Ferill Mutombo líklega á enda "Það verður ekki meiri körfubolti hjá mér," sagði Dikembe Mutombo með tárin í augunum þegar hann var borinn meiddur inn í búningsherbergi Houston Rockets í tapinu gegn Portland í úrslitakeppni NBA í nótt. Körfubolti 22. apríl 2009 13:15
Cleveland og Lakers bæði komin í 2-0 í sínum einvígum Bestu lið deildarkeppninnar í NBA-deildinni í vetur, Cleveland Cavaliers og Los Angeles Lakers eru bæði komin í 2-0 yfir í sínum einvígum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir sigra í nótt. Portland Trail Blazers tókst hinsvegar að jafna metin á móti Houston Rockets. Körfubolti 22. apríl 2009 09:00
Dampier ætlar að senda Parker í gólfið Franski leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio Spurs fór hamförum þegar liðið vann öruggan sigur á Dallas í öðrum leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í nótt sem leið. Körfubolti 21. apríl 2009 19:00
Leon Powe úr leik hjá Boston Meistarar Boston Celtics í NBA deildinni hafa orðið fyrir enn einu áfallinu. Kraftframherjinn Leon Powe er með slitin krossbönd í vinstra hné og spilar ekki meira með liðinu í úrslitakeppninni. Körfubolti 21. apríl 2009 17:18
Howard varnarmaður ársins Miðherjinn Dwight Howard hjá Orlando Magic hefur verið kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni eftir því sem fram kemur í Orlando Sentinel í dag. Körfubolti 21. apríl 2009 17:13
Dallas réð ekkert við Tony Parker og Spurs jafnaði metin Tony Parker skoraði 38 stig og gaf 8 stoðsendingar í öruggum 105-84 sigri San Antonio Spurs á Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt en með honum jafnaði San Antonio liðið metin í 1-1. Körfubolti 21. apríl 2009 09:15
Ray Allen bætti fyrir fyrsta leikinn og tryggði meisturunum sigur Ray Allen tryggði Boston Celtics 118-115 sigur á Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og er staðan því jöfn í einvíginu, 1-1. Leikurinn fór fram í Boston eins og sá fyrsti en næstu tveir verða spilaðir í Chicago. Körfubolti 21. apríl 2009 09:00
Kidd kastaði upp í miðjum leik Leikstjórnandinn Jason Kidd hjá Dallas Mavericks var fárveikur og ældi í miðjum fyrsta leik liðsins gegn San Antonio í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í fyrrakvöld. Körfubolti 20. apríl 2009 23:30
Mike Brown þjálfari ársins í NBA Mike Brown hjá Cleveland Cavaliers var í kvöld kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni eftir að hafa stýrt liðinu til besta árangurs allra liða í deildinni í vetur. Körfubolti 20. apríl 2009 21:19
Iguodala tryggði Philadelphia sigur í Orlando Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í gærkvöldi og í nótt. Aðeins einn þessara leikja var í raun spennandi en það var viðureign Orlando og Philadelphia í Flórída. Körfubolti 20. apríl 2009 09:21
Auðvelt hjá Lakers Fyrsta leik kvöldsins í úrslitakeppni NBA er þegar lokið. LA Lakers vann auðveldan sigur á Utah Jazz á heimavelli 113-100 þar sem þrír leikmenn Lakers skoruðu yfir 20 stig. Körfubolti 19. apríl 2009 22:09
Skápur Jordan fór á þrjár milljónir Skápurinn sem Michael Jordan notaði þegar hann lék með Chicago Bulls á sínum tíma seldist í gær á þrjár milljónir króna á góðgerðauppboði sem félagið stóð fyrir. Körfubolti 19. apríl 2009 20:30
Ekkert partístand á leikmönnum Miami Fyrirliðinn Dwyane Wade hefur lagt félögum sínum í liði Miami Heat strangar reglur fyrir leikina gegn Miami í úrslitakeppninni í NBA. Körfubolti 19. apríl 2009 19:31
Ótrúlegur sigur Chicago á Boston Úrslitakeppnin í NBA-deildinni hófst í gær með fjórum leikjum. Óvæntustu úrslitin voru að meistarar Boston töpuðu á heimavelli fyrir Chicago, 105-103, í framlengdum leik. Körfubolti 19. apríl 2009 11:23
Ainge á batavegi Danny Ainge, framkvæmdastjóri Boston Celtics, er á batavegi eftir hjartaáfallið sem hann fékk á fimmtudag. Er talið líklegt að hann fái að fara heim af spítalanum á sunnudag. Körfubolti 17. apríl 2009 22:30
