Rússland í umspili fyrir heimsmeistaramótið í Katar 2022.

Man Utd bætist í hóp félaga sem segja upp styrktarsamningum við rússnesk fyrirtæki
Fótboltalið víðs vegar um Evrópu hafa sagt upp styrktarsamningum sínum við rússnesk fyrirtæki eftir að fréttir bárust um innrás Rússa í Úkraínu.

Formúlu 1 kappakstri í Rússlandi aflýst
Formúlu 1 kappaksturinn bætist við þá íþróttaviðburði sem átti að fara fram í Rússlandi en hefur nú verið aflýst vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

„Ég vaknaði nokkrum sinnum við sprengingar og byssuhvelli“
Miklir bardagar voru í Kænugarði í nótt og heyra mátti sprengingar og byssuhvelli. Borgarstjóri Kænugarðs sagði í tilkynningu í morgun að 35 almennir borgarar hafi særst í átökunum í nótt, þar af tvö börn.

Útilokar ekki að slíta stjórnmálasambandi við Rússa
Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að íslensk stjórnvöld muni slíta stjórnmálasamstarfi við Rússa. Minni þolinmæði sé fyrir rússneskum kafbátum og herþotum sem reglulega rjúfi lofthelgi Íslands en algjört slit stjórnmálasambands yrði þó líklega síðasta úrræði sem stjórnvöld gripu til.

Nato sendir hermenn til nágrannaríkja Úkraínu
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Nato, sagði í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að bandalagið sé að senda viðbragðsveitir, reiðubúnar til bardaga, til nágrannalanda Úkraínu og muni þar að auki halda áfram að senda Úkraínumönnum vopn, þar á meðal loftvarnir.

Vaktin: Allt stefnir í aðra erfiða nótt
Rússneskar hersveitir segjast hafa náð yfirráðum í borginni Melitopol í suðausturhluta Úkraínu. Melitopol er fyrsta stóra borgin, utan þeirra sem eru á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austri, sem fellur í hendur Rússa. Varnarmálaráðherra Breta segir þessar fregnir þó ekki réttar.

„Hreint neyðarástand hjá Útlendingastofnun“
Dómsmálaráðherra segir að hreint neyðarástand ríki hjá Útlendingastofnun. Flóttamenn sem fyrir eru teppi aðstöðuna fyrir þeim flóttamönnum sem kunna að koma frá Úkraínu.

Putin hvetur til herforingjabyltingar í Úkraínu
Vladimir Putin Rússlandsforseti skorar á úkraínska herinn að steypa lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum landsins. Landinu væri stjórnað af nasistum og fíkniefnaneytendum.

Íbúar Kænugarðs leita skjóls í neðanjarðarlestarstöðvum
Fólk hefur hópast niður í neðanjarðarlestarstöðvarnar í Kænugarði frá því loftvarnaflautur fóru að hljóma í gær.

Sean Penn gerir heimildarmynd um innrás Rússa í Úkraínu
Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu þar sem hann vinnur að heimildarmynd um innrás Rússlands. Hann flaug til Kyiv til þess að festa atburðina sem eru að eiga sér stað á filmu. Hann hefur verið að fylgjast með aðdragandanum um nokkurt skeið en hann sást fyrst að störfum við myndina í Úkraínu í nóvember.

Halda ró sinni en tilbúin með vegabréfið ef allt fer á versta veg
Fólk er ekki bara óttaslegið í Úkraínu. Í Slóvakíu og Ungverjalandi búa um 200 íslenskir læknanemar sem hafa áhyggjur af næstu skrefum. Læknanemar á báðum stöðum halda ró sinni en eru tilbúnir með vegabréfin ef að allt fer á versta veg.

Nágrannaþjóðir taka flóttamönnum frá Úkraínu opnum örmum
Evrópusambandið hefur fryst eignir forseta og utanríkisráðherra Rússlands í ríkjum sambandsins. Nágrannaríki Úkraínu í vestri taka flóttafólki þaðan opnum örmum en mikill fjöldi fólks reynir nú að komast vestur yfir. Hundruð manna hafa fallið í átökum beggja landa í Úkraínu undanfarinn sólarhring. Forseti landsins hefur kallað eftir fundi með Rússlandsforseta.

Fær frí vegna stríðsins í Úkraínu
Andriy Yarmolenko, leikmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham United, verður ekki með liðinu um helgina en Yarmalenko kemur frá Úkraínu og er kominn í nokkurra daga frí vegna stöðunnar þar í landi. Oleksandr Zinchenko, leikmaður Manchester City, verður hins vegar til taks ef þess þarf.

Mikilvægt að undirbúa móttöku fólks frá Úkraínu
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir mikilvægt að undirbúa mögulega móttöku fólks frá Úkraínu hingað til lands. Hann hefur falið flóttamannanefnd að fylgjast með stöðu þeirra sem hafa þurft að flýja heimili sín vegna ástandsins.

Rússneskum almenningi blöskri það sem hann sjái
Jón Ólafsson, prófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands, telur að markmið Rússlands næstu daga sé að þrengja verulega að stórborgunum og þéttbýlissvæðum í Úkraínu og ná slíkum tökum á landinu að Úkraínumenn neyðist til að gefast upp. Brátt komi að örlagastund í Úkraínu.

Markaðir rétta úr kútnum, Brim hækkar um meira en 11 prósent
Eftir einn svartasta dag í Kauphöllinni frá fjármálahruninu 2008 varð mikill viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum í dag og hækkaði Úrvalsvísitalan um rúmlega 3,6 prósent eftir að hafa fallið um nærri 6 prósent daginn áður. Öll félögin á aðalmarkaði hækkuðu í verði, mest Brim, en gengi bréfa sjávarútvegsfélagsins hækkaði um 11,5 prósent og hefur virði þess á markaði aldrei verið meira.

Rússum meinuð þátttaka í Eurovision
European Broadcasting Union (EBU), eða Samband evrópskra ríkisútvarpa, hefur ákveðið að meina Rússum þátttöku að Evrópsku söngvakeppninni, vegna árásar Rússa inn í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU.

Norrænu sjónvarpsstöðvarnar vilja Rússland úr Eurovision
Forsvarsmenn norrænu sjónvarpsstöðvanna sem taka þátt í Eurovision keppninni vilja að Rússlandi verði vísað úr keppninni í ár vegna innrásarinnar í Úkraínu.

Tölum fyrir friði og mannúð
Í gær laut skynsemin í lægra haldi fyrir stríði þegar Pútín réðist inn í Úkraínu. Eins og alltaf græða fáir á stríði en hörmungarnar sem fylgja falla í skaut almennings sem þráir frið og fyrirlítur stríð.