Mesta áhorf á NBA frá endurkomu Jordan TNT-sjónvarpstöðin í Bandaríkjunum segir að áhorf á NBA-körfuboltann hafi aukist um fjórtán prósent frá síðasta tímabili og hafi ekki verið meira síðan að Michael Jordan tók skóna fram fyrir tímabilið 1995-96. Körfubolti 17. apríl 2009 09:28
Danny Ainge fékk hjartaáfall Danny Ainge, framkvæmdastjóri Boston Celtics og fyrrum leikmaður félagsins, er nú á batavegi eftir að hafa fengið hjartaáfall í dag. Það var sjónvarpsstöðin WCVB í Boston sem greindi frá þessu í kvöld. Körfubolti 16. apríl 2009 22:36
Tölfræðin í NBA: Wade stigakóngur Nú þegar deildarkeppninni í NBA deildinni er lokið er ekki úr vegi að skoða hvaða leikmenn skáru fram úr í helstu tölfræðiþáttum í vetur. Körfubolti 16. apríl 2009 17:45
Garnett gæti misst af úrslitakeppninni Framherjinn Kevin Garnett hjá meisturum Boston Celtics verður ekki klár í slaginn með liði sínu þegar það hefur leik gegn Chicago Bulls í úrslitakeppninni á laugardagskvöldið. Körfubolti 16. apríl 2009 16:43
NBA í nótt: San Antonio náði sér í titil Lokakeppnisdagur deildakeppninnar í NBA-deildinni fór fram í nótt og er því ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um helgina. Körfubolti 16. apríl 2009 09:26
NBA í nótt: Lakers vann Utah Það er ljóst að LA Lakers mætir Utah í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir að þessi lið mættust í nótt á næstsíðasta keppnisdegi deildakeppninnar. Körfubolti 15. apríl 2009 09:09
Thomas í þjálfarastólinn á ný Isiah Thomas, fyrrum forseti og þjálfari New York Knicks í NBA deildinni, hefur samþykkt að taka við þjálfarastarfinu hjá Florida International háskólanum næstu fimm árin. Körfubolti 14. apríl 2009 17:45
Saunders tekur við Wizards Flip Saunders hefur náð samkomulagi við forráðamenn Washington Wizards NBA deildinni um að gerast þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Þetta kemur fram í nokkrum fjölmiðlum vestra í dag. Körfubolti 14. apríl 2009 16:45
Garnett spilar ekki fyrr en í úrslitakeppninni Framherjinn og atmennið Kevin Garnett hjá Boston Celtics í NBA deildinni mun ekki koma við sögu í síðustu tveimur leikjum liðsins í deildarkeppninni. Körfubolti 14. apríl 2009 13:23
NBA í nótt: Cleveland tryggði sér heimavallarréttinn Það er ljóst að Cleveland er með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni eftir sigur liðsins á Indiana í nótt, 117-109, og verður því með heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina. Körfubolti 14. apríl 2009 10:14
NBA í nótt: Cleveland rústaði Boston - Wade með 55 stig Cleveland undirstrikaði yfirburði sína í austrinu í NBA-deildinni með sigri á meisturum Boston í nótt, 107-76. Þá skoraði Dwyane Wade 55 stig fyrir Miami sem tryggði sér fimmta sætið í austrinu í gærkvöldi. Körfubolti 13. apríl 2009 11:29
Vill bara tala við Shaq á Twitter Shaquille O´Neal og Mark Cuban, eigandi Dallas, hafa skipst á skoðunum í fjölmiðlum í Bandaríkjunum undanfarið. O´Neal, sem nú leikur með Phoenix Suns, gaf í skyn að hann myndi ganga í raðir Dallas í sumar. Körfubolti 12. apríl 2009 20:29
Úrslit næturinnar úr NBA Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Phoenix, Golden State og Portland unnu góða útisigra en efstu lið deildanna voru ekki í eldínunni. Körfubolti 12. apríl 2009 15:25
LeBron James talinn líklegastur Nú eru blaðamenn vestanhafs að leggja lokahönd á að skila inn atkvæðaseðlum sínum í kjörinu á verðmætasta leikmanni NBA deildarinnar í vetur. Körfubolti 12. apríl 2009 08:45
Garnett hvíldur fram í síðasta deildarleik Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics í NBA deildinni, hefur gefið það út að Kevin Garnett verði aðeins látinn spila síðasta deildarleik liðsins í vetur. Körfubolti 11. apríl 2009 22:30